Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 4

Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 4
4 Börn og menning vsatana Alvara málsins - bóklestur barna Viðtal við Kristín Helgu Gunnarsdóttur, barnabókarithöfund Sunnudaginn, 22. janúar síðastliðinn, komu nokkrir áhyggjufullir menn, karlar og konur, saman í Norræna húsinu. Tilgangurinn var að ræða stöðu íslenskrar tungu í viðsjárverðri veröld á ráðstefnu sem kallaðist Staða málsins. Mönnum til mikillar undrunar og gleði fylltist húsið afforvitnum og áhugasömum áheyrendum. Að margra mati stendur íslenska tungan á tímamótum og þjóðin þarf að gera upp við sig hvort hún vill halda í málið, leyfa því að lifa eða ekki. Á ráðstefnunni voru frummælendur úr ýmsum áttum. Þar mátti meðal annarra hlýða á Hrafnhildi Ragnarsdóttur ræða um máltöku barna og benti hún á þá mikilvægu staðreynd að máltaka útheimti samfélag við aðra menn, styðjandi orðræðu, endalausar æfingar og örvandi samræðu. Páll Valsson útgáfustjóri hjá Eddu hf. var mjög svartsýnn í sínum fyrirlestri ogspáðí dauða islenskunnar innan hundrað ára með sama áframhaldi. Hann sagði undirstöður tungumálsins vera um það bil að bresta, kynslóðabilið ítungutaki meira en nokkru sinni, orðaforði og orðfæri flytjist ekki lengur milli kynslóða. Jóhannes Bjarni Sigtryggsson málfræðingur sagði blikur á lofti um að staða íslenskunnar fari hægt versnandi og að fólk leggi minna upp úr því að vanda stafsetningu og framburð. Nefndi hann sem dæmi að viðtengingarhátturinn væri á hröðu undanhaldi. Jóhannes sagði komið að ögurstund íslenskunnar. Andri Snær Magnason flutti fyrirlestur um málumhverfi barna og unglinga og sagði hann að tungumál væri ekki skraut heldur grundvöllur samskipta, farvegur minninga, reynslu og gilda. Hann varpaði fram þeirri spurningu hvað gerist ef heilt orð og merking þess hverfur úr tungumálinu.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.