Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 6

Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 6
6 Börn og menning stofum sem sýndar eru í húsbúnaðarþáttum sjónvarpsstöðvanna. Hvar eru þá bækurnar? Komnar í Sorpu? „Ef börn lesa ekki sér til skemmtunar og uppbyggingar strax í æsku munu þau ekki lesa sem fullorðnir einstaklingar." Kristín Helga æsir sig yfir þeirri fullyrðingu sem varpað hefur verið fram í fjölmiðlum að íslenskan sjéi um sig sjálf. Hún hristir höfuðið svo rauða hárið skoppar óstýrilátt um herðar og hundamir gelta henni til samþykkis. „Mér finnst þetta vera í hrópandi ósam- ræmi við raunveruleikann. Tungumálið er lifandi og allt sem er lifandi þarf aðhlynningu. Ef íslenskan er lífvera þá þarf hún næringu og umönnun eins og allar lifandi verur. Við þurfum að skapa henni þroskandi umhverfi til að vaxa og dafna. Við getum látið hana dragnast áfram við kröpp kjör og þröngan kost - jafnvel horft á eftir henni í ræsið. En þá ber íslensku þjóðinni sú skylda að styðja hana á fætur, þurrka framan úr henni og fylgja þessum ástvini sínum í meðferð, hjálpa lífverunni með því að taka einn dag i einu um ókomna tíð." Við víkjum talinu aftur að því sem Kristínu finnst vera undirstaðan, barnabókunum. „Mér þykir ískyggileg sú þróun sem hefur orðið í liði barnabókahöfunda. Ég hef áhyggjur af því að þeim höfundum sem skrifa fyrir börn fækkar. Ég veit um einn barnabókarithöfund sem hefur snúið sér frá barnabókum og að glæpasögum fyrir fullorðna og annar mikilvirkur og gamalreyndur höfundur fær ekki lengur listamannalaun - hún sem hefur skrifað fyrir börn í mörg ár, bæði skemmtilestur og stuðningsbækur í lestri. Það sorglega er að enginn eða mjög fáir bætast í hóp barnabókahöfunda. Það að skrifa fyrir börn er lítils metið, illa borgað. Reyndur og mikilhæfur höfundur sem hefur skrifað ótal bækur fyrir yngri lesendur ráðlagði mér að fikra mig upp stigaganginn í bókahúsinu og upp á hæðirnar fyrir ofan - skrifa fyrir fullorðna - þar væru ritverk metin að verðleikum og gaumur gefinn að orði á blaði." Kristfn Helga heldur áfram að tjá áhyggjur sínar: „Ég skoðaði með mjög óformlegum hætti útgáfu á frumsömdum bókum fyrir börn. Árið 1995 voru gefnar út yfir tuttugu bækur fyrir börn en núna er fjöldinn innan við tíu. Þetta er slæm þróun og við verðum að spyrna við fótum." Væri hægt að virkja skólakerfið á einhvern máta til að koma til móts við breytta tíma og minnkandi áhuga barna á bókum? „Já, ég hef hugsað mikið um hvað hægt sé að gera. Mér finnst að Ríkisútvarpið ætti að koma með og hjálpa til. Sjáðu framgöngu spurningakeppninnar Gettu betur. Fyrir allnokkrum árum þóttu þeir sem lágu í bókum hallærislegir en núna hafa slíkir bókaormar stöðu íþróttagarpa í framhaldsskólum landsins. Þar hefur tekist að fara með sjónvarpið út fyrir ramma þess og gera það gagnvirkt. Þar hefur með dagskrárgerð verið brúað kynslóðabil og byggð sterk brú milli sjónvarps og bóka. Nú væri gaman að sjá sjónvarpið teygja sig með svipuðum hætti inn í grunnskólann. Hvernig væri til dæmis að fara af stað með spurningakeppni meðal sjöundu bekkinga á landsvísu þar sem viðfangsefnið væri íslenska og bókmenntir. Og svona þáttur væri náttúrlega á kjörtíma eftir fréttir svo fjölskyldan mætti sameinast um hann en ekki síðdegis þegar von er á að krakkagrey sitji ein og góni." Hugmyndin hljómar vel, reyndar mjög vel. Hvers vegna ekki að leyfa yngri nemendum að njóta sín? Þetta myndi kalla á aukinn bóklestur til að geta verið með og krakkar hvettu hver annan til að lesa meira og taka þátt. Liðin yrðu að eflast að vexti og þroska. Kristín Helga verður áköf þegar hún talar um lestrahæfni barna og unglinga. Eins og sést á titli fyrirlestursins líkir hún lesþroska barna við húsbyggingu. Ef ekki er vel unnið að grunni hússins og fyrstu hæðum er hætt við því að húsið hrynji þegar hærra er byggt. Hún segist líta á barnabókmenntir sem undirstöðubókmenntagreinina - grunninn sem allar aðrar greinar byggi á og styðji sig við. „Bóklestur í æsku meitlar og mótar manneskjuna og hefur áhrif á heildar lífs- stefnujafntsemdaglegtlíf einstaklingsinsinn í fullorðinsárin og ef börnin okkar lesa ekki í dag munu engir lesa bækur morgundagsins. Bóklestur barna er undirstaða alls þess sem á eftir kemur og byggir menningarsamfélag." Við ræðum um gagnsemi bókarinnar. „Bókin hefur svo marga kosti. Hún þroskar barnið, leggur inn sjálfstæða hugsun, örvar skoðanamyndun, hvetur til frumkvæðis, brúar kynslóðabil, kallar á flóknar samræður, býr til nærveru og

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.