Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 21
Heil brú
21
Á lokaspretti vínnslunnar við
smásagnasafnið Auga Óðins, þar sem sjö
höfundar sömdu sögur út frá norrænni
goðafræði og jafnmargir teiknarar
myndskreyttu, kviknaði sú hugmynd að
lagt yrði af stað með annað álíka verkefni
en hlutverkunum yrði snúið á haus miðað
við það sem venjulega tíðkast. l' þetta
sinn áttu myndhöfundarnir að velja sér
efni úr goðafræðinni og teikna út frá því
myndir sem textahöfundarnir fengju síðan
í hendurnar og „orðskreyttu". Því valdi
ritnefndin upphaflega níu myndskreyta og
fól þeim að fara af stað með sögu og
velja sér síðan textahöfund til að klára
verkið. Það er skemmst frá því að segja að
þetta tókst afskaplega vel og um það leyti
sem þetta tölublað Barna og menningar
kemur til áskrifenda rennur afrakstur þessa
áhugaverða verkefnis úr prentvélunum.
Bókin er samstarfsverkefni Eddu og IBBY
á (slandi og ritnefnd skipuðu Sólveig Ebba
Ólafsdóttir, Áslaug Jónsdóttir og Sigþrúður
Gunnarsdóttir. Menningarsjóður styrkti
verkefnið.
Bókin ber titilinn Heil brú sem er
jafnframt heitið á fyrstu sögunni sem Björk
Bjarkadóttir teiknar og Gerður Kristný
skrifar. Umfjöllunarefnið er það
vandasama verkefni Heimdalls að
gæta brúarinnar yfir í Jötunheima
og hvernig allt hefði getað farið
úrskeiðis. Saga Áslaugar Jónsdóttur
og Andra Snæs Magnasonar, „2093", sækir
efnivið sinn í frásögnina um skapanornirnar
og þá misjöfnu örlagaþræði sem þær búa
mönnum. Þær Urður, Verðandi og Skuld
eru líka til umfjöllunar í sögu Höllu Sólveigar
Þorgeirsdóttur og Þórunnar Valdimarsdóttur
„Leyniþjónusta hrafnanna og hænurnar
þrjár". Þar svífur dulúðin yfir vötnum og
hrafnar yfir sögupersónunum sem ekki er
alltaf rótt. Guðrún Hannesdóttir og Vilborg
Dagbjartsdóttir fjalla um aðrar máttugar
meyjar í sinni sögu sem nefnist „Það kallast
ögurstund". Þar er sagt frá Fenju og Menju
og kvörninni Grótta sem malað gat hvað
sem var. Miðgarðsormur að fornu og nýju er
umfjöllunarefni sögunnar „Blúbb" sem þeir
smíða í sameiningu Halldór Baldursson og
Sjón. Og ormurinn langi er líka alltumlykjandi
í sögu Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur og
Úlfhildar Dagsdóttur sem bertitilinn „Jörmun
Gunnur". Ingólfur Örn Björgvinsson og
Embla Ýr Bárudóttir semja myndasöguna
„Mistiltein" um dauða Baldurs eins og
hann ber að á íshokkísvelli og systkinin
Sigrún og Þórarinn Eldjárn flytja söguna af
hamarsheimt Þórs til nútímans í sögunni
„Stanleyhamarsheimt". Að lokum semja
þau Þórarinn Leífsson og Auður Jónsdóttir
ævintýralega sögu út frá heimsókn Þórs til
Útgarða-Loka sem bertitilinn „Sögurnar".
Eins og í Auga Óðins er misjafnt hvort
höfundarnir halda sig alfarið í goðheimum
eða flytja viðfangsefnið til í tíma og rúmi.
Sögurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar
en óhætt er að lofa því að engum mun
leiðast við lestur þeirra!
Sigþrúður Gunnarsdóttir