Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 8

Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 8
8 Börn og menning af nið Gleðipilla fyrir svartsýna bókaunnendur Það er eins og allt hjálpist að við að fylla mann svartsýni og örvæntingu um hag barnabókarinnar um þessar mundir. í fyrra voru birtar niðurstöður úr lestrarkönnun meðal barna og ungmenna á íslandi sem sýndu svart á hvítu að stórlega hefur dregið úr bóklestri I þessum þjóðfélagshópi. Og ekki lyftist brúnin í jólamánuðinum þegar Bókatíðindin komu í hús, þvert á móti sigu munnvikin enn lengra í suður, slík var lágdeyðan í útgáfu frumsaminna íslenskra barnabóka. Viðtalið við Kristínu Helgu Gunnarsdóttur hér fyrir framan gefur heldur ekki beinlínis ástæðu til aukinnar bjartsýni. Satt að segja hvarflaði að undirritaðri að ekki væri annað í stöðunni en fara til læknis og reyna að kría út gleðipillur til að létta lundina. Fljótlega kom þó upp í hugann önnur og betri lækningaraðferð, nefnilega sú að leita á stað þar sem örugglega mætti finna börn innan um bækur og þannig koma auga á Ijóstýru ímyrkrinu. Læknisheimsóknin varsnarlega gefin upp á bátinn og kúrsinn tekinn á skólabókasafn og það staðfestist hér með að aðferðin svínvirkaði! Hrein hending réði því að skólabókasafnið í Langholtsskóla varð fyrir valinu en starfsemi þess hófst árið 1972. Þá var Fríða Haraldsdóttir ráðin til starfa og var safnið fyrst til húsa í einni kennslustofu. Það var svo 1976 að safnið flutti í núverandi húsnæði á efstu hæð skólans en fyrirhugað er á næstu tveimur árum að sameina skólasafnið og gagnasmiðju skólans á jarðhæð í takt við nútímalegri starfshætti í upplýsingamennt. Langholtsskóli tók til starfa árið 1952 en byggt hefur verið við skólann í þremur áföngum. Nú stunda þar 600 nemendur nám í 1.-10. bekk og þegar undirritaða ber að garði eru nemendur í 4. bekk í tfma hjá Þóru Sjöfn Guðmundsdóttur skólasafnskennara sem nú ræður ríkjum á safninu. Við gefum henni orðið: „Þessir krakkar eru hluti af liðlega 50 nemendum í 4. bekk sem hafa nýlokið vel heppnuðum lestrarspretti. Sprettir sem þessi eru tíðir hér í skólanum og eru oftast unnir í samvinnu safnkennara og umsjónarkennara. Umsjónarkennarar í 4. bekk, Anna Guðrún Harðardóttir og Ingiríður Þórhallsdóttir, töldu þörf á að herða á lestri nemenda sinna og því var ákveðið að nota lestrarsprettinn „Lesum saman kortér á dag" sem upphaflega var unninn af Jónínu Friðfinnsdóttur en lagaður að aldri nemenda eftir þörfum og ákveðið að spretturinn skyldi standa í fjórar vikur." Þóra Sjöfn gerir hlé á lýsingunni og við tökum hópmyndir af krökkunum og síðan kemur hún þeim af stað í verkefni sem felst í því að hanna kápu á uppáhaldsbókina sína eftir sprettinn. Krakkarnir taka til óspilltra málanna en Þóra Sjöfn heldur áfram að lýsa lestrarsprettinum: „Verkefnið hófst með kynningu í foreldraviðtali og bæklingi til heimila. Nemendur fengu í upphafi bókamerki, eitt fyrir heimalestur og annað fyrir skólalestur,

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.