Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 16

Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 16
Börn og menning alltaf á eftir honum eins og vælandi kærasta. Jafnframt sjáum við múmínsnáðann kynnast snorkstelpunni, sem er ægilega hégómleg. Saman una múmínsnáðinn og snorkstelpan sér við skemmtilega leiki þar sem hún er í hlutverki veinandi ungmeyjar og hann er ýmist þorparinn eða hetjan, allt eftir því hvernig liggur á honum. Á eyjunni hans múmínpabba eru bæði snorkstelpan og Snúður víðsfjarri og múmínsnáðinn þarf að leita á önnur mið. Fyrst kolfellur hann fyrir hégómlegum sæhesti sem dansar í tunglskininu á ströndinni og er negldur silfurskeifum. Eftir margra mánaða dagdrauma um sæhesta þarf múmínsnáðinn að horfast i augu við að sæhestar hafa ekki áhuga á neinu nema sjálfum sér. Þeir flissa bara að múmínsnáðanum og stara hugfangnir hver á annan. Og smám saman vex kunningsskapur múmínsnáðans við morrann. Morrinn eiti nefnilega múmínfjölskylduna úr Múmíndalnum og múmínsnáðinn var sá eini sem vissi það. í einveru sinni tekur múmínsnáðinn að heimsækja morrann þar sem hann stendur vælandi á ströndinni og hann sveiflar stóru Ijóskeri fyrir risavaxna skepnuna, sem fylgist dolfallin með. Enginn hafði áður sýnt morranum vinsemd og eftir nokkur skipti fer morrinn að sýna vinsemd á móti. Þegar múmínsnáðinn kemur til hans alveg miður sín vegna þess að olían á Ijóskerið er búin, gerist nokkuð undarlegt. „Þá byrjaði morrinn allt í einu að syngja. Flann söng gleðisönginn sinn og vaggaði sér fram og aftur með pilsaþyt, stappaði niður fótunum og sýndi á allan hugsanlegan hátt hvað hann var feginn að sjá múmínsnáðann."6 Þetta er bæði hjartnæmur og uggvænlegur kafli. Múmínsnáðinn hefur þarna vingast við holdgerving einsemdarinnar og óttans á eyju sem hefur ekkert annað að bjóða. En jafnframt hefur hann náð sátt við þennan þátt Iffsins, umfaðmað hann og gert að vini sínum. Eyjan hans múmínpabba er mjög óvægin bók. Múmínsnáðinn finnur til dæmis rjóður sem hann verður yfir sig hrifinn af - en vandinn er sá að það er fullt af maurum. Múmínsnáðinn ráðfærir sig við foreldra sína sem segja honum að ekki sé hægt að semja við maura um búferlaflutninga og að auki hafi þeir fundið rjóðrið á undan honum. Þetta er ekki niðurstaða sem múmínsnáðinn getur unað og leitar því enn álits, í þetta sinn hjá uppeldissystur sinni, Míu litlu. Mfa litla blikkar hann og lofar að leysa vandann. Þegar múmínsnáðinn, nokkrum dögum síðar finnur maurana dauða í rjóðrinu, hleypur hann öskureiður til Míu litlu, sem svarar: „maurar eru eins og mýflugur, eina ráðið er að útrýma þeim. Og reyndar vissirðu ósköp vel hvað ég hafði í hyggju. Þú vissir það, en vonaðir, að ég myndi ekkert tala um það - þú hefur lag á að blekkja sjálfan þig."7 Múmínsnáðinn og lesendur sitja eftir með sárt ennið og draga eigin siðferðisvitund í efa, hreint ekki vissir um hvað þeir voru að hugsa þegar múmínsnáðinn leitaði til hinnar kaldrifjuðu uppeldissystur sinnar. Skömmu síðar laumast múmínsnáðinn út með sykurkar og dreifir sykri í kringum trén. Mía litla sér til hans og hugsar: „Nú er hann að reyna að svæfa samvizku sína. Ég gæti svo sem sagt honum, að maurar éta ekki sykur. Og líka, að sykurinn leysist upp, þvi jörðin er blaut. Og að þeir maurar sem ég náði ekki í, hafi engan áhuga á málinu og þarfnist ekki huggunar. En ég nenni þvi ekki. Hann um það. "8 Þetta er þungur dómur yfir litlu dýri - aðgerðír þess eru ekki bara efnislega gagnslausar, heldur líka siðferðislega. Skemmtanagildi og æðri sannleikur Það er giska sérkennilegt að múmínálfarnir skuli hafa náð þeim geysilegu vinsældum sem raun ber vitni. Tilvistarangist og hið annarlega virðast við fyrstu sýn ekki mjög markaðsvæn fyrirbæri, enda er það svo að þegarmaðursértveggja metra háan múmínálf úr svampi hoppa um í skemmtigarði9 fær maður ekkí varist þeírri tilhugsun að eitthvað hafi einhversstaðar farið forgörðum. Og þó. 6 Eyjan hans múmínpabba, bls. 198. 7 Eyjan hans múmínpabba, bls. 98. 8 Eyjan hans múmínpabba, bls. 98. 9 Múmíngarðurinn f Finnlandi er opinn á sumrin og er vefsíða hans á slóðinni: http://www.muumimaailma.fi/

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.