Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 34

Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 34
34 Börn og menning leiklist Bjarni Guðmarsson Börn bæta heiminn Enn af foreldravandamálum i Matthíasarborg. * Ronja ræningjadóttir eftir Astrid Lindgren í leikstjórn Sigrúnar Eddu Björnsdóttur. Sýnt í Borgarleikhúsinu. Leikgerð: Annina Enckell. Islensk þýðing: Þorleifur Hauksson. Þýðing söngtexta: Böðvar Guðmundsson. Tónlist og söngvar: Sebastian. Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson. Gervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir. Brúðugerð: Bernd Ogrodnik. Lýsing: Halldór Örn Óskarsson. Hreyfingar og dans: Ástrós Gunnarsdóttir. Tónlistarstjóri: Karl Olgeirsson. Leikendur: Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Friðrik Friðriksson, Þórhallur Sigurðsson, Sóley Eliasdóttir og Eggert Þorleifsson og fleiri auk hóps barna. Astrid Lindgren hefur í háa herrans tíð verið besti vinur íslenskra barna og sögur hennar jafn lengi verið sjálfsögð lesning að kalla á hverju heimili landsins. Margar þeirra hafa raunar einnig öðlast sjálfstætt líf í ágætum bíó- og sjónvarpsmyndum - og þá ekki síður á fjölunum, ekki síst þeim íslensku. Borgarleikhúsið hefur þannig upp á síðkastið verið iðið við að rifja upp þessi kynni og kynnt nýrri kynslóð þessi ágætu verk; fyrst voru það Lína langsokkur og Kalli á þakinu og nú Ronja ræningjadóttir - sem hér skal fjallað lítillega um - og sennilega líður ekki á löngu áður en í það minnsta heillakarlinn Emil í Kattholti birtist á stóra sviðinu.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.