Börn og menning - 01.04.2006, Síða 9
Gleðipilla fyrir svartsýna bókaunnendur
9
og sfðan var lesið upphátt í a.m.k. fimmtán
mínútur heima á hverjum degi og í hljóði
sama tíma í skólanum. Samskiptabækur fóru
á milli skóla og heimila um það hvernig
gengi .
Á skólasafninu voru kynntir höfundar og
bækur þeirra og Sigrún Eldjárn rithöfundur
kom f heimsókn á miðju tfmabilinu. í lokin
fengu allir viðurkenningarskjal fyrir þátttöku
og einnig fengu þeir afkastamestu dálitla
viðurkenningu sem og þeir sem mest höfðu
bætt við lestrarhraða sinn."
Góður árangur
Þóra Sjöfn eröðru hverju trufluðaf nemendum
sem koma til að skila bókum og sækja nýjar.
Hún tekur öllum jafn Ijúflega og greinílegt
er að krakkarnir kunna vel við sig á safninu.
Tvær unglingsstelpur spyrja um Grannmeti
og átvexti eftir Þóarin Eldjárn og Þóra Sjöfn
vísar þeim á Ijóðabókahilluna. Þar setjast
þær við borð og fara að fletta Ijóðabókum
f ró og næði. Sumir bókakápuhönnuðirnir
eru nú langt komnir með verkefnið svo Þóra
Sjöfn er snarlega spurð um árangurinn af
lestrarsprettinum.
„Nemendur höfðu nýlokið lestrarprófi
þegar spretturinn hófst og því þótti
umsjónarkennurum tilvalið að prófa þau
aftur í lok hans. í Ijós kom að næstum allir
höfðu bætt sig. Þeir sem sýndu mestar
framfarir juku atkvæðafjölda um 34 upp í
46 atkvæði, en það eru reyndar nemendur
sem voru komnir vel á skrið í lestri. Dæmi: úr
185 atkvæði í 231, úr 193 í 237 atkvæði, úr
177 atkvæðum í 212 og úr 40 í 74, sem er
heilmikil viðbót, næstum tvöföldun. Bekkirnir
sýndu átakinu mikinn áhuga og allir voru
verulega duglegir. Lestrarstundirnar voru
góðar stundir og reynt verður að halda þeim.
Ekki lásu allir jafn mikið, en hver eftir sinni
getu, og nemendur voru stoltir af árangri
sínum."
Það leynir sér ekki að Þóra Sjöfn er mjög
hreykin af krökkunum og á í þeim hvert bein.
Langt er liðið á kennslustundina en áður