Börn og menning - 01.04.2006, Blaðsíða 17
Hin Ijúfsára þrá
17
Vinsældir bókanna hljóta að vera bundnar
við það sem gerir þær svo einstakar. Ástæða
þess að enn er verið að gefa þaer út á ótal
tungumálum um allan heim hlýtur að vera
sú að sannleikurinn sem Tove Jansson sagði
lesendum sínum um þá sjálfa er enn jafn
átakanlega og yndislega sannur og hann
var fyrir hálfri öld síðan. Það skilja lesendur,
sama hvað japönskum múmínteiknimyndum
og finnskum skemmtigörðum líður og taka
nærveru múmínálfanna fagnandi í hvaða
formi sem er. Tuskudýr og borðbúnaður
frá finnska stórveldinu littala auka bara á
hamingjuna sem múmínálfarnir færa þeim
sem þá þekkja.
Tove Jansson var hálfgerður múmínálfur
sjálf, enda sagði hún oft að persónurnar
væru innblásnar af hennar nánustu
vinum og ættingjum. Tikka-tú mun til að
mynda vera byggð á ástkonu Tove til 45
ára, og múmínmamma og -pabbi sækja
persónueinkenni sín til foreldra hennar.
Róleg stemningin í múmindal mun svo minna
á sumarleyfi Jansson fjölskyldunnar á Porvoo-
eyjum í námunda við Helsinki.
Tove Jansson lést árið 2001 í heimaborg
sinni, Helsinki og var þá sá finnski rithöfundur
sem hafði hlotið mesta útbreiðslu í veröldinni
gjörvallri. Ekkert lát virðist vera á þeim
vinsældum. Því var tekið með miklum
fögnuði hér á landi þegar Mál og menning
hóf endurútgáfu bókanna um múmínálfana
fyrir skemmstu og er óskandi að það góða
framtak muni blómstra. Ekki er ástæða til að
ætla annað, múmínálfarnir eru ekki bundnir
við stað eða tíma og alltaf eru þeir til sem
kunna að meta skjól frá lífsins stormi í
Múmíndal.
Höfundur er með B.A. gráðu í
bókmenntafræði.
Auk bókanna um múmínálfana voru þessar
tvær vefsíður hafðar til hliðsjónar:
http://www.kirjasto.sd.fi/tjansson.htm
http://www.scandinavica.com/culture/
famous/jansson.htm