Börn og menning - 01.04.2006, Qupperneq 26
26
Börn og menning
Ármann Jakobsson
DREKAR, BLÖKUR, ANDAR OG
ÓHUGNAÐUR
Nokkrar nýlegar sögur um unglinga.
Árið 2005 birtust á ísiensku allnokkrar skemmtilegar og innihaldsríkar bækur um
hálfstálpaða táninga sem kalla mætti fantasíur þó að ekki séu þær endilega líkar innbyrðis
- ein gerist til að mynda klárlega í okkar heimi en hinarþrjár í eins konar hliðarheimi. Þó að
þessar bækur séu ætlaðar lesendum á svipuðum aldri og söguhetjurnar (12-16 ára) eru þær
líka forvitnilegar fyrir eldri lesendur sem geta fellt sig við fantasíuformið. Annað samkenni
þessara bóka er að þær eru ýmist þegar komnar á skjáinn eða hvíta tjaldið eða á leiðinni
- æsispennandi söguflétturnar kalla vitaskuld á slíka meðferð en þær eru ef til vill einnig
mótaðar af væntingum höfundanna um kvikmyndagerð. Um sumar sagnanna má auk þess
sækja talsverðan viðbótarfróðleik á netið.
Hér verður einkum beint sjónum að fjórum bókum: Eragon, Silfurvæng, Ávítaratákninu
og Börnum lampans. Allar eru bækurnar eftir tiltölulega unga höfunda en einn þeirra
sker sig úr þar sem hann er aðeins rúmlega tvítugur. Þrjár þessara bóka eru þær fyrstu í
ritröð en ein önnur í röðinni af fjórum. Allt eru þetta fremur innihaldsríkar spennusögur,
i öllum er glímt við áhrifamikla eldri texta og um leið tekist á við viðteknar hugmyndir
um annarleikann sem er ef til vill mál málanna I bókmenntum og samfélagsumræðu
nútímans.
Unglingurinn og sjálfsvitund hans
Allar sögurnar sem hér um ræðir eru
þroskasögur. Söguhetjunni ersnögglega kippt
inn í nýja vídd tilverunnar, hún uppgötvar
glænýjan heim sem henni var áður hulinn
og þarf um leið að endurmeta eigin tilvist.
Beint liggur við að lesa úr þessu myndhvörf
um unglingsárin, hvort sem höfundarnir
vita af því eða eru hreinlega mótaðir af
þroskasögunni sem er órjúfanlegur þáttur
af öllum einföldum sögum, hvort sem þær
eru ævintýri, goðsögur eða rómönsur. Á
unglingsárunum horfist einstaklingurinn
skyndilega í augu við heim sem er víðfeðmari,
ógurlegri og stærri en hann hafði áður
grunað. Um leið finnur hann í sjálfum sér
möguleika sem honum höfðu áður verið
huldir. Um það fjalla þessar sögur allar.
Sú saga sem næst kemst því að vera
hreinræktuð spennusaga er Börn lampans
- Iknathon ráðgátan (Children of the Lamp,
The Akhenaten Adventure, 2004) eftir
P.B. Kerr (f. 1956) en í þýðingu Péturs
Más Ólafssonar. Höfundurinn er reyndur
spennasagnahöfundur og skrifar þá undir
nafninu Patrick Kerr. Velta má fyrir sér hvort
notkun upphafsstafanna í barnabókum hans
sé ætlað að skapa hugrenningatengsl við
J.K. Rowling. Hvað sem því Ifður er þessi bók
líkari bókunum hennar Rowling um Harry
Potter en aðrar bækur sem hér verða ræddar.
í Börnum lampans eru tvíburarnir John og
Filippía í aðalhlutverki. Þau eru eineggja
en þó ekkert lík í útliti og brýtur það gegn
náttúrulögmálum (eineggja tvíburar eru alltaf
frekar likir ásýndum og ævinlega af sama
kyni). Þar sem um fyrstu bók í ritröð er að
ræða verður höfundur að njóta vafans en í
henni kemur ekki fram nein skýring á þessu