Börn og menning - 01.04.2006, Page 39
úr smiðju höfundar
39
morgni með rokna góða hugmynd, kannski
sá ég eitthvað daginn áður án þess að hugsa
um það þá.
Jæja, nú kemur inn tölvupóstur vegna
skólabókanna. Á blaðsíðu 3 er mynd af
stelpu: Teikna hana aðeins glaðari og ekki
með hrokkið hár. Allt í lagi, breyti því.
Blaðsíða 5: Teikna marsbúa og geimfar. Fínt,
geri litla græna marsbúa ... Fólkið á Basta
tínist inn hvert á fætur öðru. Við köstum
kveðju hvert á annað: „Hei." Ræðum
stuttlega verkefni dagsins og svo hverfa allir
inn á skrifstofur sínar.
Það er úrvals aðstaða að vera sjálfstæður
og deila vinnustað með öðrum. Ég skil milli
vinnu og heimilis, hef engan yfirmann sem
lítur á klukkuna þegar ég drattast inn eftir
9 á morgnana og hef félagsskap af hressu
og skapandi fólki. Þegar maður vinnur einn
heima vantar stundum einhvern til að spyrja:
„Hvað finnst þér? Finnst þér þessi teikning
betri en hin?"
Ég hef lesið, teiknað og skrifað frá því
ég man eftír mér. Það er ef til vill ekki svo
skrýtið að nú sé helsta starf mitt að vinna
við bækur, myndskreyta þær, hanna kápur
eða skrifa. Mér hefur alltaf þótt vænt um
bækur og á heilan haug af þeim. Það sem
er skrifað fyrir börn er býsna mikilvægt.
Mér er minnisstætt þegar ég greip bók á
bókamarkaðinum án þess að kíkja í hana.
Ég sá bara að hún var um að bora í nefið.
„Frábærtl", hugsaði ég með mér, þarna
lærir strákurinn minn að það má ekki bora í
nefið! Um kvöldið lásum við hana saman, en,
viti menn. Bókin endaði á því að allir boruðu
í nefið; amman, afinn, mamman og pabbinn
og það var hið besta mál! Ég lofaði sjálfri
mér því að kaupa aldrei barnabók án þess að
skoða innihaldið.
í bókunum sem ég skrifa reyni ég að
gefa eitthvað af sjálfri mér. Einhver jákvæð
skilaboð eða eítthvað fyndið til að fá börnin
til að hlæja. Það er mikilvægt að bókin
skilji eitthvað eftir sig. Bókastund foreldra
og barna er mikilvægur tfmi. Oft er það
besta og notalegasta stund dagsins, rétt fyrir
svefninn.
Eftir að hafa unnið að hinum fjölbreyttustu
verkefnum er kominn tími til að vista alla
tölvuvinnu á aukadiski sem ég tek með heim.
Við erum öll dauðhrædd við innbrot, ekki
bara að missa allan tölvubúnað heldur líka
hálfkláruð verkefni. Svo kalla ég: „Ha de bra"
og skelli hurðinni á Basta í lás.
Björk er rithöfundur og myndskreytir.