Börn og menning - 01.04.2006, Page 42
Börn og menning
Norrænn fundur í Reykjavík
Dagana 10. og 11. mars sl. var haldinn fundur
norrænu IBBY-félaganna f Gunnarshúsi. Auk
okkar íslensku stjórnarkvennanna komu tveir
fulltrúar frá Danmörku, tveir frá Svíþjóð, þrír
frá Finnlandi og sex frá Noregi. Fyrri daginn
sem var föstudagur var fundað frá kl. 19
til 22 og boðið upp á íslenska kjötsúpu og
bjór milli dagskrárliða. Flvert félag sagði frá
helstu viðburðum í starfsemi síðastliðins árs
og einnig var sagt frá fimm athyglisverðum
barnabókum sem komu út á árinu í hverju
landi fyrir sig. Mesta athygli vakti frásögn
norskra IBBY-félaga um að haldnir hefðu verið
reglulegir fyrirlestar um barnabókmenntir á
þeirra vegum sem höfðu verið vel sóttir.
Á laugardeginum hófst fundur kl. 10 og
reið Vagn Plenge, danski fulltrúinn í stjórn
alþjóðlegu IBBY-samtakanna, á vaðið og
greindi frá því sem hann taldi markverðast
á vettvangi alþjóðastarfsins. Setu Vagns í
alþjóðastjórnininni lýkur nú í haust en Finninn
Niklas Bengtsson býður sig þá fram og venjan
hefur verið sú að Norðurlöndin bjóði aðeins
fram einn fulltrúa og sameinast um að kjósa
hann. Hefur það dugað til að Norðurlöndin
eigi rödd í stjórninni og geti komið málum
sínum á framfæri í gegnum þennan fulltrúa.
Vagn og félagi hans Jan Töth sögðu líka
frá undirbúningi heimsþings IBBY sem verður
í Kaupmannahöfn 2008. Rætt hefurverið um
að norrænu félögin komi með einhverjum
hætti að skipulagningu þingsins en óljóst er
hvernig því verður háttað enn sem komið
er.
Þegar Vagn hafði lokið máli sínu urðu
nokkuð heitar umræður um Nordisk blad
sem norrænu félögin gefa út í sameiningu
og skiptast á um að ritstýra ög standa straum
af kostnaðinum. Ljóst er að útgáfa blaðsins
er nokkuð þungur fjárhagslegur baggi á
félögunum og var rætt um leiðir til að fá
fjárhagslegan stuðning til útgáfunnar. Einnig
var stungið upp á því að blaðið yrði gefið
út á rafrænu formi eingöngu en það hlaut
dræmar undirtektir. Að lokum var ákveðið
að skipa vinnuhóp með einum félaga frá
hverju landi sem falið var að sækja um styrki
til útgáfunnar.
Eftir hádegisverð í boði okkar íslensku
stjórnarkvennanna var séríslensk dagskrá sem
stóð til klukkan 16. Guðrún Hannesdóttir
sagði frá útgáfu bókar sem byggist á
norrænni goðafræði og gefin verður út í vor
hjá Eddu útgáfu í samstarfi við IBBY á íslandi.
Nánar er sagt frá bókinni annars staðar hér í
blaðinu.
Svanhildur Eiríksdóttir, deildarstjóri barna-
og unglingastarfs í bókasafni Reykjanesbæjar,
sagði frá lestrarhvetjandi verkefni sem staðið
hefur yfir í bæjarfélaginu frá 2004 og lýkur
í apríl á þessu ári. Margt fróðlegt kom fram
í máli Svanhildar en nánari upplýsingar um
verkefnið er að finna á www.reykjanesbaer.
is/bokasafn.
Hulda Karen Daníelsdóttir, kennsluráðgjafi í
nýbúafræðslu hjá Þjónustumiðstöð Miðborgar
og Hlíða, sagði frá grasrótarverkefnum á sviði
nýbúafræðslu hérá landi. Hún byrjaði á því að
veita innsýn í stöðu nýbúamála með ýmsum
tölulegum upplýsingum sem voru um margt
forvitnilegar. Hún sagði síðan frá verkefninu
Bækur og móðurmál sem komið var á fót í
því skyni að veita börnum frá öðrum löndum
aðgang að bókum á móðurmálum sínum.
Einnig sýndi hún myndir frá atriði sem verið
hafði á Vetrarhátíð í Reykjavík og hét „Börnin
okkar og tungumálin þeirra: hlustum og
horfum". Þar lásu börn upp örstutt ævintýri á
mjög framandi tungumálum en þau voru lesin
á íslensku um leið og jafnframt var varpað
upp á vegg myndum úr bókum sem sýndu
textann og myndskreytingar. Gaf þar að líta
letur af ýmsu tagi og gullfallegar myndir. Loks
sagði Hulda Karen frá Fjölmenningarvefnum,
www.breidholtsskoli.is/fjolmenning, og eru
lesendur hvattir til að kynna sér það góða
starf sem þar hefur verið unnið.
Með þessari dagskrá lauk norræna
fundinum í ár og þökkuðu gestir fyrir góðar
móttökur.
Guðlaug Richter
Gerðubergsráðstefnan
Laugardaginn 18. mars síðastliðinn var haldin
ráðstefna í Gerðubergi undir yfirskriftinni
Heillandi heimur: Goð, börn og valkyrjur.
Sölvi Sveinsson, skólameistari Verzlunar-
skóla íslands, steig fyrstur í pontu og hét
erindi hans „Goðafræði í endurvinnslu".
Reyndar byrjaði hann á því að rifja upp ýmsar
skilgreiningar á hugtökum sem tengjast
goðafræðinni sem var afskaplega gagnlegt
fyrir ráðstefnugesti til að komast í rétta gírinn
fyrir framhaldið.
Næsta erindi, „Upp sá ég koma öðru
sinni", flutti Kristín Ragna Gunnarsdóttir
myndskreytir en þar sagði hún frá tilurð og
vinnslu bókar hennar og Þórarins Eldjárns,
Völuspá. Eins og gefur að skilja fjallaði