Studia Islandica - 01.06.1960, Síða 8

Studia Islandica - 01.06.1960, Síða 8
6 prentuð í texta þjóðsagnanna, en þeirra að engu getið í skýringum. Þá er í þjóðsögunum mikill efniviður til rannsókna á stíl ólærðra alþýðumanna, en eftir margan þeirra liggur ekki annað skrifað en ein þjóðsaga eða svo, sem hann hefur varðveitt frá glötun. Þótt Jón Árnason hafi fágað stíl skrásetjara í fyrstu útgáfu þjóðsagnanna og leiðrétt mállýti, slettur og þvílíkt, sést við athugun að útlendar slettur eru furðu litlar í frumritum skrásetjara. Mun efni frásagnarinnar valda hér nokkru. f grein þessa hef ég tínt saman úr skýringum við þjóð- sögurnar upplýsingar um nokkra þætti í málfari skrá- setjaranna, einkum úr I.—III. bindi. Ekki var þess kost- ur að gera fullkomna rannsókn á efninu, en nokkur atriði hef ég athugað allrækilega. Við samantekt greinarinnar virtist mér samt ekki ástæða til að rekja öll dæmi er fyrir koma, og að sjálfsögðu er upplýsingar um langtum fleiri atriði að finna í þessum fimm bindum þjóðsagnanna en þau sem hér eru tekin til meðferðar. Ég hef reynt að hafa dæmin sem fjölbreyttust um hvert atriði, einkum ef það kynni að geta gefið einhverja hugmynd um út- breiðslu. þess eftir mállýzkum. Handrit þau sem hér um ræðir eru skrásett á árun- um um 1860—1880, nema annars sé getið, flest þó milli 1860—70. Þau eru geymd í Landsbókasafni, og er gerð nánari grein fyrir þeim í útgáfunni. Þeim sem frekari vitneskju kynnu að óska verður að vísa í útgáfuna eða handritin sjálf. I greininni er vísað til bindis og blaðsíðu; handrit er skammstafað hdr. og þjóðsögur(nar) þjs. Sýsluheiti eru skammstöfuð þannig: Gullbr. = Gullbringu- og Kjósar- sýsla, Borg. = Borgarfjarðarsýsla, Mýr. = Mýrasýsla, Snæf. = Snæfellsnessýsla, Dal. = Dalasýsla, Barð. = Barðastrandarsýsla, fs. = fsafjarðarsýsla, Strand. = Strandasýsla, Hún. = Húnavatnssýsla, Skag. = Skaga- fjarðarsýsla, Eyj. = Eyjafjarðarsýsla, Þing. = Þingeyj- arsýsla, Múl. = Múlasýsla, Skaft. = Skaftafellssýsla,

x

Studia Islandica

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.