Studia Islandica - 01.06.1960, Síða 20

Studia Islandica - 01.06.1960, Síða 20
18 in fyrir ,,drepinn“ (III185). Meiri efi er á hvort lesa ber tikur fyrir ,,tekur“ hjá Sigmundi M. Long (,,hann... tek- ur í hönd konunnar“, III 106). I hdr. vestan úr Dölum stendur sömardaginn fyrir „sumardaginn“ (V 12), en stafsetning þess er yfirleitt mjög viðvaningsleg. Sigurð- ur Gíslason í Bæ í Steingrímsfirði skrifar greinilega Göfu- dálssveit fyrir „Gufudalssveit" (III 548) og Jóni í Stein- um skurungnum fyrir „skörungnum“ (III 44). Brynjúlf- ur frá Minnanúpi skrifar biðið fyrir „beðið“ (Ih. þt. af biðja, IV 61) og Guðmundur Jónsson frá Minnahofi, Árn. miðöl fyrir ,,meðöl“ (V 93) og líklega fir, tikið fyrir „fer“ (3. p. et., V 95) og „tekið“ (lh. þt., V 92). I endingum bregður þessu og fyrir. Hjalti á Ósi skrifar byrjöðust fyrir „byrjuðust“ (III 441), Sigurður í Möðru- dal fótönum fyrir „fótunum" (að staðaldri, t. d. III 238, 240, 336, 460). Þessum rithætti bregður og fyrir hjá Jóni Borgfirðingi, landsteinönum (1312), en valt er að treysta rithætti hans, stafsetning hans er losaraleg og allur frá- gangur mjög laus við nákvæmni. — Lítið er upp úr því leggjandi að Þorsteinn Þorsteinsson á Ufsum í Svarfaðar- dal ritar skörónun — skörunum, en hins vegar fjörunum í sömu vísu (III 440), og ella ritar hann alla jafna -unum. — Endingin -onum fyrir ,,-unum“ í þgf. ft. af greini er mjög algeng í hdr. þjs., en hér verða ekki rakin dæmi þess. Loks er að geta hér einnar athugasemdar Jóns Árna- sonar sem hefur ekki verið prentuð i þjóðsögunum, enda kemur hún þeim ekki við. I Lbs. 2088, 4to, er allstór skrif- bók og í hana skráð framan til við miðju með hendi Jóns: „Sunnlenzk (seltérnsk) utanáskrift á bréfi, skrifuð í marz 1877: „Tel jówfrú Margrítar Bjarnadóttir á Skídsholtum í Hraunhn'pp.“ “ Engar frekari skýringar hefur Jón skrifað með þessari klausu, enda eru þær óþarfar.11

x

Studia Islandica

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.