Skákblaðið - 01.12.1936, Blaðsíða 40
84
SKAKBLAÐIÐ
UM ÞÝZKT SKÁKLÍF
EFTIR L. ENGELS
Þegar skáksambandsstjórnin íslenzka bað mig fyrir stuttu
síðan að skrifa nokkur orð um þýzkt skáklíf, fanst mér það
ofur eðlilegt. Án efa fýsir marga íslenzka skákunnendur að
heyra frá því. I eftirfarandi linum hefi ég reynt að skýra, eftir
beztu getu, hvernig þýzku skáklííi er háttað, stefnu þess og
þýðingu.
Árið 1933, sem var svo þýðingarmikið fyrir Þýzkaland, kom
skákmálunum, sem og allri meimingu, i betra liorf. 9. júli 1933
var aðalskáksamband Þýzkalands stofnað við það að öll þýzk
skáksambönd sameinuðust, og þar nveð uppfyltist langþráð ósk
allra rétthugsandi Jvýzkra skákmanna. Og nú sér sambands-
stjórnin um að allir þýzkir skákkraftar stefni og' vinni að tak-
markinu: Skák á að verða þjóðaríþrótt Þýzkalands.
Aðalskáksambandið þýzka greinist í lands-sambönd. Þau
aftur í minni sambönd eða hringi og héruð. 1 hverju héraði
eru svo aftur félög, fá eða mörg eftir staðháttum. Sá sem er
meðlimur í þýzku skákfélagi er um leið i aðalskáksambandinu
])ýzka. Félagatala þess er nú um 80 þúsuud.
Aðalskáksambandinu er stjórnað eftir foringjareglunni.
Þannig ber t. d. formaður eins skákfélags ábyrgð á öllum
framkvæmdum í sínu félagi gagnvart því sambandi, sem það
er í o. s. frv. Stærra sambandið stjórnar altaf þvi minna. Þar
af leiðir að hægt er að þvinga bæði formann og félaga til hlýðni.
Þó verða menn að athuga að sérhver gerist félagi af frjálsum
vilja og án þess að vera þvingaður til þess. Nú verður erlend-
um skákvinum ljóst, hversvegna allar framkvæmdir á þýzka
skáksviðinu ganga svo fljótt fyrir sjer. Það sem áður tók mán-
uði að koma í framkvæmd er nú hrundið af stað á mjög stutt-
um tíma. Þannig var t. d. með auglýsingavikuna. Með mjög
stuttum fyrirvara ákvað sambandsstjórnin að hafa auglýsinga-
viku. Á 6 dögum átti að stofna til samtímaskáka, skákþinga,
blindskáka o. s. frv. um gjörvalt Þýzkaland. Útvarpið, blöðin