Skákblaðið - 01.12.1936, Page 43
SKÁKBLAÐIÐ
87
TAFLTÍÐINDI
KAPPSKÁKIR OG FJÖLTEFLI I REYKJAVÍK OG VÍÐAR.
5. des. 1936 kom Dettifoss í Reykjavíkurhöfn eftir óvenju
langa og erfiða ferð frá Þýzkalandi, með honum var þýzki
skáksnillingurinn Ludwig Engels. Koma hans hefir fært líf og
þrótt í skáklíí okkar, dagblöðin og útvarpið fluttu skákfréttir.
aldrei þessu vant, og Skáksambandið fékk hálftíma til um-
ráða af sunnudagstíma útvarpsins 17—17,30, og hefir Elís Ó.
Guðmundsson flutt þar skákir, skákfrjetlir og fleira er skák-
menn hafa gagn eða gaman að. Einnig fékk hann þá Þráinn
Sigurðsson og Engels til þess að tefla hraðskák í útvarpssaln-
um; er það eina skákin í heiminum, sem vér vitum til að hafi
verið útvarpað leik fyrir leik, um leið og hún var tefld; henni
lauk sem jafntefli. Strax daginn eftir að Engels kom, sunnu-
daginn 6. des. háði hann fjöltefli í stærsta sal Oddfellow-hall-
arinnar að viðstöddu fjöhnenni. Þar barðist hann við 28 menn
úr I. og II. flokk, sigraði 13, gerði jafntefli við 10, en tapaði
fyrir 5, þeim Sig. Jafetssyni, Víglundi Möller, Jóhanni Jóhanns-
syni, Konráði Árnasyni og Agli Sigurðssyni. Fékk Engels því
rúm 64%, en meðaltal hans í Þýzkalandi er 83%. Við hljótum
því að þakka taflmönnum okkar góðan árangur. En Engels
getur kent Atlantshafinu hvernig fór. —
Skáksamband íslands hafði hoðið öllum skákmeisturum
landsins, svo og flestum I. flokks skákmönnum taflfélaganna
í Reykjavík og Hafnarfirði þátttöku i kapptefli er hefjast skyldi
eftir komu Engels hingað. Þáðu boðið 14 menn. 6 meistarar,
þeir Ásmundur Ásgeirsson, Þráinn Sigurðsson, Eggert Gilfer,
Einar Þorvaldsson, Baldur Möller, Steingr. Guðmundsson og
8 I. flokksmenn Konráð Árnason, Sturla Pétursson, Gústaf Á.
Ágústsson, Benedikt Jóhannsson, Magnús G. Jónsson, Jóhann
Jóhannsson, Kristján Kristjánsson og Ásgrímur Ágústsson.
Fór kappteflið fram í Oddfellow-höllinni í Reykjavík und-
ir stjórn Péturs Sigurðssonar og Ara Guðmundssonar og lauk
með sigri Engels, eins og við mátti búast.