Fréttablaðið - 10.03.2021, Side 8
Í Virginíu hafa tæplega
11 prósent íbúanna hlaðið
niður appi, 6 prósent í New
York, 4 prósent í New Jersey
og 2,5 prósent í Kaliforníu.
Samkvæmt kínverskri
sendinefnd var tilgangurinn
að gera Kínverjum betur
kleift að stunda rannsóknir
á norðurslóðum.
FINNLAND Kínverska ríkið falaðist
eftir því að kaupa flugvöll af Finn-
um í bænum Kemijarvi árið 2018.
Finnska ríkisútvarpið YLE Lappi
greinir frá þessu. Varnarmálaráðu-
neyti Finnlands hafnaði hins vegar
beiðni Kínverja af öryggisástæðum.
Kemijarvi er í Lapplandi, austan
við borgina Rovaniemi, og var það
hin ríkisrekna Heimskautastofnun
Kína sem sóttist eftir kaupum eða
leigu. Þar að auki buðust Kínverjar
til þess að stækka flugbrautina með
6 milljarða króna framlagi.
Samkvæmt kínverskri sendi-
nefnd var tilgangurinn að gera
Kínverjum betur kleift að stunda
rannsóknir á norðurslóðum, sem
njóta sífellt aukinnar athygli stór-
veldanna vegna loftslagsbreytinga
og opnunar skipaleiða. Hafa þeir
meðal annars aðstöðu á eyjunni
Svalbarða.
Þessari auknu athygli fylgja
einnig hernaðarleg umsvif. Þó að
þau umsvif hafi hingað til fyrst og
fremst verið bundin við Rússland
og NATO-ríkin, óttast margir að
Kínverjar vilji gera sig gildandi á
svæðinu einnig. Það vakti nokkrar
grunsemdir Finna að einn í kín-
versku sendinefndinni kom úr kín-
verska hernum.
Finnar slógu f lugvallarsöluna
strax út af borðinu, meðal ann-
ars með vísun í Evrópureglur um
takmarkanir við erlendri f jár-
festingu. Einnig er Kemijarvi stað-
sett skammt frá Rovajarmi, sem er
stærsta stórskotaæfingasvæði Evr-
ópu.
Samkvæmt varnarmálaráðu-
neytinu kom það aldrei til greina
að hleypa erlendu ríki svo nærri því
svæði. Þar að auki er Kevijarmi ekki
fjarri rússneskum herstöðvum,
handan landamæranna, og hefði
skapað aukna spennu milli Rússa
og Kínverja. – khg
Kínverjar fengu ekki að
kaupa finnskan flugvöll
Kínverjar sýna Norðurslóðum aukinn áhuga. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
COVID-19 Smitrakningarsmáforrit
hafa gert lítið og jafnvel ekkert í
baráttu við COVID-19. Sums staðar
hafa þau meira að segja gert meira
ógagn en gagn því fólk hefur þurft
að fara í sóttkví að ástæðulausu
vegna falskra niðurstaðna. Einkum
vegna galla Bluetooth-tækninnar
sem víðast hvar hefur verið notuð.
Bluetooth-app hefur verið hann-
að fyrir Ísland og er nú í prófunum.
Ekki liggur fyrir hvenær það verður
tekið í notkun en Persónuvernd
þarf að gefa blessun sína. Bluetooth-
öppin eru þó almennt talin minni
innrás inn í einkalíf fólks en GPS
tæknin, sem notuð er í núverandi
appi sem tekið var í notkun í apríl.
Metfjöldi sótti appið, eða um 38
prósent landsmanna. Um sumarið
kom í ljós að það hjálpaði aðeins
að takmörkuðu leyti. Landlæknir
og almannavarnir mæla enn með
appinu. Fréttablaðið hefur ekki
upplýsingar um hversu margir nota
það í dag og hafa kveikt á því.
Meiri vonir eru bundnar við Blue-
tooth, sem er notað víðast í hinum
vestræna heimi en hefur ekki skilað
miklu gegn COVID-19. Helsti gall-
inn er tæknin sjálf, sem byggir á
lágri orku, staðsetur fólk ekki og
mælir illa vegalengdir og tíma.
Þetta kom glöggt fram í rannsókn
Trinity-háskólans í Dublin á þýsku,
ítölsku og svissnesku Bluetooth-
öppunum, sem birt var í lok septem-
ber. En rannsóknin var framkvæmd í
léttlestakerfi með hundruðum síma.
Þýsku og svissnesku öppin svöruðu
ekki, jafnvel þótt fólk væri vel innan
tveggja metra radíuss, og hið ítalska
svaraði í helmingi tilfella og gaf jafn-
margar falskar niðurstöður.
Þá hefur komið í ljós að Bluetooth-
tæknin getur tilkynnt fólk á sama
stað þótt það sé veggur eða gluggi á
milli þeirra og þar af leiðandi enginn
möguleiki á smiti. Þá hafa símarnir
sjálfir valdið vandræðum. Í febrúar
var greint frá því að þúsundir Nýsjá-
lendinga höfðu leitað til sóttvarna-
yfirvalda því að forritið virkaði ekki
fyrir eldri farsíma.
Fyrir utan tæknilega vankanta
hefur helsta vandamál þeirra sem
hafa tekið upp smitrakningaröpp
verið að fáir nota þau, hvort sem
það er vegna vantrausts eða annars.
Rannsókn vísindamanna við
háskólann í Glasgow frá því í
desember sýnir að app af þessum
toga getur fræðilega gefið ágætis-
raun sé notkunin að minnsta kosti
í kringum 60 prósent.
Í Bandaríkjunum hefur tæplega
helmingur ríkja tekið upp notkun
apps og notkunin er vægast sagt
lítil. Í Virginíu hafa tæplega 11 pró-
sent íbúanna hlaðið niður appi, 6
prósent í New York, 4 prósent í New
Jersey og 2,5 í Kaliforníu.
Í Bretlandi hefur notkunin verið
mun meiri, en samt aðeins 28 pró-
sent. Samkvæmt stærðfræðilegri
rannsókn á appinu í febrúar er talið
að það gæti hafa varnað 224 þúsund
manns frá smiti. Óvíst sé hins vegar
hversu margir hefðu hvort eð er
fengið tilkynningu í gegnum hefð-
bundnar rakningarleiðir.
Þá er það mjög á reiki hversu
margir fara í sóttkví eftir að hafa
fengið tilkynningu frá appinu, en
tölur sýna allt frá 12 prósentum
upp í 80.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Notkun rakningarforrita lítið hjálpað
Smitrakningarforrit, bæði Bluetooth og GPS, hafa valdið vonbrigðum vegna tæknilegra vankanta og hversu fáir hafa sótt þau. Sum
gefa falskar niðurstöður eða mæla fólk í sama rými þótt veggur sé á milli þeirra. Íslenskt Bluetooth-forrit hefur verið hannað.
Miklar vonir voru bundnar við smitrakningaröppin í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ársfundur 2021
fimmtudaginn 25. mars
Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn á Icelandair
Hótel Reykjavík Natura fimmtudaginn 25. mars 2021 kl. 17:15
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur 2020 og tryggingafræðileg athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs
3. Kynning á fjárfestingarstefnu
4. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
5. Kosning stjórnar
6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags
7. Ákvörðun um laun stjórnar
8. Önnur mál
Framboðum til stjórnar (aðalmenn) skal skila í síðasta lagi þann 18. mars 2021.
Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is.
Ársreikning og önnur gögn fyrir fundinn er að finna á heimasíðu sjóðsins.
Vegna sóttvarna er farið fram á að þeir sjóðfélagar sem ætla að mæta á staðinn
eða þeir sem mæta í umboði sjóðfélaga skrái sig fyrir kl. 13:00 þann 24. mars 2021
á www.almenni.is. Umboðsmenn skulu afhenda frumrit umboða eða skila rafrænu
umboði með fullgildri rafrænni undirritun.
Fundinum verður streymt á heimasíðu sjóðsins.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta. Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins
Nánar á:
www.almenni.is
1 0 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð