Fréttablaðið - 10.03.2021, Side 10
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Einnig væri
æskilegt að
löggjafinn
tæki af
skarið um
það með
skýrari
hætti hvort
Heilbrigðis-
eftirlit
Reykjavíkur
eigi að hafa
vald til að
ritskoða
stærstu
fjölmiðla
landsins og
setja þá á
hausinn ef
þeir hlýða
ekki.
Markvissar
aðgerðir
munu skapa
störf og
skjóta fleiri
stoðum undir
atvinnulífið.
Aðalheiður
Ámundadóttir
adalheidur @frettabladid.is
Herbergi: 3
Stærð: 136,2 fermetrar
Verð: 77,9 milljónir
F A S T E I G N A S A L A
Opið hús miðvikudaginn 10. mars kl. 17:30-18:00
Vorum að fá í sölu þessa fallegu sérhæð á vinsælum stað
ásamt bílskúr. Íbúðin er mjög skemmtileg, björt og afar
vel skipulögð, tilvalin fyrir eldri borgara. Tvö baðherbergi.
Í íbúðinni er mjög rúmgott hjónaherbergi með inngangi í
baðherbergið með góðum sturtuklefa og sauna baði.
Skógarsel 15 I 109 Reykjavík
Lárus Ómarsson | löggiltur fasteignasali
Hafið samband á nyhofn@nyhofn.is eða í síma 530 4500
Opið hús 10. mars
Þegar staðan er hvað verst er oft erfitt að koma auga á tækifærin í kringum sig. Nú er staðan þannig í atvinnumálum á Suður
nesjum að engin myndu undrast ef heimafólk sæi
aðeins svartnættið fram undan. Því fer hins vegar
fjarri og gríðarlega mikil vinna hefur farið fram
á svæðinu í að greina og meta tækifærin. Og þau
eru mýmörg. Ég fundaði með forsvarsmönnum
Reykjanesbæjar á dögunum og kynntist því frá
fyrstu hendi hve vel er haldið utan um stöðuna.
Atvinnuleysi er gríðarlegt á svæðinu, mælist
í kringum 25 prósent og kemur misilla niður
á þjóðfélagshópum. Í bænum býr hátt hlutfall
erlendra ríkisborgara og því miður hefur atvinnu
leysið bitnað illa á þeim. Ráðgjafarstofa fyrir
innflytjendur, sem tók til starfa í síðasta mánuði,
er stuðningur fyrir erlenda ríkisborgara hvar sem
er á landinu. Ég bjó það mál til frá grunni og er
stoltur yfir að það hafi náð fram að ganga því hug
myndin er góð og ég efast ekki um það að útibú
verði opnað innan tíðar í Reykjanesbæ.
Framtíðin er nefnilega björt á svæðinu. Heima
menn hafa unnið sína vinnu vel; Samband sveitar
félaga á Suðurnesjum hefur sett saman aðgerða
áætlun í atvinnumálum. Þar er tekið á ýmsum
verkefnum, stórum sem smáum, sem munu skapa
störf. Uppbygging hafna, aukning starfsemi
Vinnumálastofnunar og framkvæmdir á vegum
Isavia eru dæmi um lausnir sem þarf að einhenda
sér í, ásamt ýmsu f leiru. Gríðarlega mikilvægt er
að fara sem fyrst í þessi verkefni og ríkisstjórnin
hefur tekið frumkvæði heimamanna vel og unnið
sérstaklega að aðgerðum á svæðinu.
Tækifærin á Suðurnesjum eru ótal mörg. Með
traustri og góðri uppbyggingu, þar sem horft er
til fjölbreyttrar starfsemi, er ég sannfærður um
að toppnum í atvinnuleysi er náð. Markvissar
aðgerðir munu skapa störf og skjóta f leiri stoðum
undir atvinnulífið og styðja þannig við fjöl
breytni mannlífsins. Sókn fyrir Suðurnes er fram
undan.
Sókn fyrir Suðurnes
Kolbeinn Ótt-
arsson Proppé
þingmaður
Vinstri grænna
Gott mót
Dómsmálaráðherra þykir gera
gott mót með því að skipta Jóni
Steinari Gunnlaugssyni inn á til
þess skoða úrbætur í meðferð
sakamála. Jón hefur ítrekað
mikilvægi fyrirgefningarinnar í
erfiðum málum þannig að þessi
f létta gefur varla síðri raun
en þegar fjármálaráðherra fól
Hannesi Hólmsteini Gissurar-
syni að rannsaka bankahrunið.
Þá má skoða f leiri innáskipt-
ingar óvilhallra lykilmanna.
Kristján Loftsson gæti rann-
sakað áhrif hvalveiða, Viðar
Guðjohnsen eldri yfirfarið
jafnréttislöggjöfina og lýta-
læknirinn Elísabet Guðmunds-
dóttir gert greinargóða úttekt á
sóttvarnaaðgerðum.
Vont mót
Guðlaugur Þór Þórðarson er lík-
lega eini utanríkisráðherrann
í víðri veröld sem hefur tíma til
að mæta í hlaðvarp á borð við
Enska boltann til að ræða gengi
Liverpool. Sjálfsagt þó skemmti-
legra umræðuefni en nýleg
rauð spjöld ráðherra dóms- og
menntamála. Liverpool tapaði
sjötta heimaleiknum í röð um
helgina og skal þó ósagt látið
hvort heimfæra megi stöðumat
ráðherrans á lið hans í pólitíska
atinu: „Ég vona að eina ástæðan
fyrir því að þeir hafi haldið sig
til baka sé að þeir séu að fara að
hlaða í eitthvað í sumar.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
?
1 0 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
Á dögunum birti viðskiptavefur Fréttablaðsins frétt um söluaukningu á vindlum. Í fréttinni kom fram að vefverslunin vindill.is hefði ákveðið að lækka verð í versluninni. „Sala á Vindill.is hefur gengið vonum framar og nú
verður verð lækkað til að neytendur njóti þess,“ er haft
eftir eigandanum í fréttinni. Jafnframt er greint frá
því að Vindill undirbúi málsókn gegn íslenska ríkinu
vegna kröfu um að verslunin selji ÁTVR alla vindla
sem hún flytur til landsins og kaupi þá svo aftur með
18 prósenta álagi.
Á hverjum degi birta fjölmiðlar fréttir af viðskipt
um með vörur og þjónustu. Stundum ganga þau vel og
stundum illa. Eitt af viðfangsefnum viðskiptafrétta
manna er einmitt að taka þennan púls.
Í erindi sem Fréttablaðinu barst daginn eftir til
kynnti Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að því hefðu
borist kvartanir vegna fréttarinnar. Vísað var til
ákvæða tóbaksvarnarlaga um bann við tóbaks
auglýsingum og þess krafist að Fréttablaðið „fjarlægi
umrædda umfjöllun af vefsvæði sínu tafarlaust þann
ig að ekki þurfi að koma til frekari aðgerða.“
Ritstjórnin hunsaði þetta erindi. Þremur dögum
síðar barst ítrekun og þess var óskað að ritstjórn
staðfesti móttöku fyrra hótunarbréfs. Í símtali við
starfsmann heilbrigðiseftirlitsins síðar sama dag, kom
í ljós að eftirlitið telur fréttina vera tóbaksauglýsingu,
en samkvæmt tóbaksvarnarlögum telst auglýsing
vera „hvers konar umfjöllun í fjölmiðlum um ein
stakar vörutegundir til annars en að vara sérstaklega
við skaðsemi þeirra.“ Í símtalinu kom jafnframt fram
að heilbrigðiseftirlitið hefði heimild til að beita dag
sektum upp á hálfa milljón á dag, láti ritstjórnin ekki
að stjórn. Einnig komi til greina að vísa málinu til
lögreglu en sektarúrræðið verði líklega fyrir valinu.
Þess var getið að iðulega berist ábendingar um „svona
fréttir“ og mikil pressa sé á heilbrigðiseftirlitinu að
bregðast hratt og harkalega við. Öllum fjölmiðlum
berast reglulega beiðnir um að fréttir séu fjarlægðar. Á
ritstjórn Fréttablaðsins er óskrifuð regla að verða ekki
við slíkum beiðnum. Hafi eitthvað farið úrskeiðis við
vinnslu fréttar er hún uppfærð og lesendur upplýstir
um hverju var breytt og hvers vegna.
Þótt hvorki ritskoðun heilbrigðiseftirlitsins né
umrætt ákvæði tóbaksvarnarlaga, standist ákvæði
um tjáningarfrelsi og frelsi fjölmiðla, ákvað rit
stjórnin, eftir vikulanga yfirlegu, að taka fréttina úr
birtingu. Standi vilji löggjafans raunverulega til þess
að banna fréttir sem eru honum ekki að skapi, þurfa
þau að taka af allan vafa um það. Einnig væri æskilegt
að löggjafinn tæki af skarið um það með skýrari hætti
hvort Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur eigi að hafa vald
til að ritskoða stærstu fjölmiðla landsins og setja þá á
hausinn ef þeir hlýða ekki.
Fréttablaðið vill gjarnan taka þennan slag. En
enginn fjölmiðill á Íslandi hefur efni á að verja til
þess startgjaldi upp á 15 milljónir króna á mánuði.
Tvær spurningar brenna nú á ritstjórninni: Verður
ritskoðunargjaldið fyrir þennan leiðara 15 milljónir á
mánuði og á endanlega að ganga af frjálsri fjölmiðlun
dauðri á Íslandi?
vindill.is