Fréttablaðið - 10.03.2021, Page 13
ALLT
K Y N N I NG A R B L A Ð
MIÐVIKUDAGUR 10. mars 2021
Lilja Kjalarsdóttir er doktor í líflæknisfræði frá Bandaríkjunum og framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins SagaNatura. Hún segir það mikið atriði að fólk
þekki einkenni blöðruvandamála, enda séu þau algengari en fólk gerir sér grein fyrir. SagaPro inniheldur virkt efni úr ætihvönn sem róar blöðruna.
Falinn og oft vangreindur vandi
Blöðruvandamál eru algeng hjá fólki á öllum aldri. Ein sterkasta vísbendingin um að blaðr-
an sé ekki upp á sitt besta er þegar fólk vaknar ítrekað á nóttunni til að fara á klósettið. 2
Harry og Megan í viðtali við Opruh
Winfrey sem vakti mikla athygli.
Kjóllinn lýsir
sjálfstæði
Það var ekki eingöngu viðtalið
við Meghan Markle og Harry sem
vakti athygli um allan heim. Helstu
vefmiðlar hafa sömuleiðis fjallað
um kjólinn sem Meghan klæddist.
Hann var ekki valinn af handahófi,
segja sérfræðingar, því hann er
táknberi.
Mikilvægt tákn
Meghan var klædd svörtum kjól úr
silki. Kjóllinn er með V-hálsmáli
og skreyttur hvítum lótusblómum
yfir hægri öxl. Lótusblómið er
mikilvægt tákn í nokkrum menn-
ingarheimum. Það táknar meðal
annars sköpun og upphaf en á
sama tíma sýnir það hreinleika.
Lótusblóm er eitt af þekktustu
táknum búddisma. Sagt er að
Siddhartha prins (Búdda) hafi sem
nýfætt barn staðið upp og gengið
áfram sjö skref. Við hvert skref
spratt upp lótusblóm.
Armani-kjóll
The New York Times segir að
kjóllinn sé valinn af kostgæfni
enda muni hann verða táknmynd
þessarar sjónvarpsútsendingar
ekki síður en þau föt sem Díana
klæddist í eftirminnilegu viðtali
við BBC árið 1995.
Kjóll Meghan er frá Armani og
kostar nálægt sjö hundruð þúsund
krónum. Að hún hafi valið kjól frá
ítölskum hönnuði í stað hönnuða
frá Bretlandi eða Bandaríkjunum
er sömuleiðis tákn um sjálfstæðis-
yfirlýsingu hennar. Það sama gerði
Díana eftir skilnaðinn við Karl.
Í viðtalinu bar Meghan demant-
skreytt armband frá Cartier sem
var í eigu Díönu.
elin@frettabladid.is
Íslensk hráefni
fyrir þína liðaheilsu
Heilsan er dýrmætust
www.eylif.is
LAGER
HREINSUN
á flísum
Verð frá kr.
597 pr.m2
40-70%
afsláttur