Fréttablaðið - 10.03.2021, Page 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergs-
dóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Að sögn Lilju Kjalarsdóttur,
doktors í líflæknisfræði frá Banda-
ríkjunum og framkvæmdastjóra
líftæknifyrirtækisins SagaNatura
sem selur heilsuvörulínuna Key-
Natura á Íslandi, eru tíð þvaglát
eitthvað sem þarf ekki að sætta sig
við. Þá er lykilatriði að fólk skilji
sjálft hver einkennin eru. „Sam-
kvæmt gögnum úr bandarískum
rannsóknum vakna um 20-30% af
ungu fólki einu sinni að nóttu til
þess að hafa þvaglát. Þá er þetta
ívið algengara hjá ungum konum
en körlum. Þegar horft er á eldra
fólk, um 70 ára og eldri, vakna
um 50% tvisvar eða oftar á hverri
nóttu til að fara á klósettið. Þetta
getur stafað af ýmsum kvillum.
Hjá konum eru ofvirk blaðra,
áreynsluþvagleki og blöðrubólga
langalgengustu blöðruvandamál-
in. Hjá körlum stafa blöðruvanda-
mál hins vegar oftast af ofvirkri
blöðru, stækkuðum blöðruháls-
kirtli og þvagleka,“ segir Lilja.
Algengur vandi
„Það er staðreynd að 10% af mann-
kyninu þjáist af ofvirkri blöðru og
er hlutfallið svipað á milli kvenna
og karla. Eftir því sem fólk eldist
eykst tíðnin og eftir 65 ára aldur
glímir einn af hverjum þremur
einstaklingum við ofvirka blöðru.
Oft er um að ræða falinn vanda
og jafnvel vangreindan, þar sem
margir telja að um sé að ræða
vandamál sem gerist bara með
aldrinum og ekkert sé hægt að
gera í. Þetta er reginmisskilningur.
Þetta er vissulega vandi sem eykst
með hækkandi aldri, en það er
ekki þar með sagt að ekkert sé
hægt að gera í honum. Um er
að ræða samskiptavandamál á
milli taugakerfis og þvagblöðru.
Taugarnar gefa röng skilaboð um
að blaðran sé orðin full þó svo
að hún sé það ekki. Það útskýrir
þegar fólk vaknar á nóttunni til að
kasta þvagi, en pissar svo kannski
fáeinum dropum. Taugarnar kalla
á löngun til þess að fara á klósettið
þó svo þessi þurfi ekki. Þá þarf að
róa samskiptin á milli tauga og
blöðru einhvern veginn.“
Getur valdið kvíða og þunglyndi
Blöðruvandamál geta haft víðtæk
slæm áhrif og mun víðtækari en
margir gera sér grein fyrir. „Hvort
tveggja þunglyndi og kvíði er
algengara hjá fólki með ofvirka
blöðru en hjá öðrum. Að vakna
ítrekað á nóttunni stuðlar að
svefnleysi. Svo hefur þetta félags-
leg áhrif á fólk, því það getur verið
mikill streituvaldur að þurfa sífellt
að huga að því hvort maður komist
á salerni þegar maður fer í kvik-
myndahús, ferðalög, göngur eða
annað.“
Meðferðarúrræði
Margt getur aukið áhættuna á
blöðruvandamálum hjá fólki.
„Högg á maga eða mænuskaði
getur til dæmis haft slæm áhrif á
blöðruna. Einnig geta ýmsir sjúk-
dómar eins og MS og Parkinsons
valdið ofvirkri blöðru. Þá eru þeir
sem fá tíðar þvagfærasýkingar í
aukinni áhættu á að þróa með sér
ofvirka blöðru.“
Ýmis meðferðarúrræði eru í boði
fyrir blöðruvandamál. „Oft má
fyrirbyggja blöðruvandamál með
því að huga að lífsstílnum. Þá er
atriði að vera í heilbrigðri þyngd,
hreyfa sig reglulega, takmarka
koffín- og alkóhólinntöku, sleppa
reykingum og gera reglulegar
grindarbotnsæfingar eða kegel
æfingar. Það getur verið krefjandi
fyrir marga að halda þessu öllu í
lagi og þá getur verið gott að bæta
við náttúrulegum lausnum eins
og SagaPro. Einnig eru til lyf við
ofvirkri blöðru, sem hindra flestöll
virkni asetýlkólíns sem er tauga-
boðefni er stuðlar að samdrætti í
blöðrunni, en gegnir líka mörgum
öðrum störfum í líkamanum.
Gallinn við þau lyf er að í mörgum
tilfellum fylgja þeim algengar
aukaverkanir eins og munnþurrk-
ur, svimi, ógleði og hægðatregða.
Alvarlegustu aukaverkanirnar eru
svo slæm áhrif á heilastarfsemi.
Fólk er almennt ekki tilbúið að lifa
með þessum aukaverkunum og
því eru langflestir hættir á þessum
lyfjum innan við ári eftir að hafa
byrjað inntöku.“
Byggja á klínískum rannsóknum
Fyrir marga dugir að reiða sig alfar-
ið á lífsstílslausnir og náttúrulegar
lausnir eins og SagaPro, en að sögn
Lilju reyna um 75% þeirra sem
kljást við ofvirka blöðru einhvers
konar náttúrulega lausn, þá annað-
hvort áður en þau prófa lyf, eða
eftir. Oft leitar fólk í náttúrulegar
lausnir ef það þolir ekki aukaverk-
anir af lyfjunum en aukaverkanir
af SagaPro eru óverulegar.
Vörurnar frá KeyNatura byggja
á klínískum rannsóknum sem
tryggja virkni þeirra. „Við erum
að klára stóra klíníska rannsókn
á 200 manns með ofvirka blöðru,
bæði konum og körlum. Þetta er
ein stærsta rannsókn sem hefur
verið gerð á íslenskum fæðubótar-
efnum. Gallinn við fyrri rann-
sóknir okkar var að einblínt var á
karlmenn sem þjáðust af nætur-
þvagláti, óskilgreint hvort það
stafaði af ofvirkri blöðru, stækkuð-
um blöðruhálskirtli eða öðru. Með
frekari rannsóknum höfum við
ekki fengið sterkar vísbendingar
um að SagaPro virki á stækkaðan
blöðruhálskirtil hjá körlum. En
hins vegar eru mjög sterkar vís-
bendingar um að bætiefnið virki á
ofvirka blöðru. Einnig höfum við
fengið viðbrögð frá konum með
áreynsluþvagleka, um að SagaPro
hafi reynst þeim vel. Þá erum við
að fara í frekari rannsóknir á því
og það yrði mjög áhugavert að geta
sýnt fram á að þetta virki við því.
Þetta yrði alger umbylting fyrir
konur í íþróttum eftir barnsburð.“
Vöknuðu sjaldnar á nóttunni
SagaPro inniheldur virkt efni úr
ætihvönn, en það eru nokkur efni
í henni sem hafa slakandi áhrif á
blöðruna. „Þetta höfum við sýnt
fram á í tilraunum á blöðrumódeli.
Þá vitum við að eitt þeirra, sem við
nefnum C-08, er sérstaklega virkt.
Árið 2012 gerðum við klíníska
rannsókn þar sem við komumst
að því að með notkun SagaPro
komst meira fyrir í blöðrunni og
einstaklingar vöknuðu sjaldnar á
nóttunni. Áhrifin eru þau að það
slaknar á vöðvunum sem umlykja
blöðruna sem verður til þess að
þeir mýkjast og herpast ekki að
óþörfu.“ SagaPro virkar á ýmsa
kvilla sem tengjast blöðrunni og
það fer eftir því hvert vandamálið
er, hvenær dagsins skal taka inn
SagaPro. „Fyrir þá sem vakna oft á
nóttunni er best að taka SagaPro
inn á kvöldin. Ef vandamálið
tengist áreynsluþvagleka er betra
að taka það inn á morgnana eða á
daginn, um tveimur tímum áður
en fyrirhugað er að fara í göngur
eða hreyfingu.“
Stórt skref fyrir SagaPro
„Við höfum nú sótt um einkaleyfi
fyrir þetta tiltekna efni í æti-
hvönninni og vonumst til þess að
það verði samþykkt. Það yrði stórt
skref í útrásinni hjá SagaPro. Við
höfum gert samninga við fyrirtæki
um sölu og dreifingu á SagaPro
erlendis og vorum rétt í þessu að
klára samninga við svissneskt
lyfjafyrirtæki. Nú er SagaPro í
Bandaríkjunum, Kanada, Nýja-
Sjálandi, Svíþjóð, Finnlandi og
Sviss. Það felast gífurleg tækifæri í
að fara í útrás með sérstakt íslenskt
innihaldsefni á fæðubótar- og
náttúruvörumarkaðinn.“
Vaknar mun sjaldnar á nóttunni
Sigursteinn Steinþórsson hefur
tekið SagaPro reglulega í á sjöunda
ár en hann hefur um árabil þjáðst
af ofvirkri blöðru líkt og reyndar
stór hluti fólks glímir við. „Ég var
farinn að vakna oft á nóttunni til
að fara á klósettið, allt frá þrisvar
og upp í fimm sinnum. Þetta
er auðvitað heilmikil truflun á
djúpsvefni og fyrir vikið var ég oft
þreyttur á daginn,“ segir Sigur-
steinn.
Sigursteinn fór á eftirlaun fyrir
tveimur árum. „Síðustu 38 árin
af mínum vinnuárum starfaði ég
sem lögregluþjónn. Ég vann mikla
vaktavinnu og oft á næturvöktum.
Því var ég í nokkur ár að gera mér
grein fyrir vandanum, enda er
það þannig að þeir sem vinna á
nóttunni drekka oft koffín og aðra
drykki á óhentugum tímum miðað
við það sem eðlilegt þykir.“
Rosalegur munur
„Mér skilst að þetta sé líffræðilegt
og að með aldrinum fari þvag-
blaðran að missa mýktina og hún
gefi ekki jafnmikið eftir og áður.
Ég er orðinn 66 ára og eftir að ég
byrjaði að taka SagaPro vakna
ég núna bara einu sinni á nóttu, í
allra mesta lagi tvisvar, til að fara á
salernið. Þetta er veruleg breyting
og rosalegur munur að geta sofið
vel. Ég fæ dýpri og óslitinn svefn í
lengri tíma og vakna úthvíldur á
morgnana. Mér líður mun betur
út allan daginn og þakka það
SagaPro.“
Sigursteinn segist hafa heyrt af
SagaPro hjá fólkinu í kringum sig
sem var í sömu stöðu og hann og
hafði góða reynslu af notkun bæti-
efnisins. „Það tók mig minna en
mánuð að finna fyrir áhrifunum af
SagaPro og í dag sleppi ég ekki úr
skammti.“ Sigursteinn segist mæla
eindregið með SagaPro fyrir alla
þá sem þjást af tíðum þvaglátum.
„Fyrir fáeinum árum kom kona
sem er tengd mér fjölskyldubönd-
um í heimsókn frá Ástralíu. Hún
átti við þennan vanda að stríða að
vakna 4-5 sinnum á hverri nóttu
til að fara á klósettið. Þetta truflaði
mjög nætursvefninn og ég fékk
hana til að prufa SagaPro. Fyrstu
tvær vikurnar fann hún lítinn
sem engan mun á sér en á þriðju
vikunni var hún alsæl, enda var
hún farin að vakna mun sjaldnar á
nóttunni, þá ekki nema tvisvar.“
Ætlar að njóta sín í sumar
Sigursteinn er ánægður með þann
möguleika að geta verið í áskrift
að SagaPro. „Ég fór í áskrift um
leið og það var hægt en það finnst
mér frábær kostur. Ég átti það til
að gleyma því að kaupa nýjan
skammt þegar ég kláraði og var
snöggur að finna fyrir því þegar
bætiefnið hætti að virka. Það er
nefnilega mikið atriði að maður
taki þetta reglulega. Núna er
engin hætta á að ég gleymi að taka
skammt og eftir að ég fór að taka
SagaPro reglulega er þetta orðið
allt annað líf. Þetta kemur bara inn
um póstlúguna hjá mér mánaðar-
lega og ég tek með mér SagaPro
hvert sem ég fer. Ég hlakka til að
taka hjólhýsið út í vor. Við munum
ferðast í allt sumar og að sjálf-
sögðu verður SagaPro tekið með.
Ferðasumarið í fyrra gekk vonum
framar og við ætlum að njóta sum-
arsins 2021 til hins ýtrasta.“
Sigursteinn er
með ofvirka
blöðru og það
truflaði nætur-
svefninn að
vakna hátt í
fimm sinnum
hverja nótt til
að fara á kló-
settið. Eftir að
hann byrjaði að
taka SagaPro
vaknar hann
mun sjaldnar,
aldrei oftar en
tvisvar á nóttu.
MYND/SVAVAR
SIGURSTEINSSON
2 kynningarblað A L LT 10. mars 2021 MIÐVIKUDAGUR