Fréttablaðið - 10.03.2021, Page 22
Kaupverð bandaríska f r a mt a k s s jó ð s i n s Levine Leichtman C apit a l Pa r t ner s ( L LC P) á mei r i-hluta hlutafjár Cre-
ditinfo Group, móðurfélags Cre-
ditinfo á Íslandi, samsvarar því að
íslenska félagið sé verðmetið á allt
að 30 milljarða króna, samkvæmt
heimildum Markaðarins. Stærsti
hluthafi sjóðsins samanstendur
af af komendum stofnanda IKEA-
keðjunnar.
„Ég var í ökumannssætinu, færði
mig yfir í farþegasætið og er núna
kominn aftur í,“ segir Reynir Grét-
arsson, stofnandi Creditinfo, um
aðkomu sína að félaginu eftir söluna.
Eins og fram kom í tilkynningunni
um kaupin í gær heldur Reynir sæti
í stjórn og er jafnframt annar stærsti
hluthafi félagsins eftir söluna. Reyn-
ir, sem átti fyrir 70 prósenta hlut,
heldur eftir 35 prósenta hlut.
Kaupverðið miðar við að fyrir-
tækið sé í heild sinni metið á 20-30
milljarða króna – endanleg fjárhæð
veltur á ákveðnum fjárhagslegum
markmiðum – og má því ætla virði
hlutarins sem Reynir selur núna sé
metinn á allt að 10 milljarða.
Creditinfo sérhæfir sig í miðlun
fjárhags- og viðskiptaupplýsinga
og ráðgjöf tengdri áhættumati og
áhættustýringu fyrirtækja. Ára-
tugum saman hefur fyrirtækið
boðið gögn, áhættustýringu og
lausnir á sviði útlána til nokkurra
stærstu lánveitenda, ríkisstjórna
og seðlabanka heims. Fyrirtækið
var stofnað á Íslandi 1997 og hjá
því starfa rúmlega 400 manns í yfir
30 starfsstöðvum um allan heim.
Reynir steig til hliðar sem forstjóri
fyrir meira en þremur árum eftir að
hafa staðið í brúnni í tuttugu ár.
„Það má segja að að ferlið hafi
hafist þá vegna þess að ef þú ert
bæði eigandi og forstjóri þá geturðu
ekki selt fyrirtæki nema með því að
selja sjálfan þig með. Kaupendur
vilja ákveðinn stöðugleika,“ segir
Reynir. Fyrir um einu og hálfu ári
hófst síðan leit að kaupanda sem
tafðist vegna kórónukreppunnar.
Kaupandinn LLCP er með um 11,7
milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði
um 1.500 milljarða króna, í stýr-
ingu og hefur fjárfest í yfir 90 fyrir-
tækjum. Reynir segir að einn stærsti
hluthafinn í sjóðnum sé sænska
Kamprad-fjölskyldan, afkomendur
Ingvars Kamprad, stofnanda IKEA-
keðjunnar. „Þetta eru alvöru fjár-
festar,“ bætir Reynir við.
Saga LLCP, teygir sig 37 ár aftur í
tímann. Frá stofnun hefur sjóður-
inn haft umsjón með um það bil
11,7 milljörðum Bandaríkjadala af
stofnanafjármagni í 14 fjárfesting-
arsjóðum og hefur fjárfest í yfir 90
fyrirtækjum.
Ólíkt mörgum framtakssjóðum
sem leita bágstaddra fyrirtækja sem
fást fyrir lítið, hefur LLCP þá nálgun
að finna vel rekin fyrirtæki að sögn
Reynis. „Það verður ekki mikil
breyting. Þeir halda líklega áfram á
sömu braut og eru í raun heppilegri
eigandi en ég er. Það eru mikil tæki-
færi fólgin í því að kaupa fyrirtæki
í sama geira og sameina þau en ég
sem eigandi hef ekki fjárhagslegt
bolmagn í það.“
Í tilkynningunni um kaupin var
haft eftir Paul Randall, forstjóra
Creditinfo Group, að mikil tæki-
færi fælust í því að fá LLCP inn í
hluthafahópinn.
„Með aðkomu nýs, reynslumikils
og kröftugs fjárfestis, sem styður
við markaðssókn og vöxt fyrirtæk-
isins, verður mögulegt að styrkja
enn frekar vöruframboð okkar
á sviði áhættugreiningar og fjár-
tækni,“ sagði Randall. Hann sagði
sterka stöðu Creditinfo á bæði þró-
uðum mörkuðum og nýmörkuðum
renna stoðum undir „umtalsverða
vaxtarmöguleika“.
Creditinfo hagnaðist um 3,38
milljónir evra á árinu 2019, sem var
meira en tvöföldun frá árinu áður.
Heildartekjur Creditinfo á árinu
2019 námu um 46,7 milljónum
evra, en þar af var um tíundi hluti
vegna starfsemi í Afríku. Gera áætl-
anir fyrirtækisins ráð fyrir að tekju-
vöxtur rekstrareininga í Afríku geti
numið 30 prósentum á ári næstu
tvo áratugi. Hins vegar kom nokk-
urt bakslag í starfsemi Creditinfo í
Afríku vegna farsóttarinnar.
Mögulegt er að höfuðstöðvar
Cred itinfo verði f luttar úr landi.
Vand fundin eru íslensk fyrir-
tæki sem hafa jafn víðtæk umsvif
á erlendri grundu og Creditinfo.
Höfuðstöðvarnar eru á Höfðabakka
en minnkandi vægi starfseminnar
á Íslandi og nýtt eignarhald gæti á
endanum breytt því. „Vægi starf-
seminnar á Íslandi hefur minnkað
hægt og rólega í gegnum tíðina og
það mun væntanlega halda áfram,“
segir Reynir. Stjórnendahópur og
stefna Creditinfo á Íslandi er hins
vegar óbreytt.
Spurður um heilræði f y r ir
íslenska frumkvöðla leggur Reynir
áherslu á úthald og þolinmæði.
„Stundum sé ég Íslendinga þróa
sniðuga hugmynd, setja hana á
markað og selja síðan reksturinn
eftir fáein ár. Jafnvel fyrir nokkrar
milljónir dala. Ef ég ætti að gefa
ungum frumkvöðlum heilræði þá
væri það að halda fast í sköpunar-
verkið eins lengi og þú getur. Þá
geturðu náð langt.“
Aðspurður segist Reynir ekki
vita hvað hann ætli að taka sér fyrir
hendur. „Ætli maður verji ekki tíma
og pening í að hjálpa til að búa til
störf í þessu ástandi. Ég verð að gera
eitthvað.“ thorsteinn@frettabladid.is
Creditinfo verðmetið
á hátt í 30 milljarða
Creditinfo Group var samkvæmt heimildum verðmetið á hátt í 30 milljarða af
sjóðnum LLCP sem keypti meirihluta hlutafjár. Sænska Kamprad-fjölskyldan,
kennd við IKEA, er stærsti hluthafinn í LLCP. Höfuðstöðvarnar fari úr landi.
Reynir Grétarsson, stofnandi Creditinfo, fer með 35 prósenta hlut eftir söluna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
Ef ég ætti að gefa
ungum frumkvöðl-
um heilræði þá væri það að
halda fast í sköpunarverkið
eins lengi og þú getur.
Viðskiptavinir HS Orku hafa ekki notið góðs af verð-lækkunum raforkufram-
leiðandans að undanförnu vegna
þess að verðskrár Landsnets og
dreifiveitna hafa farið hækkandi
á þessu ári. Þetta kemur fram í
innsendu erindi HS Orku á sam-
ráðsgátt stjórnvalda vegna fyrir-
hugaðra breytinga á raforkulögum,
sem meðal annars eiga að fela í sér
breytingar á tekjumörkum fyrir-
tækja sem annast f lutning og dreif-
ingu raforku á Íslandi.
„Framleiðsla rafmagns hér á
landi er umhverfisvæn sem skiptir
máli í staðarvali þeirra fyrirtækja
sem hingað kjósa að líta. En vegna
fjarlægðar við markaði liggur for-
skot Íslands oftar en ekki í því að
verð á umhverfisvænni orku sé
samkeppnishæft í samanburði við
það sem stendur til boða í sam-
keppnislöndum okkar, eins og á
hinum Norðurlöndunum, öðrum
Evrópulöndum eða Kanada,“ segir í
erindi raforkuframleiðandans.
Raforkuverð hafi farið lækkandi
á þeim mörkuðum sem Ísland er
í samkeppni við og HS Orka hafi
brugðist við því með verðlækkun-
um. Sökum aukins kostnaðar við
f lutning og dreifingu raforku, hafi
lækkanir ekki skilað sér að fullu til
notenda. Þar með sé grafið undan
samkeppnishæfni íslenska raf-
orkumarkaðarins.
Í umsögn Norðuráls um sama
mál kemur fram að lækkun f lutn-
ingskostnaðar sé nauðsy nleg
svo Ísland geti boðið upp á sam-
keppnishæft orkuverð. „Þrátt fyrir
ábendingar Fraunhofer, Deloitte,
orkunotenda, -framleiðenda og
-seljenda, um að hér stefni í óefni er
niðurstaðan sú að lítið sem ekkert
verði að gert,“ segir í umsögn Norð-
uráls. Í umsögn Landsvirkjunar er
sambærilegt stef, en þar segir að
breyting á tekjumörkum Landsnets
þurfi að vera „marktæk“ ef treysta
eigi samkeppnisstöðu Íslands. – thg
Lægra raforkuverð skili
sér ekki til viðskiptavina
Orkuver HS Orku í Svartsengi á Reykjanesi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Kaup, sala og
samruni fyrirtækja.
kontakt@kontakt.is I 414 1200 I www.kontakt.is
FYRIRTÆKJARÁÐGJÖF
• Verðmat
• Ráðgjöf og undirbúningur
fyrir sölumeðferð
• Milliganga um fjármögnun
• Samningagerð
1 0 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN