Fréttablaðið - 10.03.2021, Page 24
Það er ekki nóg að
auka skattlagningu.
Skattar skapa ekki verð-
mæti. Verðmætin verða til
með auknum umsvifum í
fjölbreyttu atvinnulífi.
Litríkir stuðningsmenn
Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, hélt pólitískan fund með stuðningsmönnum sínum í borginni Kolkata. Sumir þeirra mættu málaðir f lokks
merkjum Bharatiya Janata Party en allavega einn lét mála andlit Modis á bringuna. Í febrúar gaf fjármálaráðherra Indlands þau fyrirheit að selja þrett
án ríkisfyrirtæki, þar af tvo banka, f lugfélag og líftryggingafélag. Ólífvænlegum fyrirtækjum sem ekki er hægt að selja verður lokað. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Skotsilfur
Eitt af því sem sífellt er fjallað um undanfarna mánuði er mikilvægi þess að efnahagslífið nái hraðri viðspyrnu. En af hverju skiptir það máli?
Hægari viðspyrna þýðir að fyrir
tækin munu ekki geta ráðið jafn
margt starfsfólk, það þýðir meira
atvinnuleysi í lengri tíma, það þýðir
að það verður ekki hægt að hækka
laun. Hægari viðspyrna þýðir að
neikvæð áhrif atvinnuleysis verða
meiri, og að þau fara að birtast
í meiri mæli í heilsufarsvanda
málum, fjárhagsvanda heimila og
svo framvegis. Áhrif þess að við
spyrnan verði hægari munu líka
birtast í auknum erfiðleikum ungs
fólks, meira atvinnuleysi, fjárhags
erfiðleikum og auknum geðrænum
vandamálum.
Allt hefur þetta þau áhrif að þörf
fyrir aukna opinbera þjónustu vel
ferðarkerfisins eykst, á tíma þar
sem stjórnmálamenn þurfa að vera
að vinna upp taprekstur ríkissjóðs.
Þörf fyrir þjónustu heilbrigðiskerf
isins eykst, halda þarf betur utan
um fólk í menntakerfinu til að koma
í veg fyrir uppflosnun úr námi, sem
er þekkt afleiðing efnahagskreppa.
Sameiginlega leiðir þetta til auk
innar hættu á því að samfélagið ráði
ekki við að búa til verðmæti til að
standa undir auknum kostnaði til
lengri tíma.
Svarið felst í að styðja við verð
mætasköpun
Fyrst verðum við að átta okkur
á því að við erum stödd í skaða
minnk u nar verkef ni. Sk aðinn
er orðinn, það mun alltaf verða
skaði. Okkar hlutverk er að haga
aðgerðum og ákvörðunum þannig
að skaði samfélagsins í heild verði
sem minnstur. Því að á endanum
snýst þetta alltaf um að verja lífs
kjör þjóðarinnar í heild, að tryggja
að fólk hafi vinnu, að verja kaup
mátt fólks, að sjá til þess að lífskjör
þjóðarinnar skerðist ekki til lang
frama vegna tímabundins kreppu
ástands.
Ef viðspyrnan verður hægari en
möguleiki er á, eykst heildarskaði
samfélagsins. Skynsamlegasta
leiðin til að takmarka skaðann, og
í raun eina leiðin sem er í boði, er
að hraða viðspyrnunni, auka verð
mætasköpun eins hratt og hægt er.
Sjá til þess að fyrirtæki geti tekið
hratt við sér, ráðið fleira fólk og fyrr,
búið til meiri verðmæti hraðar og
skilað tekjum í opinbera sjóði.
Það er ekki nóg að auka skatt
lagningu. Skattar skapa ekki verð
mæti. Verðmætin verða til með
auknum umsvifum í fjölbreyttu
atvinnulífi. En það gerist ekki af
sjálfu sér. Stuðnings er þörf.
Rekstrarumhverfi og samkeppn
ishæfni eru ekki bara orð á blaði
Til þess að atvinnulífið geti búið
til þau auknu verðmæti sem þarf til
að verja lífskjörin, nógu hratt til að
minnka skaðann eins og hægt er,
þurfa stjórnvöld að skapa aðstæður
til þess. Rekstrarumhverfi íslenskra
fyrirtækja er afar erfitt. Á því þarf
að gera breytingar, annars mun of
hár kostnaður og f lækjur í rekstri
hamla atvinnutækifærum og verð
mætasköpun. Það þarf að gera
breytingar til að bæta samkeppnis
hæfni íslenskra fyrirtækja, annars
mun léleg samkeppnishæfni hamla
atvinnutækifærum og verðmæta
sköpun. Og það þarf að gera þetta
í alvörunni og gera það hratt, ekki
skipa nefndir.
Ferðaþjónustan er sú útflutnings
atvinnugrein sem getur tekið hrað
ast við sér þegar aðstæður skapast
á ný. Verið fljót að ráða fólk í vinnu,
verið f ljót að búa til tekjur fyrir
samfélagið. Þess vegna er augljóst að
það hvernig stjórnmálaflokkarnir
ætla að styðja við hraða viðspyrnu
ferðaþjónustunnar – og þar með
hraða viðspyrnu efnahagslífsins,
er ein stærsta spurning komandi
kosninga. Hvernig verður rekstr
arumhverfið lagfært? Ekki hvort.
Hvernig verður samkeppnishæfni
greinarinnar færð til betri vegar?
Ekki hvort.
Hindranir á vegi ferðaþjónustu
skapa hættu fyrir alla
Það er eðlilegt að fjölmiðlar og
opinber umræða um ferðaþjónustu
snúist mikið til um næsta sumar og
mögulega af komu greinarinnar
á næstu mánuðum. En í raun ætti
samfélagið að vera að ræða um
það hvernig hægt er að tryggja að
þessi atvinnugrein geti áfram verið
drifkraftur verðmætasköpunar og
atvinnuþróunar um allt land næstu
tíu árin, hvernig við tryggjum að
hún hafi áfram jafn jákvæð áhrif
á stöðugleika, efnahagsþróun og
atvinnutækifæri og hún hafði síð
ustu tíu ár.
Þá spratt ferðaþjónustan upp af
sjálfri sér og samfélagið hljóp á eftir.
Núna þarf samfélagið að hlaupa á
undan og ryðja hindrunum úr vegi.
Það hversu hratt er hlaupið ræður
því hvað skaðinn verður að endingu
stór.
Hægari viðspyrna, verri lífskjör
Jóhannes Þór
Skúlason, fram-
kvæmdastjóri
Samtaka ferða-
þjónustunnar
Þéttari varnir
Það fór ekki mikið
fyrir tilkynning-
unni sem ASÍ og
SA sendu frá sér
fyrir helgi. Þar
var greint frá því
að samtökin hefðu
gert breytingar á kjara-
samningi aðila um lífeyrismál sem
miða að því að árétta sjálfstæði
stjórnarmanna í lífeyrissjóðum.
Eftir breytingarnar er tilnefningar-
aðilum heimilt að afturkalla um-
boð stjórnarmanns í lífeyrissjóði
á grundvelli laga og samþykkta
lífeyrissjóðs. Tilkynna þarf stjórn
sjóðsins með formlegum hætti
rökstudda ákvörðum með tilvísun
í viðeigandi lagaákvæði, sam-
þykktir og reglur. Síðasta sumar
lýsti Ásgeir Jónsson seðlabanka-
stjóri því yfir að hann myndi beita
sér fyrir því að sjálfstæði stjórnar-
manna yrði tryggt til frambúðar.
Tilefnið var,tilraunir VR til að hafa
afskipti af ákvörðun LIVE um þátt-
töku í hlutafjárútboði Icelandair
þar sem hótað var að afturkalla
umboð þeirra stjórnarmanna sem
færu gegn tilmælum VR. Ólík-
legt er að verkalýðsforystan vilji
flagga því sérstaklega að þessum
breytingum hafi verið náð í gegn.
Nýr formaður
Breytingar verða á stjórn Marels
á aðalfundi félagsins í
næstu viku þegar
Ásthildur Ot-
harsdóttir, sem
hefur verið for-
maður stjórnar
frá 2013, hverfur
á braut en Svafa
Grönfeldt, sem
á sæti í stjórnum Össurar og
Icelandair, kemur ný í stjórnina.
Talið er næsta víst að Arnar Þór
Másson muni taka við stjórnar-
formennsku í félaginu eftir
aðalfundinn en hann hefur setið
í stjórn Marels samfellt frá árinu
2001. Arnar Þór er barnabarn
Sigurðar Egilssonar, sem stofnaði
fyrirtækið Sigurplast og var einn
af þeim fyrstu sem keyptu hluta-
bréf í Marel, en fjölskylda hans fer
í dag með samanlagt um tveggja
prósenta hlut í félaginu, sem er
metinn á um 14 milljarða króna.
Af sem áður var
Þegar til stóð að taka upp þrefalda
skimum á landamærum sagði
Þórólfur Guðnason, sóttvarna-
læknir, að ekki væri hægt að halda
því fram að aðgerðir
væru strangar.
„Ef eitthvað er
þá held ég að
aðgerðir hér
séu með þeim
vægari í Evrópu,“
sagði Þórólfur
á upplýsingafundi
þann 18. febrúar, degi áður en
núgildandi fyrirkomulag tók gildi.
Tæpum þremur vikum síðar, þann
4. mars, var sami maður spurður
hvort dæmi væru um það erlendis
að farþegar framvísuðu neikvæð-
um PCR-prófum greindust svo
með COVID-19 á landamærum.
Sóttvarnalæknir hafði ekki svör
við því, enda væri fyrirkomulagið
hér á landi strangara en víðast
hvar annars staðar.
1 0 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN