Fréttablaðið - 10.03.2021, Side 25
Ég bjó í Boston í
mörg ár. Þar er mun
kaldara en á Íslandi.
Diego A reces va r ráðinn f y r ir um hálfu ári sem fram-kvæmdastjóri sölu- og mark aðsmála hjá DT Equipment.
DTE þróar tækni sem greinir f ljót-
andi málmsýni og við það styttist
greiningartími á efnainnihaldi
framleiðslunnar verulega. „Það
er spennandi að starfa fyrir ungt
sprotafyrirtæki sem mun umbylta
rekstri álvera,“ segir hann.
Areces er frá Argentínu en f lutti
til Bandaríkjanna árið 1998 og er
með bandarískan ríkisborgararétt.
Hann bjó í Boston þar til hann flutti
til Kína árið 2011. Árið 2017 f lutti
hann til Kóreu og bjó þar til ársins
2020 er hann flutti til San Fransisco.
Hvernig er fyrir mann frá Arg-
entínu að f lytja til Íslands. Er ekki
alltof kalt hér?
Ég bjó í Boston í mörg ár. Þar
er mun kaldara en á Íslandi. Það
verður líka kalt í Kóreu. Ég set kuld-
ann ekki fyrir mig en hef nokkrar
áhyggjur af myrkrinu. En ég er svo
heppinn að ég get bætt upp fyrir það
með ferðalögum.
Hver er bakgrunnur þinn?
Ég hef verið í leiðtogahlutverki í
viðskiptalífinu undanfarin 25 ár á
alþjóðavettvangi, aðallega í iðnað-
ar- og orkugeiranum. Ég hef einkum
unnið að uppbyggingu, stækkun og
breytingastjórnun innan alþjóð-
legra fyrirtækja – og oft að öllum
þessum þáttum samhliða. Segja
má að ég hafi tekið þátt í fjórðu iðn-
byltingunni frá upphafi þar sem ég
leiddi innleiðingu nettengds stýri-
búnaðar fyrir Schneider Electric í
upphafi aldarinnar.
Hvers vegna ákvaðst þú að ganga
til liðs við DTE?
Það sem drífur mig áfram er að
sjá skýran tilgang með vinnu minni
og sérstaklega hef ég leitast við að
tengja framfarir í tækni við aukna
sjálf bærni, öryggi, skilvirkni og
verðmætasköpun. Þessir þættir
eru einmitt kjarninn í starfsemi
DTE. Innan fyrirtækisins starfar
framúrskarandi hópur fólks og ég
lít svo á að fyrirtækið búi yfir mikl-
um möguleikum til nýsköpunar
og vaxtar. Ísland er þekkt alþjóð-
lega sem brautryðjandi í sjálf bærri
orkuframleiðslu og hér er mikið af
hæfu fólki sem jafnframt hefur hlýtt
viðmót og hefur tekið mér opnum
örmum. Allir þessir þættir urðu til
þess að ég ákvað að taka við starfi
framkvæmdastjóra sölu- og mark-
aðsmála hjá DTE.
Hvað getur þú sagt okkur um
stöðu Íslands þegar kemur að tækni-
þróun?
Fyrir fram vissi ég ekki alveg við
hverju ég átti að búast á Íslandi en
ég dáist að því háa menntunar-
stigi, þeirri tæknilegu færni og
þeim hæfileikum til nýsköpunar
sem ég hef upplifað hérlendis. Á
Íslandi er spennandi sprotaum-
hverfi og einstakar aðstæður til að
prófa og sannreyna nýjar tækni-
lausnir í raunumhverfi í nánu og
traustu samstarfi við viðskiptavini
og birgja, með virkum stuðningi
og þátttöku háskóla og opinberra
rannsóknastofnana.
Við hjá DTE erum ánægð með
að vera hluti af íslenska nýsköpun-
arumhverfinu og að geta lagt okkar
lóð á vogarskálarnar í að breyta
verkferlum í iðnaði, bæði hér á landi
og erlendis. Ísland er mjög hentugur
staður fyrir sprotafyrirtæki eins
og DTE, sérstaklega þegar haft er
í huga að Ísland er annað stærsta
álframleiðsluland í Evrópu á eftir
Noregi. Samvinna DTE við bæði
Norðurál og Rio Tinto ISAL hefur
verið ómetanleg fyrir vöxt og þróun
fyrirtækisins. Starfsemi DTE hefur
þar að auki margvísleg hliðaráhrif
út í íslenskt atvinnulíf.
Hver eru næstu skref fyrir DTE?
Til skemmri tíma verður áhersla
lögð á að halda áfram vinnu við
að sannreyna tækni fyrirtækisins
á verksmiðjugólfinu í samstarfi
við viðskiptavini í álframleiðslu,
álblöndun og álendurvinnslu, sam-
hliða því að byggja upp net sam-
starfsaðila um allan heim, auk þess
að prófa tæknina fyrir aðra málma
og byggja upp innviði fyrirtækisins
til að takast á við aukna framleiðslu
og sölu á árinu 2022. Við munum
áfram vinna náið með öðrum
fyrirtækjum hérlendis og treystum
á að stjórnvöld og aðrir hagaðilar
haldi áfram að styðja við sprota- og
nýsköpunarumhverfið.
Liður í þessu ferli er að ráða fleira
starfsfólk, en við erum um þessar
mundir að leita að drífandi og
metnaðarfullu fólki í nokkrar nýjar
stöður hjá okkur. Þetta eru spenn-
andi tímar.
Hver verða þín næstu skref?
Ég er einnig í þann mund að flytj-
ast búferlum til Íslands og hluti af
tíma mínum næstu vikurnar mun
af þeim sökum fara í að aðlagast
betur íslensku samfélagi og læra
meira um sögu þess og menningu,
auk þess að njóta hinnar mögnuðu
náttúru landsins og samskiptanna
við fólkið sem hér býr.
Argentínumaður flytur til Íslands
„Ég hef verið í leiðtogahlutverki í viðskiptalífinu undanfarin 25 ár,“ segir Diego Areces. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Svipmynd
Diego Areces
Menntun:
Meistaragráða í rafmagnsverkfræði
frá Buenos Aires-háskóla og CSS í
stjórnun frá Harvard.
Störf:
Framkvæmdastjóri sölu- og
markaðsmála hjá DT Equipment frá
nóvember. Starfaði hjá Schneider
Electric samsteypunni frá 2000
til 2020 meðal annars sem fram-
kvæmdastjóri námu-, jarðefna- og
málmsviðs, sem aðstoðarfram-
kvæmdastjóri stafrænna og IoT
lausna og sem yfirmaður miðstöðv-
ar fyrir sjálfvirkni í iðnaði. Starfaði í
Peking, Boston og Seúl.
Fjölskylda:
Kvæntur og á tvo uppkomna syni
sem vinna fyrir tæknifyrirtæki í
Bandaríkjunum, annar býr í Atlanta
og hinn í Chicago.
Það dylst fáum að mannkynið stendur frammi fyrir gríðar-miklum áskorunum á kom-
andi áratugum. Hnattræn hlýnun,
f jölgun mannkyns, hnignandi
vistkerfi og þverrandi náttúruauð-
lindir valda því að við þurfum að
gera miklar breytingar á því hvern-
ig við högum lífi okkar til fram-
búðar. Tækniframfarir og hugarfar
eru mikilvægar forsendur þeirra
breytinga sem þurfa að eiga sér stað
og það verða umfram allt fyrirtæki
sem munu knýja þær breytingar. Því
er ábyrgð fyrirtækja og stjórnenda
þeirra mikil en tækifærin um leið
ótæmandi.
Stjórnendur þurfa að aðlaga
sig hratt að auknum kröfum um
gagnsæi og upplýsingagjöf. Það er
ekki nóg að hugsa eingöngu um hag
eigenda, heldur allra haghafa. Hag-
hafarnir eru eigendur, starfsmenn,
viðskiptamenn og það samfélag sem
fyrirtækið er hluti af. Tilgangur og
stefna fyrirtækja þarf að vera skil-
greind út frá þörfum allra haghafa.
Viðhorf til fyrirtækja og mat á
frammistöðu þeirra mun í síaukn-
um mæli mótast af því hvernig þeim
tekst að sýna fram á að þau séu í
reynd að stuðla að betra samfélagi
og hafi hag allra haghafa að leiðar-
ljósi. Þeim fyrirtækjum sem tekst
það mun vegna betur en hinum við
að laða til sín fjármagn, að ráða til
sín og halda í bestu starfsmennina
og að byggja sterkt samband við við-
skiptavini sína, stjórnvöld og sam-
félagið allt.
Stjórnendur verða að setja sam-
félagslega ábyrgð fyrirtækja sinna
og þátttöku þeirra í hringrásar-
hagkerfinu á oddinn. Þeir sem hafa
ekki gert það nú þegar eiga á hættu
að heltast úr lestinni. Þeir sem þegar
hafa hafið vegferðina við að breyta
fyrirtækjum sínum með áherslu á
umhverfið, stjórnarhætti og sam-
félagið þurfa að bæta í og gera enn
betur. Ástæðan er einföld: Það má
engan tíma missa. Til þess að ná að
þróa nýja tækni, bæta umgengni
okkar við náttúruna og breyta
neysluvenjum jarðarbúa þann-
ig að raunhæft sé að ná til dæmis
markmiðum Parísarsamkomu-
lagsins höfum við aðeins 10 ár til
stefnu. Þessi 10 ár þurfa að vera ár
framkvæmda, ekki undirbúnings.
Það hefur orðið vitundarvakning
á síðustu 2-3 árum hvað þessi mál
varðar, en miklu betur má ef duga
skal. Ábyrgð stjórnenda er mikil og
reynir mest á þá sem leiðtoga við að
innleiða þær breytingar sem þörf
er á.
Verkefnin sem mannkynið stend-
ur frammi fyrir eru vissulega stór og
krefjandi. En þeim fylgja líka gríðar-
leg tækifæri. Þróa þarf nýja tækni,
nýjar framleiðslu aðferðir, nýjar leið-
ir til samskipta og svo mætti lengi
telja. Þeir leiðtogar og stjórnendur
fyrirtækja sem einblína á tækifærin
sem þessi mikilvægu verkefni kalla
á, munu verða lykilþátttakendur í að
byggja upp sjálfbæra framtíð, betri
framtíð fyrir alla haghafa. Fyrirtæki
sem verða svo heppin að hafa þessa
stjórnendur innanborðs horfa fram
á bjarta tíma.
Stjórnendur nýrra tíma
Sæmundur Sæ-
mundsson
stjórnarmaður
hjá Festu miðstöð
um samfélags-
ábyrgð og sjálf-
bærni
Viðhorf til fyrir-
tækja og mat á
frammistöðu þeirra mun í
síauknum mæli mótast af
því hvernig þeim tekst að
sýna fram á að þau séu í
reynd að stuðla að betra
samfélagi og hafi hag allra
haghafa að leiðarljósi.
11M I Ð V I K U D A G U R 1 0 . M A R S 2 0 2 1 MARKAÐURINN