Fréttablaðið - 10.03.2021, Síða 26
Aðal málið er hvenær við
get um opnað okk ar landa
mæri. Það virðist vera ein hvern
veg inn al gjört klúður hér á landi í
þess um [bólusetningarmál um].
Maður ótt ast að helstu
markaðir verði „rea dy“
en við ekki „rea dy“.
Steinn Logi Björnsson,
frambjóðandi í stjórn
Icelandair
04.03.2021
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 10. mars 2021FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
SKOÐUN
Rétt fyrir síðustu áramót var greint frá nýrri rannsókn á upplifun stjórnenda á
áhrifum jafnlaunavottunar. Niður-
stöðurnar voru í senn athyglisverð-
ar og fyrirsjáanlegar. Rannsóknin
byggði á viðtölum við stjórnendur
hjá fyrirtækjum og stofnunum og
var upplifun flestra viðmælenda sú
að vottunin hefði að einhverju leyti
önnur áhrif en markmiðið var með
lagasetningu hennar. Hægt væri að
uppfylla skilyrði jafnlaunavottunar
þótt kynbundinn launamunur væri
til staðar.
Það er ekki nóg með að jafn-
launavottunin sé gagnslaust tól,
eða „tálsýn“, eins og sumir viðmæl-
endur komust að orði, heldur er
hún beinlínis íþyngjandi fyrir bæði
atvinnurekendur og launþega, en á
ólíkan hátt. Fyrir atvinnurekendur
felur jafnlaunavottunin í sér „aukið
skrifræði“ og „tilfærslu ákvörðun-
arvalds“ til miðlægra stjórnenda og
vottunaraðila. Óvissan sem fylgir
reglulegum úttektum vottunarað-
ila gerir atvinnurekendum erfiðara
fyrir að bregðast við ef starfsmaður
fær betra tilboð annars staðar.
Sumir stjórnendur viðurkenndu
undir nafnleysi að þeir nýttu
vottunina sem yfirvarp til þess að
komast auðveldlega hjá því að veita
starfsfólki launahækkun. Göfuga
jafnlaunavottunin getur þannig
nýst atvinnurekendum til þess að
halda launum niðri. Eflaust má
finna vísindaskáldskap frá síðustu
öld þar sem dystópískri sýn á
framtíð kapítalismans er lýst með
svipuðum hætti. Orðin sem stjórn-
endur nota til þess að lýsa jafn-
launavottuninni eru áfellisdómur
yfir lagasetningunni sem þing-
flokkur Viðreisnar stóð stoltur að.
En rannsóknin fékk litla athygli í
fjölmiðlum og ekki þótti ástæða til
þess að spyrja þingmenn flokksins,
sem er tíðrætt um jafnrétti og við-
skiptafrelsi, hvað þeim þætti um þá
skoðun stjórnenda að jafnlauna-
vottunin væri gagnslaus fyrir jafn-
rétti og íþyngjandi fyrir atvinnu-
lífið. Raunar er þetta vandamál
sem einkennir ákvarðanatöku
í stjórnmálum. Kostnaðurinn
sem hlýst af ákvörðunum dreifist
á marga og er oft dulinn. Það er
því lítill hvati fyrir þá sem greiða
kostnaðinn til að hópa sig saman og
mótmæla ákvörðuninni. Ábatinn
dreifist hins vegar á fáa sem hafa
mikinn hag af því að viðhalda
óbreyttu ástandi. Í þessu tilfelli eru
það vottunarstofurnar.
Í lok nóvember höfðu 62 prósent
þeirra fyrirtækja sem skylt er að
innleiða jafnlaunastefnu lokið
innleiðingunni. Öllum fyrir-
tækjum sem hafa 25 starfsmenn að
jafnaði eða fleiri er skylt að innleiða
jafnlaunastaðal stjórnvalda fyrir
lok árs 2022. Ljóst er að jafnréttis-
iðnaðurinn á heilmikið inni þó að
ávinningur samfélagsins af þessari
vegferð sé í besta falli óljós.
Vonlaus vottun
Vægi ríkisskuldabréfa og ríkisvíxla í eigna-safni samtryggingardeilda lífeyrissjóða minnkaði um tæp þrjú prósentustig á árinu
2020. Þetta kemur fram í upplýsingum um heildar-
eignir lífeyrissjóða sem Fjármálaeftirlitið hefur
birt.
Ríkisbréfin námu ríf lega 22 prósentum af eigna-
safni samtryggingardeilda sjóðanna í lok mars á
síðasta ári. Hlutfallið fór minnkandi yfir árið og var
komið niður í 19,5 prósent í árslok. Vægi hlutabréfa-
eignar jókst hins vegar úr tæpum 15 prósentum upp
í 17,6 prósent.
Lífeyrissparnaður landsmanna nam samtals
rúmlega 6.000 milljörðum við árslok 2020 og
skiptist niður á 5.119 milljarða króna í samtrygg-
ingadeildum, 595 milljarða hjá séreignardeildum og
247 milljarða hjá öðrum innlendum vörsluaðilum
séreignarsparnaðar.
Lífeyriseignir landsmanna hækkuðu um 773
milljarða króna á árinu og nema nú rúmlega tvö-
faldri landsframleiðslu. Hækkun erlendra eigna,
sem eru nú 35 prósent af öllu eignasafni lífeyris-
sjóðakerfisins, nam meira en helmingi af hækkun
eignasafnsins. – þfh
Vægi ríkisbréfa komið undir 20%
21. mars kl. 20.00
Eldborg Hörpu
GESTASÖNGVARAR
Ellen Kristjánsdóttir
Jón Jónsson
Sigríður Thorlacius
Sigurður Guðmundsson
STJÓRNANDI & KYNNIR
Sigurður Flosason
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000
Sterkari saman
í sátt við umhverfið