Fréttablaðið - 10.03.2021, Qupperneq 27
Árið 2016 kynnti
kínverska ríkis-
stjórnin áætlun til að
draga úr kolefnislosun
sem fól meðal annars í
sér að minnka kjöt-
neyslu Kínverja um
50%.
Pálína Sigurlaug Jónsdóttir hóf
að taka inn túrmerik- og fjalla-
grasablönduna frá ICEHERBS
á síðasta ári. Hún segir áhrifin
hafa verið gífurlega jákvæð
og hyggst taka hana inn um
ókomna framtíð.
Pálína er 73 ára ellilífeyrisþegi og
starfaði sem sjúkraliði. „Ég hætti
að vinna fyrir tíu árum vegna slit-
og vefjagigtar. Ég hef verið að prufa
ýmis efni sem hafa dugað misvel
en ég er með virkilegt ofnæmi fyrir
rækjuskel svo ég get ekki tekið inn
hvað sem er. Það var svo systir mín
sem benti mér á vöruna í október
síðastliðnum.“
Ákvað að slá til
Pálína segir þetta hafa verið sín
fyrstu kynni af túrmerik. „Eftir að
systir mín benti mér á þetta fór ég
að lesa mér til um túrmerik og sá
að það var bólgueyðandi. Ég ákvað
því að slá til.“
ICEHERBS býður upp á tvær
gerðir túmerikblandna. Önnur
er sterkari og inniheldur svartan
pipar sem eykur upptöku túmeriks
margfalt en hin er mildari og
inniheldur túmerik ásamt fjalla-
grösum og er það blandan sem
Pálína tekur inn. „Ég tek blönduna
sem er með fjallagrösum þar sem
ég er með ofnæmi fyrir svörtum
pipar. Þetta eru tvö hylki sem ég
tek inn á morgnana.“
Pálína segir ávinninginn af
blöndunni hafa verið gríðarlegan
og fjölskylda hennar nýtur ekki
síður góðs af. „Ég er með slit- og
vefjagigt í höndum og fingrum og
þetta virkar andskoti vel á mig. Ég
prjóna mikið eða reyni það og eftir
að ég fór að taka þetta inn þá hef ég
sjaldan prjónað jafn mikið. Ég er
búin að vera að prjóna á fullorðin
barnabörn og maka þeirra og það
eru allir ákaflega ánægðir með það
sem þeir hafa fengið.“
Tengdadóttirin himinlifandi
Pálína lofar vöruna og greinir
frá því að blandan hafi enn
fremur haft jákvæð áhrif á fjöl-
skyldumeðlimi sína. „Ég mæli
alveg hiklaust með þessari vöru.
Tengdadóttir mín og sonur eru
líka farin að taka þetta inn en hún
er líka vefjagigtarsjúklingur sem
labbar mjög mikið eða um 10-15
kílómetra á dag. Hún tekur inn
sterkari blönduna sem er með
svörtum pipar, ásamt með rauð-
rófuhylkjunum og magnesíum frá
ICEHERBS og þetta heldur henni
gjörsamlega gangandi.“
Pálína er einnig nýbyrjuð að
taka inn Húð, hár og neglur blönd-
una frá ICEHERBS og segist strax
upplifa mikinn mun á líðan sinni.
„Ég er á fyrsta glasinu og er þegar
farið að líða mun léttara, kannski
er það bara sólin og snjóleysið en
ég finn fyrir meiri þægindatilfinn-
ingu.“
Árangursríkar blöndur
Túmerik hefur verið notað í þús-
undir ára til þess að vinna gegn
ýmsum bólgum og sjúkdómum en
virka efnið, kúrkúmín, hefur sterk
bólgueyðandi og andoxandi áhrif.
Meðal kvilla sem túmerik hefur
reynst vel gegn má nefna gulu,
uppþembu og vindgang ásamt því
það það getur lækkað blóðfitu og
blóðsykur.
Þá hafa bólgueyðandi eigin-
leikar túmeriks gefið sérstaklega
góða raun gegn gigtarsjúkdómum
og liðverkjum auk þess sem það
örvar blóðflæði og hefur góð áhrif
á húðvandamál og sár.
Í sterku blöndunni er svartur
pipar sem margfaldar upptöku
túrmeriks en einnig er í boði
mildari blanda fyrir þá sem ekki
þola pipar. Báðar blöndurnar inni-
halda fjallagrös en virkni þeirrar
lækningarjurtar hefur gefið henni
viðurnefnið ginseng Íslands. Í
fjallagrösum er að finna svokall-
aðar betaglúkantrefjar sem eru
taldar aðstoða við þyngdartap,
draga úr bjúg, bæta meltingu og
styrkja þarmana, sér í lagi ristilinn.
Þau hafa meðal annars reynst
árangursrík gegn slímmyndun og
óæskilegum bakteríum.
Fjallagrösin gera ICEHERBS-
blönduna að ofurblöndu en þau
hafa öldum saman verið notuð
sem náttúruleg og viðurkennd
lækningajurt á Íslandi. Þau eru rík
að steinefnum og eru talin auka
skilvirkni í upptöku næringarefna
sem gera bæði innihaldsefnin
sterkari saman.
Íslensk og kröftug bætiefni
ICEHERBS er íslenskt fyrirtæki
sem leggur mikla áherslu á að
framleiða hrein og náttúruleg
bætiefni. Lögð er gríðarleg áhersla
á að vörur ICEHERBS nýtist
viðskiptavinum vel, að virknin
skili sér í réttum blöndum og að
eiginleikar efnanna viðhaldi sér að
fullu. Gríðarleg áhersla er lögð á að
vörurnar innihaldi engin óþarfa
fylliefni og eru vörurnar fram-
leiddar hér á landi.
ICEHERBS fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum, apótekum og
heilsuvöruverslunum. Sjá nánar á
iceherbs.is.
Hef sjaldan prjónað jafn mikið
Pálína er alsæl
með túrmerik-
blönduna frá
ICEHERBS sem
hún segir hafa
reynst vel gegn
slit- og vefjagigt
í höndum og
fingrum. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/AUÐUNN
Aukin kjötneysla hefur lengi
fylgt aukinni velmegun Kínverja
en nú eru staðgenglar kjöts að
verða vinsælli. Ríkisstjórnin
vill minnka kjötneyslu vegna
umhverfisverndarsjónarmiða
og margir óttast farsóttir sem
tengjast dýrahaldi.
oddurfreyr@frettabladid.is
Staðgenglar kjöts eru að byrja að
ná vinsældum í Kína eins og svo
víða annars staðar. Þessi þróun
gengur í berhögg við það sem
á undan hefur gengið, en árum
saman hefur kjötneysla verið að
aukast þar í landi og verið stöðu-
tákn vaxandi millistéttar. The
Guardian fjallaði nýverið um
stöðuna á þessum markaði.
Kínverjar borða enn 28% af öllu
kjöti heims og helminginn af öllu
svínakjötinu, en kjötmarkaður
landsins er metinn á tæplega átta
þúsund milljarða króna. Stað-
genglar kjöts úr plöntuafurðum
eru samt sem áður að ná auknum
vinsældum þar í landi hjá nýrri
kynslóð neytenda sem hefur
áhyggjur af smitsjúkdómum sem
geta fylgt dýrahaldi, svo sem
kórónavírus.
Í stærstu borgum Kína má finna
sífellt stærri hópa fólks sem sneiða
hjá kjötafurðum. Samkvæmt
skýrslu frá árinu 2018 frá samtök-
unum The Good Food Institute,
sem eru ekki rekin í hagnaðar-
skyni og styðja að staðgenglar
kjöts úr plöntuafurðum taki við
af hefðbundnum landbúnaðar-
vörum, er markaður þessara kjöt-
staðgengla tæplega 120 milljarða
króna virði í Kína og gert ráð fyrir
að hann vaxi um 20-25% á ári.
Vildu minnka kjötneyslu
Aukin kjötneysla hefur fylgt auk-
inni velmegun í Kína. Á sjöunda
áratug borðaði hver Kínverji að
meðaltali fimm kíló af kjöti á ári,
á seinni hluta áttunda áratugarins
var sú tala svo komin upp í 20 kíló
og árið 2015 var neyslan orðin 48
kíló.
Árið 2016 kynnti kínverska
ríkisstjórnin áætlun til að draga úr
kolefnislosun sem fól meðal annars
í sér að minnka kjötneyslu Kínverja
um 50% og fólk var hvatt til að
borða bara 40-75 grömm af kjöti á
dag. En þessari stefnu hefur ekki
verið fylgt eftir af krafti. Forseti
landsins, Xi Jinping, setti hins vegar
í gang átak síðasta haust sem snýst
um að minnka matarsóun í Kína,
en um 40% matvæla enda í ruslinu.
Hugsanlega vill ríkisstjórnin
ekki styggja landa sína með því að
biðja þá um að minnka kjötneysl-
una, en staðgenglar kjöts gætu
verið góð lausn í staðinn.
Verðið er vandamál
Nokkrar af stærstu alþjóðlegu
keðjunum voru fljótar að veðja á
kjötstaðgengla. KFC, Burger King
og Starbucks eru þegar byrjuð að
selja slíkar vörur í Kína. En innlend
fyrirtæki eru líka að spretta upp og
þau vonast eftir að fá stuðning frá
ríkinu. Þau vonast til að yfirvöld
fái fólk til að minnka kjötneysluna
með því að hvetja til neyslu kjöt-
staðgengla. Þá gæti fólk haldið í
þann lúxus að borða kjöt á sama
tíma og kolefnislosun minnkar.
OmniFoods var til dæmis
stofnað í Hong Kong árið 2018,
en það vonast til að hefja starf-
semi í þrettán löndum á þessu
ári. Fyrirtækið vill lækka verðið á
kjötstaðgenglum með innlendri
verksmiðju, en hátt verð er enn eitt
af því sem fælir hina hagsýnu kín-
versku neytendur frá.
Franklin Yao, framkvæmda-
stjóri Z-Rou, sem framleiðir hakk
úr plöntuafurðum, viðurkennir að
iðnaðurinn sé enn mjög lítill í Kína
en telur að kjötstaðgenglar muni
mjög fljótlega njóta almennra
vinsælda. Hann segir að kínverskir
neytendur séu að leita að sjálf-
bærari vörum og að þó að fólk þar
í landi tengi kjötneyslu almennt
ekki við neikvæð umhverfisáhrif
sé áhugi á umhverfisvernd og Kín-
verjar læri hratt.
Kjötstaðgenglar ná vinsældum í Kína
Í Kína býður Starbucks-keðjan upp á mat sem inniheldur kjötstaðgengla en engar dýraafurðir. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 10. mars 2021