Fréttablaðið - 10.03.2021, Qupperneq 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Sigríður Arnardóttir, sjálf Sirrý, sem með rökum má verja að hafi á tíma-bili verið svar Íslands við Opruh Winfrey, segir stallsystur sína hafa verið
frábæra í umtöluðu og vægast sagt
eldfimu sjónvarpsviðtali við Meg-
han Markle og hann Harry sem var
áður prins.
„Fyrir það fyrsta finnst mér að
maður verði að horfa á allt viðtalið
til að mynda sér skoðun og ég skipti
til dæmis um skoðun við það að
horfa á það,“ segir Sirrý um tveggja
klukkustunda viðtalið.
„Áður en ég horfði á þetta fannst
mér þau bara vera svolítið vælandi
forréttindafólk sem hafði það ein-
hvern veginn aldrei nógu gott,“ segir
Sirrý, sem einnig er endanlega sann-
færð um að breska konungsveldið sé
alger tímaskekkja.
„Þetta er bara eitthvert eldgamalt
ævintýri sem passar ekkert inni í
nútímann. Ég stend algjörlega með
þeim núna,“ heldur hún áfram um
Meghan og Harry.
Ógeðsleg framkoma
Fyrir viðtalið hafði Sirrý fundist
hjónin vera full upptekin af sjálf-
um sér og klaufsk í samskiptum og
almannatengslum. „Síðan horfði ég
á þetta og finnst að þeim hafi eigin-
lega verið ýtt út í þetta. Mér fannst
þau ekki hafa val,“ segir Sirrý, um
umdeildan viðskilnað parsins við
konungsfjölskylduna bresku.
„Þarna er bara ungt fólk sem
verður ástfangið og öll hrífumst
við af ástinni og mér hefur oft þótt
gaman að horfa á þau vegna þess að
það er bara svo mikil fegurð í aug-
ljósri ást þeirra og svo er bara komið
svona ógeðslega fram við hana.“
Hinir dularfullu „þeir“
Meghan var tíðrætt um „þá“ sem
hafa helst lagt sig fram um að gera
henni lífið leitt við krúnuna, en
þrátt fyrir nokkrar tilraunir tókst
Opruh hvorki að fá hana né Harry
til þess að upplýsa hverjir „þeir“ eru.
„Mér fannst vanta í þáttinn
hverjir þetta eru. Hverjir eru þeir?
Þeir banna þetta. Þeir vilja þetta
ekki,“ segir Sirrý og veltir fyrir sér
hvort þessir „þeir“ séu fulltrúar
regluveldisins.
„Eru þarna hliðverðir kerfisins
sem hafa öll völdin? Þeir eru þá að
standa vörð um eitthvað alveg fer-
lega óréttlátt og úrelt kerfi og þjóð-
skipulag. Þetta er ekkert í tengslum
við gildismat okkar og hugmyndir
okkar um mannréttindi,“ segir Sirrý
og víkur að rót allra vandræðanna.
„Hún er ólétt og stendur sig vel.
Er alþýðleg og nær til fólks og er þá
eitthvað farin að rugga bátnum.
Einhverjum finnst hún vera of
vinsæl og þá er allt í einu farið að
ræða við hana um hversu hörunds-
dökkt barnið hennar komi til með
að verða og að það muni ekki njóta
sömu forréttinda og hinir í sam-
bærilegri stöðu. Það er ekkert sem
skýrir þetta annað en litarháttur-
inn.“
Fordómafull slúðurpressa
Sirrý hrósar Opruh síðan fyrir að
hafa dregið fram skýr dæmi um
muninn á því hvernig breskir fjöl-
miðlar fjalla um Kate Middleton,
hertogaynjuna af Cambridge, og
Meghan hins vegar.
„Mér fannst frábært hvernig hún
tók þessi dæmi og sýndi okkur með
rökstuddum dæmum hvernig slúð-
urpressan fer misjöfnum höndum
um lituðu nútímakonuna eða hvítu
forréttindakonuna, hana Kate.
Það er ekkert annað í gangi þarna
en að önnur er lituð, sjálfstæð og
útlensk en hin er þessi hvíta, breska
sem fellur algjörlega inn í þetta yfir-
stéttarbox og gerir engar athuga-
semdir. Bara haltu kjafti og vertu
sæt.“
Veröld Meghan
Sirrý blæs á allar hugmyndir um
að Meghan sé að rugla í Harry með
tálkonuklækjum. „Maður heyrir
þetta mikið en þegar ég horfi bara á
líkamstjáningu þeirra og samskipti
þá finnst mér það alls ekki. Hann er
bara sjálfstæður maður og segist
sjálfur hafa farið að skilja kynþátta-
fordóma þegar hann sá lífið svolítið
út frá hennar reynsluheimi.
Forréttindablinda er mjög baga-
leg og hún minnkaði hjá honum við
að sjá hvernig fólk kom fram við lit-
aða, sjálfstæða nútímakonu.
Þannig að mér finnst hún ekki
vera að tala fyrir hann eða eitthvað
að heilaþvo hann eins og sumir eru
að segja, heldur hefur hún bara gert
honum kleift að víkka sjóndeildar-
hringinn. Það er bara af hinu góða.“
toti@frettabladid.is
Meghan verður ekki
sagt að halda kjafti
Fjölmiðlakonan Sigríður Arnardóttir taldi Meghan og Harry vera
vælandi forréttindafólk þar til viðtal sjónvarpsdrottningarinnar
Opruh Winfrey fékk hana heldur betur til að skipta um skoðun.
Sirrý veit ýmislegt um fólk og sjónvarp og fannst stallsystir sín, Oprah Winfrey, standa sig frábærlega í umtalað-
asta sjónvarpsviðtali síðari tíma, sem hafi gerbreytt sýn hennar á almúgahjónin Meghan og Harry. MYND/AÐSEND
Sirrý er ánægð með hversu skýrt Oprah dró fram muninn á umfjöllun
bresku pressunnar um Meghan og Kate Middleton. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ER FERMING?
ÆTLAR ÞÚ AÐ KOMA
FERMINGARBARNI Á ÓVART?
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
20%
FERMINGAR
AFSLÆTTI
ALLAR
SÆNGUR,
ALLIR KODDAR
OG ÖLL RÚMFÖT MEÐ
GLÆSILEG VIÐBÓTARGJÖF TIL FERMINGARBARNSINS
Nú er 20% afsláttur af heilsurúmum frá Sealy. Auk þess
fylgir nú veglegur kaupauki — Aspen fjallahjól — að verðmæti
59.000 krónur* þegar keypt er PORTLAND eða SEATTLE
rúm (dýna og Classic botn) í stærðunum 120 eða 140 cm.
Fylgir
Sealy Portland og Seattle í
stærðunum 120 og 140 x 200 cm
á meðan birgðir endast
VERÐDÆMI:
120 x 200 cm m/Classic botni – Fullt verð: 145.900 kr.
Fermingartilboð aðeins 116.720 kr. með Aspen fjallahjóli
Sealy SEATTLE
FERMINGARTILBOÐ
* á meðan birgðir endast – athugið skilaskilmála.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
1 0 . M A R S 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð