Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2015, Blaðsíða 18
„Bíddu,“ hvíslaðir þú, „bíddu og skríddu,“ og á sumarhimni grillti í fyrstu
sólargeislana sem muldruðu lygar um framtíð sem aldrei verður. Fullnægð
með hjartslátt í leginu tókstu um sveitta hönd mína eftir leynifundinn á
fatlaðraklósettinu á skemmtistaðnum og sagðir að klukkan væri alltof margt þegar
mér fannst hún vera of lítið. Ég mála mynd af þér á eldhúsvegginn, skrifa til þín
ljóð sem ríma svo þú sjáir að ég bý yfir meiri einlægni og dýpt en hinir sem segjast
elska þig.
Ég hrópaði háfleygt og tilgerðarlega svo leigubílstjórinn komst við (eða
var hann hneykslaður?): Syndin er falleg þegar hún kemur frá sönnum stað!
Þú fálmaðir flóttalega eftir hurðarhúninum á heimili þínu, varir mínar rauðar af
túrblóðinu þínu svo hárið klístraðist við blóðuga kinnina, en þú snerir þér undan
og hvíslaðir „bíddu,“ kreistir sveitta höndina „skríddu,“ svo kvaddir þú og bættir
við „feldu þig“.
Með túrblóðinu mínu mála ég mynd af þér á svefnherbergisvegginn, finn
lyktina af járni í munnvikum og sólarupphituðum leðursætum í leigubíl á árum
áður í morgungeislum, kyssi varir á blóðrauðum vegg á meðan sólin muldrar lygar
um framtíð sem aldrei verður.
Með hjartslátt í leginu
Júlía
Margrét
Einarsdóttir
Skáld Hinsegin daga þetta árið er Júlía
Margrét Einarsdóttir. Júlía er 28 ára gömul og
heimspekimenntaður rithöfundur. Eftir hana
hafa birst ljóð og smásögur í safnritum en fyrsta
skáldsaga hennar, Sirkús, er væntanleg næsta vor.
Sögurnar birtust áður fyrr á þessu ári í
vefljóðagalleríinu „2015 er gildra“.
18