Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2015, Blaðsíða 35
Rjúfum þögnina – málstofa
um kynferðisofbeldi
Break the silence – seminar on sexual abuse
Fimmtudaginn 6. ágúst kl. 12:00
Thursday 6 August at 12 p.m.
Föstudaginn 7. ágúst kl. 12:00
Friday 7 August at 12 p.m.
Hinsegin dagar standa fyrir málstofu um kynferðisofbeldi í hinsegin
samhengi í samstarfi við Stígamót. Undanfarin misseri hefur
umræða um kynferðisofbeldi aukist á Íslandi. Þar hefur ítrekað
komið fram hversu mikilvægt það er að draga þessa umræðu fram
í dagsljósið og skapa umhverfi þar sem líklegra er að brotaþolar
kynferðisofbeldis leiti sér aðstoðar. Markmið þessarar málstofu
er að skoða kynferðisofbeldi út frá reynslu hinsegin einstaklinga,
bæði þegar það beinist gegn okkur og þegar um er að ræða aðila
innan okkar samfélags, ásamt því að skapa umræðu um þessi mál í
hinsegin samfélaginu á Íslandi. Í málstofunni verða fluttir fyrirlestrar
frá starfsfólki Stígamóta og sagðar reynslusögur og í lokin fara fram
pallborðsumræður.
Kitty Anderson, formaður Intersex Íslands, leiðir pallborðsumræður
um trans fólk, intersex fólk og heilbrigðismál. Fjallað verður
um skýrslur frá Evrópustofnun grundvallarmannréttinda (FRA),
Evrópuráðinu og Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) um trans og
intersex til að fá skilning á stöðunni í þeim löndum sem við berum
okkur saman við. Einnig verður fjallað um stöðuna hér á landi og
helstu vandamálin sem trans og intersex fólk þarf að glíma við í
heilbrigðiskerfinu.
Reykjavik Pride in cooperation with Stígamót – Education and
Counseling Center for Survivors of Sexual Abuse and Violence
– invites you to a seminar on sexual violence from a queer
perspective. Recently there has been increased awareness
and talk about sexual violence in Iceland where it has been
highlighted how important it is to talk openly about the subject
and create an atmosphere which encourages victims to seek
help. The goal with this seminar is to look at the experience of
queer individuals that have suffered sexual violence, both from
within our community and from others, and try to open up a
conversation about sexual violence within the queer community.
Kitty Anderson, the president of Intersex Iceland, leads a
panel on trans, intersex and health care issues. Recent reports
from the European Union Agency for Fundamental Rights, the
European Council and the World Health Organization about trans
and intersex issues will be discussed to get an idea of how the
situation is in countries that Icelanders compare themselves to.
The panel also focuses on the Icelandic health care system and
problems that trans and intersex individuals have to face.
Heilbrigðiskerfið í augum
trans og intersex fólks
The health care system in the eyes of trans and intersex people
35