Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2015, Blaðsíða 57

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2015, Blaðsíða 57
Það gleður mig mjög að senda kveðju til allra þátttakenda í Hinsegin dögum í Reykjavík. Þegar ég kom til Íslands í upphafi þessa árs gladdi það mig að sjá að Ísland er staður þar sem réttindi hinsegin fólks eru í heiðri höfð og jafnvel að því marki að samkvæmt nýlegri könnun eru samkynhneigðir sem búa á Íslandi hamingjusamastir miðað við samkynhneigða í öðrum löndum. Ísland er innblástur fyrir aðra þar sem hinsegin fólk mætir mótbyr í mörgum löndum víðs vegar um heiminn. Þrátt fyrir að ástandið í Bandaríkjunum sé síður en svo fullkomið eru framfarir þar mælanlegar. Þann 26. júní síðastliðinn ályktaði Hæstiréttur Bandaríkjanna að samkynja hjónabönd væru stjórnarskrárvarin grundvallarmannréttindi. Í meirihlutaáliti sagði dómarinn Anthony Kennedy: „Eðli óréttlætis er að við komum ekki alltaf auga á það á okkar eigin tíma. Kynslóðirnar, sem skrifuðu og lögleiddu réttindaskrána og fjórtándu lagabreytinguna, þóttust ekki þekkja allt ummál frelsis í öllum sínum víddum, svo þeir settu kynslóðum framtíðar stefnu til að verja réttindi allra til að njóta frelsis meðan við uppgötvum merkingu þess.“ Með áliti sínu gerði Hæstiréttur Bandaríkjanna Bandaríkin að fimmtándu þjóðinni til að viðurkenna löggildi hjónabanda fólks af sama kyni. Ísland var meðal fyrstu þjóðanna til að gera slíkt hið sama þegar Alþingi staðfesti löggildi samkynja hjónabanda árið 2010. Við vonum að fleiri þjóðir fylgi í kjölfar Íslands, Bandaríkjanna og annarra þjóða til að hreyfing verði í þessa átt. Hjónabandið er þýðingarmikið og dæmi um æðstu hugsjónir ástar, hollustu, tryggðar, fórnar og fjölskyldu. Hjónaband snýst um að verða meiri en hægt er að verða einn síns liðs. Staða málefna hinsegin fólks hefur snúist til verri vegar í mörgum löndum heimsins og það er sorglegt að heyra sögur af ofsóknum, fangelsun og dauðsföllum vegna mismununar á grundvelli kynhneigðar. Sum lönd hafa jafnvel sett í gildi lög sem glæpavæða samkynhneigð. Slík lög voru lögð af á Íslandi fyrir löngu síðan. Í fyrra sagði utanríkisráðherra Bandaríkjanna, John Kerry, í tilefni birtingar hinnar árlegu mannréttindaskýrslu ríkisins: „Þessi lög eru hluti af alþjóðlegri þróun í átt að auknu ofbeldi og mismunun gegn hinsegin fólki og stuðningsaðilum þeirra, og þau eru móðgun við skynsamlega samvisku, og Bandaríkin munu áfram standa með hinsegin bræðrum og systrum þar sem við styðjum frelsi, réttlæti og jafnrétti fyrir allt fólk í heiminum.“ Réttindi hinsegin fólks eru mannréttindi og það er mikilvægt að við stöndum sameinuð gegn mismunun. Bandaríkin og Ísland: Rétturinn til að elska, lifa og vera samþykkt eins við erum í raun. Skilaboð frá sendiherra Bandaríkjanna, Robert Cushman Barber, til Íslendinga og allra gesta á Hinsegin dögum í Reykjavík 2015: Mannréttindi eru aldrei einkamál þjóða og það er mikilvægt að standa upp og ljá rödd sína þeim sem verið er að mismuna. Það á við hvort sem mismununin er á grundvelli kyns, kynhneigðar, kynþáttar, aldurs, trúar eða fötlunar. Verndun almennra mannréttinda er grundvallaratriði í utanríkismálastefnu Bandaríkjanna og við höfum skuldbundið okkur til að vinna að framgangi mannréttinda fyrir alla. Því erum við stolt af að geta stutt við ýmis mannréttindamál á Hinsegin dögum í ár, ekki eingöngu með að styrkja dagskrárliði fyrir hinsegin fjölskyldur, ganga í gleðigöngunni og með framlagi í dagskrárritið, heldur einnig með því að aðstoða við aðgengiskostnað til að fólk með fötlun geti tekið þátt í hátíðinni og varpa um leið ljósi á mannréttindabaráttu þeirra. Hinsegin dagar snúast um mannréttindi fyrir alla og það er mikilvægt að halda þeirri baráttu áfram á öllum vígstöðvum. Frábært er að sjá hve virkir Íslendingar eru í alþjóðlegu samhengi við að auka meðvitund og hjálpa til í baráttunni fyrir mannréttindum víðs vegar um heiminn. Alþjóðasamfélagið er sterkast þegar það rís upp í sameinuðu átaki. Við munum alltaf þurfa virkt fólk sem er viljugt til að rísa upp og láta rödd sína heyrast, annars myndi ef til vill ekkert breytast. Hluttekning eða andspyrna venjulegs fólks, sem hefur upp raust sína gegn óréttlæti sem hefur fengið að viðgangast of lengi, getur gert gæfumuninn. Gjörðir þeirra hjálpa okkur að sjá mannúð hvers annars þrátt fyrir möguleg ágreiningsefni okkar. Mannréttindi ættu ekki að lúta landamærum. Að tala máli mannréttinda snýst ekki um að segja: „Ég er fullkominn og þú ættir að vera fullkominn eins og ég.“ Málið snýst um að sækjast eftir að ná alþjóðlegum markmiðum, sem við ættum öll að gera. Það er ekki nauðsynlegt að vera fullkominn til að berjast fyrir mannréttindum en við þurfum að taka þátt í góðri trú og leggja okkar af mörkum til að ríkisstjórnir okkar verði fullkomnari. Við lítum á það sem skyldu okkar að standa með íslenskum vinum okkar og tökum stolt þátt í gleðigöngunni í ár til stuðnings hinsegin fólki víðs vegar um heiminn. Við tökum þátt í göngunni fyrir mannréttindi, fyrir réttinn til að elska, lifa og vera samþykkt eins og við erum í raun. „Handan við baráttu og áföll sjáum við sameiginlega stefnu í átt að frjálsara og réttlátara samfélagi. En við erum líka minnt á að við erum ekki í raun jöfn fyrr en hver persóna hefur fengið sömu réttindi og tækifæri – að þegar einn okkar upplifir mismunun hefur það áhrif á okkur öll – og að ferð okkar lýkur ekki fyrr en komið er fram við lesbíur, homma, tvíkynhneigða og transfólk, hinsegin bræður okkar og systur, eins og alla aðra samkvæmt lögum.“ Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, 29. maí 2015. Yfirlýsing forseta – HINSEGIN MÁNUÐUR 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.