Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2015, Blaðsíða 32
Hinsegin dagar mála
bæinn… í regnbogalitum
Ljósmyndasýning og götumálun
á Skólavörðustíg
Photo exhibition and rainbow street painting
Skólavörðustígur við Bergstaðastræti,
þriðjudaginn 4. ágúst klukkan 12:00.
The corner of Skólavörðustígur
and Bergstaðastræti,
Tuesday 4 August at 12 p.m.
Dagskrá Hinsegin daga 2015 hefst með bráðskemmtilegum viðburði
í hjarta miðborgar Reykjavíkur. Formaður Hinsegin daga, Eva
María Þórarinsdóttir Lange og borgarstjóri Reykjavíkur Dagur B.
Eggertsson munu þá opna ljósmyndasýning á Skólavörðustíg og
taka þátt í götumálun þar sem Skólavörðustígnum verður breytt í
regnboga. Ljósmyndasýningin er á vegum ljósmyndarans Geirax og
kemur úr einkasafni hans en Geirix hefur myndað gleðigönguna og
viðburði tengda hátíðinni í fjöldamörg ár. Á sýningunni er brugðið
upp 24 ljósmyndum frá ýmsum viðburðum Hinsegin daga frá síðasta
áratuginn. Sumar þeirra hafa ekki áður birst opinberlega.
Götumálun Skólavörðustígs er unnin í samstarfi við Umhverfis-
og skipulagssvið Reykjavíkurborgar og er hluti af verkefninu
„Sumargötur” í miðborg Reykjavíkur. Hinsegin dagar hvetja gesti til
að fjölmenna á staðinn og aðstoða við málningarvinnuna. Málning
verður á staðnum svo og takmarkað magn málningarpensla og fólk
er því hvatt til að koma með eigin pensla og rúllur.
The president of Reykjavik Pride, Eva María Þórarinsdóttir Lange
and the mayor of Reykjavik, will officially open the Reykjavik
Pride festival week on Skólavörðustígur street and launch
a photographic exhibition by Geirix, covering the history of
Reykjavik Pride from 1993. This opening event also includes
street painting, but Skólavörðustígur street will be painted in
rainbow colors as a part of Reykjavík City’s “Summer Streets”
programme. Everyone is invited to assist in the street painting
and guests are encouraged to bring their own paint brushes.
Stellukvöld – dagskrá í
minningu Stellu Hauks
Stella night – a tribute to Stella Hauks
Iðnó, Vonarstræti 3,
þriðjudaginn 4. ágúst kl. 21:00.
Aðgangur: 1.500 kr. Pride-passi gildir.
Iðnó, Vonarstræti 3,
Tuesday 4 August at 9 p.m.
Admission: 1.500 ISK.
Pride Pass valid.
Fyrsti kvöldviðburður Hinsegin daga í ár er dagskrá til heiðurs
tónlistar- og baráttukonunni Stellu Hauks en hún lést í janúar
síðastliðnum, rösklega sextug að aldri. Dagskráin samanstendur af
tónlistarflutningi, þar sem lög Stellu verða í brennidepli, í bland við
frásagnir vina og kunningja sem rifja upp ýmsar minningar og sögur
af þessari merku konu. Viðburðurinn er að sjálfsögðu öllum opinn,
bæði þeim sem þekktu til Stellu og þeim sem vilja fræðast um hana
og þátt hennar í tónlistarsögu og ekki síður hinseginsögu Íslands.
The first evening Pride event this year is a tribute to the musician
and lesbian activist Stella Hauks, who passed away last January.
The programme includes some of Stella’s songs, performed by
Icelandic musicians, as well as stories and tales told by Stella’s
friends who share their memories of this remarkable woman with
the audience. Please note that this event will be in Icelandic.
„Það var og verður aldrei til nema ein Stella Hauks.
Stella sem ég sá í fyrsta skipti á baráttufundi fyrir
yfir þrjátíu árum þar sem hún hélt í höndina á
konunni sinni, fyrsta opinbera og þekkta lesbíu-
parið á Íslandi það ég vissi. Stella sem var fyrst
kvenna til að yrkja í orðum og tónum um lesbískar
ástir. Stella sem var söngvaskáld og baráttukona.
Stella djammari og partýflæðandi, Stella grallari í
hláturskasti, Stella huggari og trúnaðarvinkona,
Stella hvetjari og skápaútdustari. Eldgos og snjó-
flóð í einni konu, heillandi og hættuleg í senn.“
– Margrét Pála Ólafsdóttir
32