Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2015, Blaðsíða 43
Tónleikar
Hinsegin kórsins
Reykjavík Queer Choir concert
Fríkirkjunni í Reykjavík,
föstudaginn 7. ágúst kl. 19:30.
Aðgangseyrir: 2.000 kr. í forsölu.
Við hurð: 2.500 kr.
Pride-passi veitir 500 kr. afslátt við hurð.
Fríkirkjan Church,
Friday 7 August at 7:30 p.m.
Pre-sale tickets: 2.000 ISK.
Full price tickets: 2.500 ISK.
500 ISK discount at the
door with Pride pass
Líkt og fyrri ár efnir Hinsegin kórinn til tónleika í tilefni Hinsegin
daga. Kórinn hefur á undanförnum árum getið sér afar gott orð
fyrir góðan söng og skemmtilega framkomu en kórinn syngur
undir stjórn tónlistarkonunnar Helgu Margrétar Marzellíusardóttur.
Hinsegin kórinn hefur komið víða fram, bæði hér heima og erlendis,
en kórfélagar eru nú nýkomnir heim frá London þar sem kórinn var
gestakór á tónleikum hins breska hinsegin kórs Pink Singers sem kom
fram á tónleikum í Reykjavík árið 2013. Efnisskrá tónleikanna að þessu
sinni er afar fjölbreytt og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Forsala miða fer fram hjá kórfélögum og í Kaupfélagi Hinsegin daga.
Hinsegin kórinn er öllum opinn að undangengnum raddprófum.
Næstu raddpróf fara fram mánudaginn 10. ágúst en nánari
upplýsingar má finna á Facebook-síðu kórsins.
The Reykjavík Queer Choir performs in Fríkirkjan Church in
Reykjavík on Friday 7 August. The choir just arrived in Reykjavik
after performing as special guests at concerts in London hosted
by the longest-running LGBT choir in Europe, the Pink Singers.
The programme includes a great variety of songs so everyone
should find something to their taste.
Kvöldtónleikar með
Herði Torfasyni
Evening concert with Hörður Torfason
Iðnó, Vonarstræti 3,
miðvikudaginn 5. ágúst kl. 20:00.
Aðgangur: 2.000 kr.
Pride-passi gildir.
Iðnó, Vonarstræti 3,
Wednesday 5 August at 8 p.m.
Admission: 2.000 ISK.
Pride Pass valid.
Hinsegin dagar kynna með stolti kvöldtónleika með einum
áhrifamesta listamanni þjóðarinnar og baráttumanni fyrir hinsegin
mannréttindum, Herði Torfasyni. Tónleikarnir spanna ævintýralegt
líf hans frá upphafi ferilsins til útlegðar í Kaupmannahöfn og fram að
efnahagshruninu 2008. Hörður er þekktur fyrir að fjalla um tilfinningar
og fjölbreytilegt eðli manneskjunnar í gegnum tónlist sína og samræður
við áhorfendur og ljóst er að um er að ræða einstakan tónlistarviðburð
sem haldinn er sérstaklega fyrir gesti Hinsegin daga.
Lj
ós
m
yn
d:
F
in
nb
og
i M
ar
ín
ós
so
n
Reykjavik Pride is proud to present a special concert with one of
Iceland’s most prolific singers/songwriters and queer activists,
Hörður Torfason. Hörður was a successful actor and musician
when he became the first public persona in Iceland to come out
as gay in the media in 1975, which had dire consequences for
his life and career. Hörður was moreover the main instigator of
Samtökin´78, the National Queer Organization of Iceland. This
event spans Hörður’s career from the time his first album was
released in 1971 to the economic crisis in 2008, and the musician
and activist will perform some of his greatest songs and discuss
various aspects of human existence. Please note that this event is
in Icelandic.
43