Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Síða 70

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Síða 70
Hinsegin félagasamtök á Íslandi LGBTIQ organisations in Iceland 2015 Hinsegin dagar í Reykjavík / Reykjavik Pride www.hinsegindagar.is pride@hinsegindagar.is Facebook: reykjavikpride Hinsegin dagar í Reykjavík – Reykjavik Pride eru sjálfstæð sjálfboðaliðasamtök sem árlega skipuleggja Hinsegin daga í Reykjavík aðra helgina í ágúst. Allir sem styðja markmið hátíðarinnar og vilja vinna með félaginu geta gerst félagar. Reykjavik Pride is an independent non- profit organisation whose one and only purpose is to organise the Pride festival in Reykjavík every year. The organisation is run solely by volunteers. Everyone who supports queer rights and wants to help with organising Reykjavik Pride can become a member. Samtökin ’78 – félag hinsegin fólks á Íslandi / The National Queer Organisation www.samtokin78.is skrifstofa@samtokin78.is Facebook: samtokin78 Samtökin ’78 eru elstu og stærstu samtök hinsegin fólks á Íslandi og undir forystu þeirra hafa unnist miklir sigrar í mannréttindamálum á liðnum árum. Markmið félagsins er tvíþætt: Að vinna að baráttu- og hagsmunamálum hinsegin fólks í því skyni að vinna því jafnrétti á við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins og að skapa félagslegan og menningarlegan vettvang til þess að styrkja sjálfsvitund þess, samkennd og samstöðu um sérkenni sín. The National Queer Organisation of Iceland was the first queer organisation in Iceland and under its lead many great achievements in relation to queer rights have been made. The goal of the organisation is twofold: To fight for queer rights and interests and thereby aim for equality in all fields of the society, and to create a social and cultural context where queer identity and solidarity can prosper. Q – Félag hinsegin stúdenta / Q – Queer Student Association www.queer.is queer@queer.is Facebook: qfelag Félag hinsegin stúdenta, Q, var stofnað í janúar 1999. Það heldur uppi öflugu félagsstarfi meðal ungs fólks og hittist á Q-kvöldum í félagsmiðstöð Samtakanna ’78. Eitt af markmiðum félagsins er að vera sýnilegt afl innan háskólasamfélagsins á Íslandi og í forsvari þar þegar málefni hinsegin fólks ber á góma. Félagið er virkur þátttakandi í tveimur samtökum ungs fólks í Evrópu, Transgender-Europe og IGLYO. Q – Queer Student Association was founded in 1999. It organises various events for queer youth and students. One of its main goals is moreover to be a visible force and advocate for queer rights and interests within the universities in Iceland. Q is an active member of the European organisations Transgender- Europe and IGLYO. Trans-Ísland / Trans Iceland trans@samtokin78.is transiceland@gmail.com Facebook: transisland Trans-Ísland var stofnað árið 2007 og hefur að markmiði sínu að skapa trans fólki og fjölskyldum þess menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund þeirra, vinna að laga- og réttarbótum, auka fræðslu og eiga samstarf við sambærileg samtök hérlendis og erlendis. Fundir Trans- Íslands eru haldnir fyrsta miðvikudag hvers mánaðar í félagsmiðstöð Samtakanna ’78. Trans-Ísland hefur farið ört stækkandi á síðustu árum í takt við trans samfélagið og Kynsegin Ísland er nú formlega orðið partur af félaginu. Trans Iceland was founded in 2007. Its goal is to create a cultural setting for trans people and their families and thereby bolster their sense of identity, to work towards judicial improvement and education on trans issues, and to cooperate with other queer organisations. Trans Iceland has grown alongside the trans community and Non- Binary Iceland is now an official part of the organisation. Íþróttafélagið Styrmir / Styrmir Sport Club ststyrmir@gmail.com Facebook: styrmir.sport Íþróttafélagið Styrmir var stofnað árið 2006 og er ein af blómlegustu grasrótarhreyfingum hinsegin fólks á Íslandi. Félagið heldur úti reglulegum æfingum í fótbolta, sundi og blaki og er virkt í að halda stóra sem smáa íþróttaviðburði. Árlega taka félagar þátt í íþróttamótum á erlendum og innlendum vettvangi og allir eru hjartanlega velkomnir á æfingar félagsins, bæði byrjendur og lengra komnir. Styrmir Sport Club was founded in 2006 and has since then been one of the most flourishing queer grass-roots movements in Iceland. The group organises football, swimming and volleyball training sessions, as well as various large and small-scale sport events. The members of Styrmir participate in competitions and tournaments in Iceland and abroad every year. Everyone is welcome to attend training sessions, both beginners and more advanced. KMK – Konur með konum / Women with women kmkkonur@gmail.com Facebook: kmk.sms Konur með konum, KMK, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía laust fyrir 1990. Tilgangurinn er ekki síst að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu þeirra og gefa þeim tækifæri til að skemmta sér á eigin forsendum. Stúlkurnar í KMK stunda íþróttir af kappi, einkum blak, og hafa keppt á alþjóðlegum leikum. 70

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.