Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2015, Side 71
KMK – Women with women – is a grass-
root movement that was established around
1990. Its purpose is to increase the visibility
and solidarity of lesbians and to create a
setting where they can meet. The girls in
KMK play volleyball and have participated in
international tournaments.
Félag hinsegin foreldra /
Association of LGBT parents
gayforeldrar@gmail.com
Facebook: felag.foreldra
Félag hinsegin foreldra eru ein yngstu
samtökin í flóru hinsegin hreyfinga á
Íslandi. Þau hafa það að markmiði að gera
lífið skemmtilegra fyrir börn sín, gefa þeim
kost á að kynnast og miðla reynslu af
foreldrahlutverkinu.
The Association of LGBT parents is one of
the youngest queer organisations in Iceland.
Their goal is to create a setting where children
of LGBT parents can meet, and to share
experiences and advice about parenting.
Hinsegin kórinn /
Reykjavík Queer Choir
www.hinseginkorinn.is
hinseginkorinn@hinseginkorinn.is
Facebook: hinseginkorinn
Hinsegin kórinn var stofnaður síðsumars
2011. Markmið hans er að vera fordómalaus
vettvangur fólks til að hittast og njóta
söngs saman, vinna að þátttöku hinsegin
fólks í menningarlífinu, vera jákvæð
fyrirmynd og stuðla að sýnileika hinsegin
fólks. Markmiði sínu hyggst kórinn meðal
annars ná með reglubundnum æfingum,
tónleikum og söngferðum hér heima
og erlendis. Kórinn er öllum opinn að
undangengnum raddprófum sem að jafnaði
eru haldin við upphaf haust- og vorannar.
The Reykjavík Queer Choir was established
in 2011. Its goal is to create a open-minded
environment where people can meet and
sing together, to increase queer people’s
participation in the cultural life, to be a
positive role-model, and to boost the visibility
of queer people. To achieve this the choir
organises regular practices, concerts and
travels both within Iceland and abroad. The
choir is open to all who undergo a vocal range
test that is usually held twice a year.
HIN – Hinsegin Norðurland
www.hinsegin.net
hinsegin@hinsegin.net
Facebook: hinsegin
HIN - Hinsegin Norðurland eru fræðslu- og
stuðningssamtök staðsett á Akureyri. HIN
sér um fræðslu um hinsegin málefni fyrir
grunn- og framhaldsskóla og stendur fyrir
dragkeppni og mörgum öðrum viðburðum
ár hvert. Félagið fundar á 3. hæð, nyrðri
gangi, í félagsmiðstöðinni Rósenborg kl.
19:30 alla þriðjudaga og allir eru velkomnir!
Hinsegin Norðurland is an educational and
support organisation located in Akureyri.
HIN manages education on queer issues for
primary and secondary schools and organises
various events, such as drag shows. The
group meets on the 3rd floor of Rósenborg
community centre at 7:30 p.m. every Tuesday
and everyone is welcome.
Intersex Ísland / Intersex Iceland
intersex@samtokin78.is
Samtökin Intersex Ísland voru stofnuð
27. júní 2014 og eru samtök fyrir intersex
einstaklinga, fjölskyldur þeirra og aðra
aðstandendur. Þau funda fyrsta þriðjudag í
hverjum mánuði í húsnæði Samtakanna ‘78.
Intersex Iceland was established on 27 June
2014. It is an organisation for intersex people,
their families and supporters. The members of
Intersex Iceland meet on the first Tuesday of
every month in the facilities of the National
Queer Organisation.
Kynsegin Ísland / Non-binary Iceland
nonbinaryiceland.tumblr.com
nonbinaryiceland@gmail.com
Facebook: nonbinaryiceland
Kynsegin Ísland var stofnað í september
2013 sem stuðningshópur fyrir fólk á Íslandi
sem upplifir sig utan kynjatvíhyggjunnar.
Hópurinn hefur stækkað hægt en örugglega
frá stofnun og heyrir nú formlega undir
Trans-Ísland. Non-binary eða kynsegin
málefni hafa verið lítið í deiglunni þangað til
nýlega en Kynsegin Ísland vonast til að geta
vakið athygli á þeim og veitt fræðslu um hvað
það þýðir að vera ekki bara karl eða kona.
Non-binary Iceland started as a support
group for people who don’t feel they belong
within the gender binary. The group has
grown slowly but steadily from the day it
was founded in September 2013, and is now
officially a part of Trans Iceland. Non-binary
Iceland hopes to increase people’s awareness
about non-binary issues and provide
education about what it means not to be
simply a man or a woman.
Útgefandi:
Hinsegin dagar í Reykjavík /
Reykjavik Pride
Suðurgata 3 – 101 Reykjavík
Útgáfuár: júlí 2015
Ritstjórn: Ásta Kristín Benediktsdóttir og
Jón Kjartan Ágústsson.
Textar: Auður Ava Ólafsdóttir, Ásta Kristín
Benediktsdóttir, Kitty Anderson, Jón Kjartan
Ágústsson, Júlía Margrét Einarsdóttir, Ugla
Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir.
Prófarkalestur: Ásta Kristín
Benediktsdóttir.
Auglýsingar: Hvíta húsið, Eva María
Þórarinsdóttir Lange og Gunnlaugur Bragi
Björnsson.
Ljósmyndir: Anton Brink, Davíð Terrazas,
Finnbogi Marínósson, Ragnar Erling
Hermannsson, Thomas Burke, Lilja
Sigurðardóttir og Pressphotos/Geirix.
Forsíðumódel: Kristín Sævarsdóttir,
Matthías Matthíasson, Ólafur Helgi Móberg,
Tyler Elías Jones og Vanessa Terrazas.
Teikningar á götukorti: Helga Kristjana
Bjarnadóttir.
Merki Hinsegin daga: Aðalbjörg
Þórðardóttir.
Hönnun dagskrárrits: Davíð Terrazas.
Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi.
Stjórn og samstarfsnefnd um Hinsegin
daga í Reykjavík
Fjölmargt fólk leggur hönd á plóg til að
gera hátíð Hinsegin daga að veruleika á
hverju ári. Í stjórn Hinsegin daga í Reykjavík
2015–2016 sitja Eva María Þórarinsdóttir
Lange formaður, Jón Kjartan Ágústsson
varaformaður, Gunnlaugur Bragi Björnsson
gjaldkeri, Ásta Kristín Benediktsdóttir ritari og
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson meðstjórnandi.
Við hlið þeirra starfar samstarfsnefnd að
verkefnum ársins og þegar hátíðin nálgast
kallar stjórn til yfir hundrað sjálfboðaliða sem
veita ómetanlega aðstoð.
71