Fréttablaðið - 24.04.2021, Page 2
Til Sölu
OPEL GRANDLAND X
ULTIMATE PLUG IN HYBRID
Árgerð 2020, ekinn 18.000 km.
300 hö og hlaðinn aukabúnaði
Nývirði er um 7.300.000.- hjá umboði
VERÐ kr. 6.290.000,-
Nánari upplýsingar:
Guðmundur Albertsson - Gæðabílar
Sími/Tel: +354 897 1017gaedabilar.is
Börnin á Jörfa mættu í sýnatöku
Mikill fjöldi barna af leikskólanum Jörfa mætti í sýnatöku í gær í skimunarstöðinni á Suðurlandsbraut, en rúmlega 100 fjölskyldur hafa verið í
sóttkví í viku vegna manns sem virti ekki sóttkví og einangrun. Börnin gengu f lest hver út frekar súr í bragði enda sýnatakan nokkur áraun fyrir
smáfólkið. Alls eru 19 starfsmenn Jörfa smitaðir og ljóst að lítið verður um hefðbundið leikskólastarf í Jörfa í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SKIPULAG „Ef allt gengur að óskum
verður þarna skemmtilegur þakbar
og það er markmiðið með þessari
skipulagsbreytingu að fá að byggja
glerskála þannig að hægt sé að sitja
á svölunum í færanlegu gluggakerfi
allan ársins hring,“ segir Jóhannes
Stefánsson, framkvæmdarstjóri
Lindarvatns sem á fasteignirnar
á Landssímareitnum. Lindarvatn
hefur sótt um til byggingarfull
trúa að bæta við skála á þaksvalir
á 5. hæð Thorvaldsensstrætis 6 til
að gera svokallaðan þakbar, eða
„rooftop bar“.
Flestir þannig barir eru ógnar
vinsælir í borgum úti í hinum
stóra heimi enda fátt betra en að
sitja á fallegu sumarkvöldi á þak
bar. Ólíkt Íslandi er vindurinn ekki
aðalmálið þar og því þarf að sækja
um að byggja glerhjúp hér.
„Það er það sem er til skoðunar.
Þetta eru þokkalega stórar þak
svalir og það er gert ráð fyrir bar á
fimmtu hæðinni þannig að þarna
erum við að auka notagildið og sjá
til þess að við getum notað sval
irnar oftar en nokkra daga á ári.“
Thorvaldsensstræti er á besta
stað í miðborginni og ætti því,
verði þetta samþykkt af borgar
yfirvöldum, að verða einn eftir
sóknarverðasti staður borgar
innar til að skála með útsýni yfir
miðborgina. „Það sem vinnur
með okkur er hvað er skjólsælt á
þessum stað. Svalirnar snúa beint
gegn sólu og þarna er hægt að ná
bæði morgun og kvöldsólinni. Ef
vel tekst til verður þetta einn besti
staður borgarinnar að vera á jafnt
að sumri sem vetri.“
Lindarvatn er eigandi fasteigna á
Landssímareitnum við Austurvöll.
Uppbygging er komin á lokametr
ana og vonast Jóhannes til að hægt
verði að opna fyrr en síðar. Þarna
mun verða hótel undir merkjum
Curio by Hilton auk þess sem tón
listarsalurinn NASA verður endur
gerður í upprunalegri mynd. Þá
verða einnig veitingastaðir, íbúðir
og safn á reitnum auk barsins góða
í hæstu hæðum.
„Verkið er á lokasprettinum. Við
erum að vonast til að klára drjúgan
hluta í herbergjunum á hótelinu í
maí og vonandi verður þetta orðið
tilbúið í júní eða júlí. Ef ekkert
kemur upp á, maður þorir ekkert
að lofa neinu. Þetta er með þeim
fyrirvara,“ segir Jóhannes léttur.
benediktboas@frettabladid.is
Byggja nýjan þakbar í
hjarta miðborgarinnar
Lindarvatn hefur sótt um til byggingarfulltrúa að bæta við skála á þaksval-
irnar á 5. hæð Thorvaldsensstrætis 6 á Landssímareitnum. Markmiðið er að
gestir geti setið úti allan ársins hring með útsýni yfir hjarta miðborgarinnar.
Hér má sjá hvernig svalirnar líta út. Stefnt er að því að byggja glerskála til
að auka notagildið og búa til þakbar í borginni. MYND/LANDSSIMAREITURINN.IS
Það sem vinnur
með okkur er hvað
er skjólsælt á þessum stað.
Svalirnar snúa beint gegn
sólu og þarna er hægt að ná
bæði morgun- og kvöld-
sólinni.
Jóhannes
Stefánsson, fram-
kvæmdarstjóri
Lindarvatns
MENNING „Alvarleg staða er að
skapast vegna uppsafnaðs viðhalds
á Hörpu og búnaði sem hefur ekki
verið hægt að sinna,“ segir í árs
reikningi Hörpu.
Við blasir að rekstrarforsendur
og grundvöllur starfsemi í Hörpu
þarfnast endurskoðunar, segir þar
enn fremur, en sú staða sé ekki ný af
nálinni heldur hafi einkennt starf
semina frá opnun hússins.
Skýringarnar sem gefnar eru sé
hár kostnaður við rekstur fasteign
arinnar og mun hærri fasteigna
gjöld en gert hafði verið ráð fyrir.
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir
stjórnarformaður segir í ávarpi
að það tómarúm sem skapaðist á
síðasta ári hafi verið nýtt til góðra
verka og meðal annars ráðist í nauð
synlegt viðhald. „Það gat meðal
annars orðið vegna þess að eigendur
hússins, ríkið og Reykjavíkurborg,
lögðu félaginu til aukið hlutafé, fjár
muni sem notaðir eru í mikilvægar
framkvæmdir sem snúa annars
vegar að nauðsynlegu viðhaldi og
endurbótum.“ – bb
Harpa að drabbast niður
Ráðist var í óumflýjanlegar við-
gerðir á þaki vesturbyggingar. Hér
skoða vökul augu hvernig til tókst.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
MENNING Höfundar og framleið
endur Systrabanda segja í tilkynn
ingu að þættirnir séu ekki byggðir
á leikritinu Hystory, sem var frum
sýnt á Litla sviði Borgarleikhússins
í mars 2015, með neinum hætti.
Hystory fjallaði um þrjár konur sem
hittast aftur eftir að hafa burðast
með gamlar syndir, of beldisverk
gegn þeirri fjórðu á unglingsárum.
Kristín Eiríksdóttir, höfundur
Hystory, sagði í pistli að sér hefði
liðið eins og sparkað hefði verið í
magann á sér þegar hún sá þættina.
„Þau líkindi sem bent hefur verið
á með verkunum tveimur koma
eingöngu til af eðlilegri úrvinnslu
á áþekku umfjöllunarefni,“ segir í
tilkynningunni. Meðal þess sem
bent var á að sú myrta hét Nanna í
Hystory en Hanna í Systraböndum
ásamt fleiru. – bb
Þvertaka fyrir
að þættirnir
byggi á Hystory
Líkindin með Systraböndum og
Hystory þóttu mörgum of mikil.
Höfundar Systrabanda hafa tekið af
allan vafa með yfirlýsingu.
2 4 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð