Fréttablaðið - 24.04.2021, Page 4
20 812
sæta nú sóttkví á Íslandi
vegna COVID-19.
ár eru síðan Fréttablaðið
var fyrst gefið út.
600
ný störf verða sköpuð með til-
komu kolefnisförgunarstöðvar-
innar CODA terminal í Straumsvík.
16
þúsund skammtar af bóluefni
AstraZeneca verða afhentir
Íslandi að láni frá Noregi.
5
umhverfisverndarsamtök
hafa kært framkvæmdaleyfi
Landsnets fyrir lagningu
Suðurnesjalínu 2 sem loftlínu.
TÖLUR VIKUNNAR 18.04.2021 TIL 24.04.2021
Kári Stefánsson
forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar
orti níðvísu um
Alþingi en hann
er ekki sáttur við
störf þingsins í
sóttvarnamálum.
Kári segir að ríkis-
stjórnin hafi almennt
staðið sig vel á undanförnum mán-
uðum en telur hana hafa hrasað á
lokametrunum með aðgerðum á
landamærunum.
Þuríður Harpa
Sigurðardóttir
formaður
Öryrkjabanda-
lagsins
harmar að ungt
fatlað fólk sé
neytt inn á hjúkr-
unarheimili innan
um háaldrað fólk kjósi það ekki að
búa sjálfstæðri búsetu. Hún segir
ekki henta ungu fólki að vera á
hjúkrunarheimili með fólki sem
komið er að lífslokum. Viðræður
eru hafnar milli Kópavogsbæjar og
heilbrigðisráðuneytisins um bygg-
ingu sjúkrarýma fyrir yngra fólk.
Eyþór Arnalds
oddviti Sjálf-
stæðisf lokksins í
Reykjavík
er ósáttur
við tillögur
meirihlutans
í borginni um
hámarkshraða-
áætlun sem hann segir afar illa
ígrundaðar og kostnaðinn við
að koma þeim í framkvæmd
vanreiknaðan. Eyþór segir að
lauslega megi reikna með að til-
lögurnar muni kosta samfélagið
átta milljarða króna á ári vegna
aukningar á ferðatíma vegna
hraðalækkananna.
Þrjú í fréttum
Níðvísa,
sjúkrarými og
hraðalækkanir
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
P L U G I N T O M O R E
T H E 2 0 2 1
GOÐSÖGNIN RAFMÖGNUÐ
ALVÖRU JEEP I MEÐ 100% DR IFLÆSINGUM Á VERÐ I SEM Á SÉR ENGAN SAMANBURÐ OG NÚ 374HÖ/637NM
T R Y G G I Ð Y K K U R B Í L Í F O R S Ö L U . V Æ N T A N L E G U R Í B Y R J U N S U M A R S .
NÝR WRANGLER RUBICON
4xe PLUG- IN-HYBRID
VERÐ FRÁ KR. 9.490.000*
LAUNCH EDITION KR. 10.490.000*
*V
ER
Ð
M
IÐ
A
Ð
ST
V
IÐ
G
EN
G
I U
SD
1
28
ELDGOS „Stóru tíðindin eru kannski
þau að Geldingadalir eru ekki dalir
lengur,“ segir Þorvaldur Þórðarson,
jarðvísindamaður hjá Jarðvísinda-
stofnun Háskóla Íslands, spurður
um stöðuna á eldgosinu í Geldinga-
dölum. „Dalirnir eru núna fullir af
hrauni.“
Þorvaldur segir ákveðinn stöðug-
leika kominn í gosið og að nú sé
innflæði og útflæði jafnara en það
var fyrir nokkru. Fyrir rúmum
tveimur vikum var innflæði kviku
í gosstöðvunum um fimmtán rúm-
metrar á sekúndu en útflæðið um
tíu rúmmetrar á sekúndu. Yfir-
þrýstingurinn sem myndaðist varð
mögulega til þess að nýjar sprungur
opnuðust á svæðinu. Nú, þegar
flæðið inn og út sé jafnara, minnki
líkurnar á nýjum sprungum eða
stækkun þeirra sem fyrir eru.
„Það eru alltaf einhverjar breyt-
ingar í gangi, gígarnir halda áfram
að mótast og aðlaga sig sveiflum í
virkninni,“ segir Þorvaldur. „Það er
minni sprengivirkni og sletturnar
fara ekki eins hátt og þær gerðu,
en ásýndin hefur þó breyst,“ bætir
hann við.
Hraun hefur f lætt af miklum
krafti úr gosinu og segir Þorvaldur
að vilji fólk komast í návígi við gíg-
ana sé um að gera að drífa sig á stað-
inn en hann hvetur þó alla til að fara
með gát. „Eftir því sem gosið heldur
lengur áfram og ílengist þá bætist
alltaf í hraunið og þá verður erfið-
ara að komast nálægt,“ segir hann.
Þá segist Þorvaldur telja að hraunið
stækki mest í suður og austur en að
á endanum fari það að þekja fleiri
svæði.
Á hverjum tíma er talið að séu á
bilinu 10-20 eldgos í heiminum sam-
kvæmt Vísindavef Háskóla Íslands.
Gosið í Geldingadölum hefur vakið
mikla athygli bæði hér á Íslandi og
víða um heim. Spurður um ástæðu
vinsælda þessa goss sérstaklega
segir Þorvaldur að þar sé staðsetn-
ing þess líklegasta skýringin.
„Aðgengið er mjög gott og miðað
við flest önnur gos er þetta hættulít-
ið gos,“ segir Þorvaldur en minnir þó
á að öllum eldgosum fylgi ákveðin
hætta, til að mynda vegna gasmeng-
unar. „Þetta gos er staðsett í nálægð
við stærstu byggð Íslands og með
góðu móti er hægt að komast tiltölu-
lega nálægt því,“ segir hann.
Þá segir Þorvaldur gosið hafa
vakið áhuga margra á eldgosum og
jarðfræði, og sé það jákvætt, sérstak-
lega fyrir okkur sem búum á eld-
fjalli. „Ég held að þetta sé kærkom-
inn lærdómur fyrir marga og góð
áminning um það að það geti gosið
í bakgarðinum hjá Reykvíkingum,
það er staðreynd sem margir hafa
hundsað,“ segir hann.
„Svo hafa margir lært það að tíma-
skali eldfjalla er ekki sá sami og við
erum að eiga við í okkar daglega
lífi. 500 ár hjá eldfjalli er bara eins
og fyrir okkur að fara í bíó,“ bætir
Þorvaldur við.
birnadrofn@frettabladid.is
Geldingadalir ekki lengur dalir
Hraun hefur fyllt dalina í Geldingadölum og segir jarðvísindamaður hjá HÍ fólki að drífa sig á staðinn,
vilji það sjá gígana í návígi, en fara þó að öllu með gát. Hann segir gosið kærkominn lærdóm fyrir marga.
Hraun hefur flætt úr gígunum í rúman mánuð og fyllt dalina sem voru í Geldingadölum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Örnefnanefnd fékk tillögur að fögru nafni
Grindavíkurbær, sem óskaði í lok
mars eftir tillögum um nafn á
gosstöðvarnar í Geldingadölum,
sendi örnefnanefnd tvær tillögur
til umsagnar. Eru það nöfnin
Fagradalshraun og Fagrahraun.
„Gígaröðin sem myndast hefur
eftir að eldgos hófst myndi bera
sama heiti, Fagradalsgígar og
Fagrahraunsgígar eftir því hvort
örnefnið verður fyrir valinu,“
segir á vef Grindavíkur. „Alls
bárust 339 hugmyndir að heiti á
hraunið. Þær hugmyndir sem oft-
ast voru nefndar voru í stafrófs-
röð: Dalahraun, Fagradalshraun,
Fagrahraun, Geldingadalahraun,
Geldingahraun og Ísólfshraun.“
2 4 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð