Fréttablaðið - 24.04.2021, Síða 8
REYKJAVÍKURBORG „Mikilvægt er
að byggja upp og efla þjónustu vel-
ferðarsviðs en ekki að markaðs-
væða hana,“ segir í bókun Sunnu
Magdalenu, borgarfulltrúa Sósíal-
istaflokksins, sem eins og fulltrúar
meirihlutaflokkanna í borgarstjórn
og fulltrúi Flokks fólksins greiddi
atkvæði gegn því að útvista þjón-
ustu velferðarsviðs til einkaaðila.
Það var Egill Þór Jónsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisf lokksins, sem
lagði tillöguna fram í velferðar-
ráði borgarinnar. Segir í tillögunni
að kanna ætti leiðir til að útvista
þjónustu velferðarsviðsins með
það að markmiði að stytta biðlista,
bæta þjónustu og auka hagkvæmni
í rekstri borgarinnar.
„Hugmyndin um að fé fylgi þjón-
ustuþega gæti opnað á möguleika
einkaframtaksins í þjónustu við
borgarbúa með góðum árangri og
bættri þjónustu. Sem dæmi væri
hægt að skoða möguleika á sam-
starfi við einkaaðila er við kemur
líkamsrækt eldri borgara, matar-
þjónustu og stuðningsþjónustu við
fatlað fólk svo eitthvað sé nefnt,“
segir í tillögu Egils.
Tillagan var felld með sex
atkvæðum fulltrúa Samfylking-
arinnar, Pírata, Vinstri grænna,
Sósíalistaflokks Íslands, og Flokks
fólksins gegn atkvæði Egils.
Fulltrúar Samfylkingarinnar,
Pírata og Vinstri grænna bókuðu
að í meirihlutasáttmála þessara
flokka með Viðreisn sé meginregla
að borgin sinni velferðarþjónustu
en haldi áfram samvinnu við félög
og hagsmunasamtök sem veiti
mikilvæga velferðarþjónustu með
samningum við borgina.
Kolbrún Baldursdóttir, borgar-
fulltrúi Flokks fólksins, bókaði að
gallar við útvistun væru f leiri en
kostir. „Stundum er þjónusta hrein-
lega slæm og illa komið fram við
fólk en yfirvöld máttlaus því þau
eru búin að afsala sér ábyrgðinni
á verkefninu og uppbyggð reynsla
hefur tapast með útvistuninni.
Enginn tekur að sér að reka fyrir-
tæki nema til að hagnast á því og
því maka margir krókinn í gegnum
rekstur og verkefni sem borgin
útvistaði,“ bókaði Kolbrún.
„Það eru vonbrigði að það sé ekki
pólitískur vilji til að kanna þann
möguleika að útvista þjónustu með
það að markmiði að bæta þjónustu
við borgarbúa. Það liggja tæki-
færi í því að auka hagkvæmni og fá
atvinnulífið til að sjá um þjónustu
við borgarbúa,“ segir í bókun sem
Egill lagði fram eftir að tillaga hans
var felld. gar@frettabladid.is
Hafna einkavæðingu í
velferðarþjónustunni
Tillaga um að útvista verkefnum hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar til
einkaaðila var kolfelld. Hugmyndin um að fé fylgi þjónustuþega gæti opnað á
möguleika einkaframtaksins, segir í tillögunni frá fulltrúa Sjálfstæðisflokks.
Þjónustumiðstöðvar velferðarsviðs Reykjavíkur
Reknar eru fimm þjónustumið-
stöðvar á vegum velferðarsviðs
Reykjavíkurborgarar. „Þær bjóða
upp á fjölbreyttan stuðning, ráð-
gjöf og þjónustu við einstaklinga
og fjölskyldur, veita sérfræði-
þjónustu í leik- og grunnskólum
og sinna verkefnum á sviði
forvarna og félagsauðs. Þar er
hægt að sækja um félagslega
ráðgjöf og stuðning til virkni,
fjárhagsaðstoð, sérstakan hús-
næðisstuðning, heimaþjónustu
og heimahjúkrun og margt fleira.
Miðstöðvarnar reka búsetuúr-
ræði fyrir fatlað fólk, félagsstarf
fyrir fullorðna auk ýmissa sér-
verkefna sem taka mið af þörfum
íbúa,“ segir á vef borgarinnar.
Í gistiskýli velferðarsviðs Reykjavíkur á Lindargötu eru 25 gistipláss fyrir heimilislausa karlmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þjónustumiðstöðin Álfabakka.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Enginn tekur að sér
að reka fyrirtæki
nema til að hagnast á því og
því maka margir krókinn í
gegnum rekstur og verkefni
sem borgin útvistaði.
Kolbrún Baldurs-
dóttir, borgar-
fulltrúi Flokks
fólksins
Aðalsafnaðarfundur 2021
Aðalsafnaðarfundur Háteigssóknar,
verður haldinn sunnudaginn 9. maí n.k.
í Safnaðarheimili kirkjunnar kl.12.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefnd.
Viltu aðstoð frá
góðum granna?
samfélagsverkefni
Unga fólkið í verkefninu Margar hendur vinna létt verk
vill aðstoða ykkur í sumar.
Við hjá Landsvirkjun höfum árum saman starfrækt sumar
vinnu flokka sem sinna uppbyggingu og fegrun starfsstöðva
fyrirtækisins og nágrennis. Jafnframt taka flokkarnir að
sér ýmis samstarfsverkefni með nágrönnum okkar vítt
og breitt um landið.
Við bjóðum fram vinnu sumarvinnuhópa og verkstjórn
í verkefni sem lúta að ræktun, hreinsun, viðhaldi og öðrum
umhverfisbótum, ásamt ýmsum samfélagsverkefnum.
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí og má nálgast
umsókn og allar nánari upplýsingar á landsvirkjun.is.
Hafðu samband ef þú ert nágranni okkar og vilt fá
vinnuhóp í heimsókn í sumar.
UMHVERFISMÁL Sigurður Atli Jóns-
son, varaformaður Arctic Green
Energy, var á fimmtudag gerður að
heiðurskonsúl í Kasakstan. Hann
segir þetta bæði heiður og starf, sem
sé þó ólaunað. Tilgangurinn sé að
styrkja tengingu landanna tveggja.
Eins og annars staðar er mikill
áhugi hins víðfeðma fyrrverandi
Sovétlýðveldis að ná árangri í lofts-
lagsmálum og horft til jarðvarma til
að ná settum markmiðum. Sigurður
segir töluverðan jarðhita í landinu
þó enn sé mikið starf óunnið.
„Íslensk ráðgjafarfyrirtæki hafa
komið að rannsóknum í landinu
sem Alþjóðabankinn hefur stutt
við,“ segir Sigurður. „Grunnupp-
lýsingar liggja fyrir og við erum
að byggja á því.“ Hann segir ekki
aðeins verið að kanna auðlindina
sjálfa heldur einnig regluverk lands-
ins þegar kemur að nýtingu.
Í Kasakstan sé horft til þess að
nýta jarðvarma á lághitasvæði til
hitunar. „Húshitun er svo stór hluti
af orkunotkuninni, allt að helming-
ur í hverju landi, og orkuskiptin því
stór breyta í loftslagsbaráttunni,“
segir Sigurður. – khg
Sigurður Atli gerður að
heiðurskonsúl í Kasakstan
2 4 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð