Fréttablaðið - 24.04.2021, Síða 34

Fréttablaðið - 24.04.2021, Síða 34
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Björk og Birkir hafa verið lykilvörur Foss Distillery en fyrirtækið er reiðubúið að hefja aftur framleiðslu að fullu þegar ferðamennirnir snúa aftur. Foss Distillery framleiðir ýmsar vörur úr etanóli. Vodka og brennivín frá Foss Distillery eru kennd við vörumerkið Helvíti. Við erum búin að vélvæða okkur svo framleiðslumöguleikar Foss Distillery eru miklu meiri í dag en þeir voru áður. Foss Distillery er vínframleiðandi sem fram að COVID byggði afkomu sína á framleiðslu áfengis. Þegar ferðamönnum fækkaði vegna ástandsins í heiminum dróst sala áfengis verulega saman en Jakob S. Bjarnason fram- kvæmdastjóri hjá Foss Distillery segir að þau hjá fyrirtækinu hafi þá tekið til sinna ráða. „Við færðum okkur frá því að framleiða eigin vörur yfir í að framleiða vörur fyrir aðra. Við höfum þróað vörurnar með sam- starfsaðilum og framleitt þær en höfum látið samstarfsaðilana sjá um markaðshlutann. Þann- ig höfum við brugðist við okkar samdrætti,“ segir Jakob. „Við höfum meðal annars verið að framleiða hreinsivökva fyrir Ásthildi Gunnlaugsdóttur hjá Mist & Co.“ Vörurnar sem Foss Distillery framleiðir fyrir Mist & Co eru tvenns konar, það er Deep Clean sem djúphreinsar förðunarbursta og Daily sem er aðeins mýkri og hugsaður til að hreinsa förð- unarbursta eftir hverja notkun. Ásthildur sagði einmitt frá þessari nýju hreinsivörulínu í viðtali við Fréttablaðið fyrr í mánuðinum, en þar segist hún hafa prófað 80 mis- munandi formúlur áður en hún fann þá réttu. Frá víni yfir í spritt Vörurnar sem Foss Distillery hefur verið að framleiða eru úr etanóli. Etanól er vínandi en framleiðslumöguleikarnir eru fjölbreyttir. „Etanólið er þeirrar náttúru að úr því má vinna f leira en áfenga drykki og um leið og COVID- 19 skrúfaði fyrir eftirspurnina í brennivínsframleiðslu varð sprenging í eftirspurn á sótt- hreinsispritti. Þannig að við fórum í það að þróa handspritt,“ segir Jakob. Munurinn á handsprittinu sem Foss Distillery framleiðir og hefðbundnu handspritti er að Foss blandar ilmkjarnaolíum saman við etanólið sem áður var grunnurinn í vodkanum. Jakob fór síðan í samstarf við þær Írisi Gunnarsdóttur og Ingu Krist- jánsdóttur hjá Mulier Fortis sem dreifa handsprittinu undir merkinu Númer eitt. Jakob nefnir að Foss Distill ery hafi einnig farið í samstarf við Rekstrarvörur og þróað með þeim yfirborðshreinsi og framleiði einnig fyrir RV sjúkrahússspritt og f leiri vörur. „Það er ekki gott að nota hand- sprittið sem yfirborðshreinsi þar sem það er olía í því,“ útskýrir hann og tekur fram að þó sprittið innihaldi etanól líkt og áfengi sé það alls ekki drykkjarhæft. Vinna etanól úr mjólk „Við höfum verið í samstarfi við Mjólkursamsöluna og Kaupfélag Skagfirðinga um framleiðslu á etanóli úr mjólkursykri sem kemur frá ostamysu. En það er verið að setja upp verksmiðju og undirbúa framleiðslu á etanóli á Sauðárkróki,“ segir Jakob. Hægt verður að framleiða um eina og hálfa milljón lítra af etanóli á ári úr þessari osta- mysu. Hún verður í fyrstu að mestu seld öðrum fyrirtækjum til iðnaðarnota. Nú gefst í fyrsta sinn á Íslandi möguleiki á að þróa og framleiða hundrað prósent íslenskar vörur úr hráefni sem er framleitt á Íslandi, ekki innflutt eins og staðreyndin er í dag. „Mjólkursamsalan byrjaði að vinna að verkefninu árið 2015 og það hefur auk okkar verið unnið í samstarfi við Matís, Háskólann á Akureyri og danska tækni- háskólann DTU. Við vorum í raun lykilaðili í þróun á þessari lausn. Við keyrðum alla rannsóknar- og þróunarvinnuna hér hjá okkur. Tilraunaverksmiðjan er hér í hús- næði Foss Distillery, segir Jakob. Jakob segir að þrátt fyrir að áfengisframleiðslan hafi dregist saman séu þau hjá Foss Distillery tilbúin að hefja aftur framleiðslu á fullu þegar ferðamennirnir fara að koma aftur. Fyrirtækið fjárfesti nýlega í auknum sjálf- virknibúnaði í pökkun þannig að ekkert er því til fyrirstöðu að auka áfengisframleiðsluna á ný þegar eftirspurnin eykst. „Við erum búin að vélvæða okkur svo framleiðslumögu- leikar Foss Distillery eru miklu meiri í dag en þeir voru áður, fyrir COVID,“ segir Jakob og er þokka- lega bjartsýnn á framtíðina. Lykilvörur Foss Distillery eru líkjörarnir Björk og Birkir sem byggja báðir á íslensku birki. Foss Distillery framleiðir einnig vodka og brennivín kennd við vöru- merkið Helvíti. „Við framleiðum líka Olafsson ginið, fyrir Eyland Spirits, en það hlaut tvenn gullverðlaun síðasta sumar,“ segir Jakob. „Við höfum alveg framleiðslu- getu til að bæta við nýjum vörum samhliða vínframleiðslu. Það eru miklir möguleikar í framleiðslu etanóltengdra vara. Ef einhver þarna úti er að spá og spekúlera í nýjum vörum þá má alltaf hafa samband.“ 2 kynningarblað 24. apríl 2021 LAUGARDAGURMATVÆLAIÐNAÐUR Á ÍSLANDI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.