Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 41
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins óskar eftir að ráða þjónustulundaða bílstjóra til að annast akstur fyrir ráðherra
hjá Stjórnarráði Íslands. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. október 2021.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meginverkefni ráðherrabílstjóra er akstur með ráðherra, ýmis konar þjónustuverkefni og önnur verkefni sem hópstjóri
ráðherrabílstjóra felur bílstjórunum. Vinnutími er breytilegur og því nauðsynlegt að viðkomandi hafi svigrúm til að vinna að
kvöldi og um helgar þegar þess gerist þörf. Umsækjendur þurfa að uppfylla ákveðnar þrekkröfur sem gerðar eru til starfsins
áður en til ráðningar kemur.
Hæfniskröfur
• Hreint sakavottorð skilyrði
• Gild ökuréttindi
• Gott líkamlegt atgervi
• Reglusemi og trúnaður áskilinn
• Stundvísi, snyrtimennska og rík þjónustulund áskilin
• Góð færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp áskilin
• Góð almenn tölvufærni
• Góð færni í íslensku í ræðu og riti skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og
ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Einnig er farið
fram á að umsókninni fylgi sakavottorð viðkomandi og útprentun úr málaskrá lögreglu, sjá nánar á heimasíðu Intellecta.
Ráðið er í stöðurnar til reynslu í sex mánuði með möguleika á fastráðningu í framhaldinu. Áhugasamir einstaklingar, óháð
kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta
gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og viðkomandi stéttarfélags
Nánari lýsing á starfi er á heimasíðu Intellecta. Upplýsingar veita: Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) og Thelma
Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511-1225
Ráðherrabílstjórar
Umbra þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins
Umbra - þjónustumiðstöð
Stjórnarráðsins er miðlæg
þjónustueining sem sér um
tiltekna rekstrarlega þætti
og annars konar þjónustu
fyrir ráðuneyti og stofnanir.
Starfsmenn eru 38 og
notendur þjónustunnar á
sjötta hundrað.
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐGJÖF RÁÐNINGAR RANNSÓKNIR
Að gera betur í dag en í gær
er drifkraftur nýrra hugsana
og betri árangurs.
Starfsmenn eru lykill
að árangri allra fyrirtækja.
Rannsóknir auka þekkingu
og gera ákvarðanir markvissari