Fréttablaðið - 24.04.2021, Qupperneq 45
Vínbúðirnar leita að þjónustumiðuðum,
metnaðarfullum og árangursdrifnum starfsmanni
í starf þjónustustjóra á sölu- og þjónustusviði.
Brennur þú fyrir
þjónustu og rekstri?
Þjónustustjóri mun:
• veita verslunarstjórum stuðning til að tryggja framúrskarandi
þjónustu, ásýnd og skilvirkni
• leiða verkefna- og umbótastarf í Vínbúðunum
• hafa yfirumsjón með samræmingu á skipulagi mönnunar Vínbúðanna
• fylgja eftir árangri Vínbúðanna út frá markmiðum og lykilmælikvörðum
• sjá til þess að þjónustuviðmiðum sem snerta Vínbúðirnar í gildandi
stefnu sé fylgt eftir
Hæfniskröfur:
• Yfirgripsmikil þekking og reynsla af stjórnun og rekstri verslana
• Afburða hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og metnaður í starfi
• Rík þjónustulund og jákvæðni
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og sveigjanleiki í starfi
• Greiningarhæfni
ÁTVR rekur 50 Vínbúðir um allt land. Stefna fyrirtækisins er
að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd
á sviði samfélagsábyrgðar. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn
sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur þar sem samskipti
einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.
Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 3. maí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is
Nánari upplýsingar veitir: Guðrún Símonardóttir, starf@vinbudin.is, 560 7700
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af
þessum gildum.
• Sveinspróf skilyrði.
• Starfsreynsla.
• Samskiptahæfni og geta til að vinna í teymi.
• Frumkvæði og sjálfstæði eru mikilvægir kostir.
Sigurgeir Svavarsson ehf.
var stofnað árið 2003 og starfar
á stór - Eyjafjarðarsvæðinu.
Fyrirtækið hefur, síðustu ár,
lagt áherslu á byggingu húsa úr
kross límdu tré og býr yfir mikilli
reynslu á því sviði.
Einnig sinnir fyrirtækið fjöl-
mörgum viðhaldsverkefnum
fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Hjá fyrirtækinu eru 15 starfs-
menn af báðum kynjum.
Sigurgeir Svavarsson ehf. óskar eftir að ráða vanan smið til framtíðar starfa í
hóp öflugra starfsmanna fyrirtækisins. Mörg og krefjandi verkefni fram undan.
Menntunar- og hæfniskröfur:
VANUR SMIÐUR
á Akureyri eða nágrenni
Nánari upplýsingar um starfið
veitir Sigurgeir Svavarsson
í síma 898 6027 og
ssvavarsson@simnet.is.
Auglýsir eftir fasteignasala í samningadeild.
Um er að ræða fullt starf á skrifstofu stofunnar.
STARFSSVIÐ:
skjalagerð, samningagerð, lögskilauppgjör o.fl.
Reynsla er æskileg.
Löggilding fasteignasala skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 1. Maí 2021.
Allar umsóknir eru trúnaðarmál.
Vinsamlegast sendið inn umsókn á:
sigurdur@fstorg.is
ATVINNUBLAÐIÐ 9LAUGARDAGUR 24. apríl 2021