Fréttablaðið - 24.04.2021, Síða 48
Dómsmálaráðuneytið leitar að metnaðarfullum og drífandi lögfræðingum
sem hefur áhuga á að starfa með öflugum hópi starfsmanna að málum á sviði
almanna- og réttaröryggis.
Skrifstofa almanna- og réttaröryggis hefur umsjón með þeim málaflokkum í
íslenskri stjórnsýslu er varða með einum og öðrum hætti öryggi almennings og
réttaröryggi í landinu. Þannig sinnir skrifstofan stefnumótun og úrlausn mála í
eftirtöldum málaflokkum: löggæsla, málefni landamæra, ákæruvald, fullnusta
refsinga, landhelgisgæsla, almannavarnir og alþjóðleg réttaraðstoð, ásamt
aðgerðum gegn ýmis konar brotastarfsemi, s.s. peningaþvætti, skipulagðri
brotastarfsemi, mansali, tölvuglæpum og hryðjuverkum. Skrifstofan sinnir
jafnframt umfangsmiklu alþjóðasamstarfi á þeim sviðum sem undir hana heyra.
Menntunar– og hæfniskröfur
• Fullnaðarnám í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi
• Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla sem lögfræðingur
• Þekking og reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg
• Þekking og reynsla af málefnasviði ráðuneytisins kostur
• Þekking eða reynsla af stefnumótun og verkefnastjórnun kostur
• Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Mjög góð enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Góð kunnátta á einu Norðurlandamáli er kostur
• Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Mjög góð forystu- og samskiptahæfni
Nánari upplýsingar veitir Ragna Bjarnadóttir, skrifstofustjóri í síma 545 9000
Um fullt starf er að ræða. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Félags háskóla-
menntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármálaráðherra.
Sótt er um starfið rafrænt á Starfatorg.is og er umsóknarfrestur til 3. maí nk.
Umsókn skal fylgja prófskírteini, ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin
á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Lögfræðingar
í dómsmálaráðuneytinu
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
Erum við
að leita
að þér?