Fréttablaðið - 24.04.2021, Page 48

Fréttablaðið - 24.04.2021, Page 48
 Dómsmálaráðuneytið leitar að metnaðarfullum og drífandi lögfræðingum sem hefur áhuga á að starfa með öflugum hópi starfsmanna að málum á sviði almanna- og réttaröryggis. Skrifstofa almanna- og réttaröryggis hefur umsjón með þeim málaflokkum í íslenskri stjórnsýslu er varða með einum og öðrum hætti öryggi almennings og réttaröryggi í landinu. Þannig sinnir skrifstofan stefnumótun og úrlausn mála í eftirtöldum málaflokkum: löggæsla, málefni landamæra, ákæruvald, fullnusta refsinga, landhelgisgæsla, almannavarnir og alþjóðleg réttaraðstoð, ásamt aðgerðum gegn ýmis konar brotastarfsemi, s.s. peningaþvætti, skipulagðri brotastarfsemi, mansali, tölvuglæpum og hryðjuverkum. Skrifstofan sinnir jafnframt umfangsmiklu alþjóðasamstarfi á þeim sviðum sem undir hana heyra. Menntunar– og hæfniskröfur • Fullnaðarnám í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi • Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla sem lögfræðingur • Þekking og reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg • Þekking og reynsla af málefnasviði ráðuneytisins kostur • Þekking eða reynsla af stefnumótun og verkefnastjórnun kostur • Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Mjög góð enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Góð kunnátta á einu Norðurlandamáli er kostur • Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni • Mjög góð forystu- og samskiptahæfni Nánari upplýsingar veitir Ragna Bjarnadóttir, skrifstofustjóri í síma 545 9000 Um fullt starf er að ræða. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Félags háskóla- menntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið rafrænt á Starfatorg.is og er umsóknarfrestur til 3. maí nk. Umsókn skal fylgja prófskírteini, ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Lögfræðingar í dómsmálaráðuneytinu Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is Erum við að leita að þér?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.