Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 80
BÍLAR FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is LÍFRÆN VOTTUN Fréttablaðið vinnur í samstarfi við Vott narstofuna Tún að sérblaði. Blaðið mun innihalda alls kyns fróðleik um lífrænar afurðir, ásamt viðtölum og umfjöllunum. Blaðið kemur út 30. apríl nk. Vertu viss um að tryggja þér gott auglýsingapláss í langmest lesna blaði landsins. Nánari upplýsingar um blaðið veitir Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654 / jonivar@frettabladid.is Samkvæmt frétt The Korean Times er Apple nálægt því að skrifa undir samstarfssamning um framleiðslu bíla fyrir tölvurisann. LG Magna er samstarfsvettvangur LG Electron­ ics sem framleiðir meðal annars rafhlöður fyrir rafbíla, og Magna sem framleiðir íhluti í bíla. Fyrir nokkrum vikum var það í fréttum að kóreska bílamerkið Hyundai væri í svipuðum sporum, en það var svo dregið til baka af Apple. LG hefur haft víðtækt sam­ starf við Apple gegnum aðrar deildir sínar eins og LG Display, LG Chem, LG Energy Solution og LG Innoteck, svo að samstarfs­ samningur við LG Magna er ekki alveg út úr kortinu. Að sögn The Korean Times er samningurinn um litla framleiðslu til að byrja með þar sem um þróunarsamstarf er að ræða. Apple vill líka prófa hvernig viðtökur neytenda verða á vörunni, líkt og fyrirtækið gerir með aðra hluti. Líklegt er að Apple vilji bjóða upp á eitthvað öðru­ vísi, sérstaklega þegar kemur að notendaviðmóti. Tímasetningin fyrir Apple að koma á markað með rafbíl er með besta móti um þessar mundir.  Apple nálgast samning við LG Magna Kannski er þess ekki langt að bíða að Apple-bílabúðir opni dyr sínar. Toyota hefur kynnt til sögunnar fyrsta hreina rafbíl merkisins sem verður byggður á nýjum undirvagni og keppa mun við Volkswagen ID.4 og Tesla Model Y. Toyota bZ4X er fyrsti rafbíllinn af sjö sem kynntir verða fram til ársins 2025. Bíllinn kemur á e­TNGA undirvagninum sem er sveigjanlegur að því leyti að hægt er að stækka hann og minnka eftir þörfum hvers módels. Undir­ vagninn var þróaður í samstarfi við Subaru sem hafði hönd í bagga með hönnun fjórhjóladrifsins. Toyota hefur ekki gefið upp neinar stærðartölur en sagt að um milli­ stóran jeppling sé að ræða. Talan 4 í nafninu bendir þó til þess að hann sér svipaður af stærð og RAV4. Hjólhafið virðist í lengra lagi en Toyota segir að fótarými sé svipað og í Lexus LS, svo gott má það vera. Að sögn Toyota verður bíllinn meðal annars búinn sólar­ sellum til hleðslu. Að innan er bíllinn alveg ný hönnun eins og sést vel á litlu mælaborði og stórum upplýsinga­ skjá. Það sem flestir taka þó strax eftir er óvenjulegt stýri bílsins. Lagið er þannig að ökumaður mun ekki þurfa að taka hönd af stýri til að leggja á það, en það mun breyta átaki eftir hraða bílsins. Þessi tækni verður fyrst kynnt í Kína, en Toyota áformar að kynna það á heimsvísu á seinni stigum. Bíllinn mun koma í framleiðslu árið 2022 og er væntanlegur í sölu það sumar. Toyota kynnir bZ4X sem tilraunabíl Ytra útlit bílsins er í takt við hvassar línur nýrri gerða Toyota-tvinnbíla og glansandi plast í brettum vekur athygli ásamt löngu húddinu. Stýrið er þannig uppsett að öku- maður þarf bara að leggja einu sinni á það, jafnvel við U-beygju. Volkswagen hefur sent frá sér frétta­ tilkynningu um að allar sportút­ gáfur merkisins í framtíðinni muni bera undirmerkið GTX. Fyrir eru heiti eins og GTI, GTD og GTE sem eru fyrir sportútgáfur bensínbíla, dísilbíla og tengil tvinn bíla. Fyrsti bíllinn til að fá GTX­merk­ ið verður VW ID.4 GTX sem frum­ sýndur verður í lok mánaðarins. Hann verður að öllum líkindum með sömu 302 hestafla rafmótora og Skoda Enyaq vRS og verður því um 6,2 sekúndur í hundraðið. Sá búnaður er tveir rafmótorar, hvor fyrir sinn öxulinn, og er aflið venju­ lega aðeins á afturdrifi. Við snögga inngjöf kemur aflið líka á fram­ drifið eða þegar aksturskerfi bílsins skynja að hann sé að missa grip. Hægt verður að hafa hann í fjór­ hjóladrifi eingöngu með svokölluðu Traction­aksturskerfi. GTX verður undirmerki Volkswagen fyrir öflugri gerðir rafbíla Volkswagen áætlar að auka sölu rafbíla, meðal annars með sport- legum GTX-útgáfum. Þetta er í fimmta sinn sem bíll frá Volkswagen hlýtur þessi verð- laun en VW Golf, Polo og Up hafa hlotið titilinn áður.  njall@frettabladid.is Á þriðjudag var tilkynnt um úrslit í vali á heimsbíl ársins 2021. Að valinu standa 93 bílablaðamenn frá 28 löndum og eru veitt verðlaun í nokkrum flokkum. Volkswagen ID.4 rafbíllinn hlaut titilinn Heimsbíll ársins að þessu sinni en áður hafði VW Golf hlotið verð­ launin 2013, VW Up 2012, VW Polo 2010 og VW Golf 2009. Alls voru 24 bílar í forvalinu og var sá hópur minnkaður niður í þrjá bíla í lok mars, en í úrslitum voru ásamt VW ID.4, Toyota Yaris og Honda e. Bílar sem taka þátt í valinu þurfa að vera framleiddir í að lágmarki 10.000 eintökum og vera til sölu í hið minnsta tveimur heimsálfum. Auk þess að velja Heimsbíl ársins voru veitt verðlaun í nokkrum öðrum flokkum. Í f lokki lúxus­ bíla var það Mercedes­Benz S­lína sem skaut öðrum ref fyrir rass, en í úrslitum voru einnig Land Rover Defender og Polestar 2. Sportbíll ársins var Porsche 911 Turbo sem keppti við Audi RS Q8 og Toyota GR Yaris. Borgarbíll ársins 2021 var valinn Honda e sem atti kappi við nafna sinn Honda Jazz og Toyota Yaris. Loks var hönnun ársins talin vera Land Rover Defender en hann hafði betur gegn Honda e og Mazda MX30. Síðast en ekki síst velur hópurinn sem stendur að valinu Bílamann ársins. Sá sem hlaut heiðurinn að þessu sinni var enginn annar en Akio Toyoda, for­ stjóri og stjórnarformaður Toyota­ samsteypunnar. Toyota var eitt af fáum bílamerkjum sem skiluðu hagnaði á síðasta ári.  Volkswagen ID.4 er heimsbíll ársins Volkswagen ID.4 er vel að titlinum kominn enda afburða rúmgóður rafbíll með 500 km drægi. Defender var endurhannaður eins og um nýjan bíl væri að ræða. bZ4X er fyrsti rafbíll Toyota af sjö fyrir 2025. 2 4 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R40 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.