Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 91
Kolbrún: Þarna hlýtur baráttan að standa á milli Anth
ony Hopkins og Chadwick heitins Boseman en báðir
eru frábærir í hlutverkum sínum. Ég hallast að Hopkins
sem er algjörlega frábær og veitir manni afar sannfær
andi sýn inn í heim Alzheimersjúklings. Ég held þó að
Boseman hreppi styttuna fyrir afar áhrifamikla túlkun
sína. Þetta er eina tækifæri hans til að fá Óskarinn og
ég held að styttan verði hans. Það mun verða hjart
næm stund.
Þórarinn: Valið stendur klárlega milli Anthony
Hopkins og Chadwick Boseman en enginn deilir við
dauðann og Boseman, sá frábæri leikari, er öllum
harmdauði og ekkert getur komið í veg fyrir að aka
demían sýni honum verðskuldaðan sóma og virðingu
með styttunni. Hopkins á líka eina styttu fyrir og
hefur verið tilnefndur sex sinnum en þessi tilnefning
Bosemans er hans fyrsta og því miður sú síðasta.
Kolbrún: Ég er einlægur aðdáandi hinnar stórkost
legu leikkonu Violu Davis sem aldrei stígur feilspor.
Ég veðja á hana og held að akademían geri það líka.
McDormand hlýtur þó að eiga talsverða möguleika.
Vanessa Kirby er fantagóð í Pieces of a Woman og
gæti orðið óvæntur sigurvegari, en ég á samt ekki
sérstaklega von á því.
Þórarinn: Fengi ég einhverju ráðið fengi Carey Mull
igan þessi verðlaun fyrir Promising Young Woman.
Vegna þess að hún er frábær í góðri mynd en fékk
einhvern leiðinda rembuskít yfir sig frá gagnrýn
anda Variety. Óskarinn mætti alveg senda fingurinn
í fílabeinsturninn með verðlaunum til hennar en
vindurinn er í seglin hjá Violu Davis sem stelur
styttunni frá Frances McDormand og eyðileggur
Nomadland alslemmuna í leiðinni.
Kolbrún: Sacha Baron Cohen er
ansi góður í The Trial of Chicago 7
og fær mitt atkvæði en ég held að
Daniel Kaluuya hreppi styttuna.
Satt að segja finnst mér þessi
flokkur einna minnst spennandi
einfaldlega vegna þess að mynd
irnar þykja mér ekkert sérstakar.
Þórarinn: Sacha Baron Cohen
er vissulega góður í The Trial of
Chicago 7 og trommar meira að
segja upp með ekta Óskarsverð
launahárgreiðslu en samfélags
stemningin í heimsþorpinu er
með Judas and the Black Messiah.
Myndin er enda með tvo leikara
tilnefnda í þessum flokki; Lakeith
Stanfield og Daniel Kaluuya og sá
síðarnefndi tekur þetta með glæsi
brag. Reyndar má gera alvarlegar
athugasemdir við það hvers vegna
hann er ekki tilnefndur í flokki
aðalleikara en þá hefði hann að
vísu mætt Boseman og þurft að
lúta í lægra haldi.
Kolbrún: Ég hef einungis séð
stiklur úr Minari en þær benda til
að YuhJung Youn eigi Óskarinn
skilið og ég hef trú á því að hún
vinni. Hinar fjórar leikkonurnar
eru allar góðar í sínum hlutverkum
en Amanda Seyfried finnst mér
best þeirra, hún er unaðsleg
Marion Davies í Mank.
Þórarinn: Amanda Seyfried var
vissulega dásamleg í Mank og
hélt Gary Oldman heldur betur á
tánum í þeirra senum en YuhJung
Youn á verðlaunin svo sannarlega
skilið og fær þau. Ég ætla samt að
leyfa mér að láta persónulegar
skoðanir mínar og dynti ráða
hérna og veðja á Maria Bakalova í
Borat Subsequent Moviefilm.
Hún er það langbesta við þetta
útvatnaða og heldur mislukkaða
framhald epísku snilldarinnar
Borat: Cultural Learnings of Amer
ica for Make Benefit Glorious
Nation of Kazakhstan og sýnir leik
sem er mörgum klössum ofar en
myndin sjálf.
Besta leikkona
Viola Davis Ma Rainey’s Black Bottom
Andra Day The United States vs.
Billie Holiday
Vanessa Kirby Pieces of a Woman
Carey Mulligan Promising Young
Woman
Frances McDormand Nomadland
Besti leikari í
aukahlutverki
Sacha Baron Cohen The Trial of
Chicago 7
Daniel Kaluuya Judas and the
Black Messiah
Leslie Odom One Night in Miami
Lakeith Stanfield Judas and the
Black Messiah
Paul Raci Sound of Metal
Besta leikkona í
aukahlutverki
Glenn Close Hillbilly Elegy
Maria Bakalova Borat Subsequent
MovieFilm
Olivia Colman The Father
Amanda Seyfried Mank
Yuh-Jung Youn Minari
Besti leikari
Riz Ahmed Sound of Metal
Chadwick Boseman Ma Rainey’s Black Bottom
Anthony Hopkins The Father
Gary Oldman Mank
Steven Yeun Minari
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 51L A U G A R D A G U R 2 4 . A P R Í L 2 0 2 1