Fréttablaðið - 05.05.2021, Page 10
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og sambýliskona,
Ágústa Erla Andrésdóttir
lést 1. maí.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 7. maí kl. 15.
Tryggvi Sigurðsson Erla Haraldsdóttir
Ágúst Ingi Sigurðsson Eva Leplat Sigurðsson
Andrés Þorsteinn Sigurðsson Ása Svanhvít Jóhannesdóttir
Lóa Ósk Sigurðardóttir Kári Hrafn Hrafnkelsson
Sigurður Sigurðsson Hildur Guðmundsdóttir
Guðbergur Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku sonur okkar, bróðir,
barnabarn og frændi,
Jökull Frosti Sæberg
Daníelsson
lést mánudaginn 26. apríl á
Landspítalanum á Hringbraut.
Útförin fer fram í Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 7. maí klukkan 11.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu
aðstandendur og fjölskylda viðstödd.
Streymt verður frá útförinni og verður hægt að nálgast
aðgang hjá nánustu aðstandendum. Blóm og kransar eru
afþakkaðir en bent er á styrktarreikning hjá bróður Jökuls:
0123-15-027964, kt. 141114-2040.
Berglind Arnardóttir
Daníel Sæberg Hrólfsson Agnes Björk Stefánsdóttir
Hrólfur Sæberg Daníelsson
Hrólfur Sumarliðason Sólveig Sæbergsdóttir
Örn Tryggvi Gíslason Katrín Sigmarsdóttir
Okkar ástkæri bróðir, mágur og frændi,
Valdimar Ingibergur
Þórarinsson
Skúlagötu 40B,
áður Gnoðarvogi 28,
lést á Landspítalanum
sunnudaginn 2. maí.
Hólmfríður Þórarinsdóttir Jón Þórir Jóhannesson
Elísabet Guðrún Þórarinsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Ólafur Örn Arnarson
læknir,
Mánatúni 2, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
síðastliðinn laugardag. Útför fer fram í
Fossvogskirkju 12. maí kl. 11. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Krabbameinsfélagið.
Guðrún K. Ólafsdóttir
Sverrir Ólafsson Ingibjörg Hauksdóttir
Katrín Ólafsdóttir Ole Aaboe Jörgensen
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Oddbjörg Leifsdóttir
Brekku, Andakílsárvirkjun,
lést föstudaginn 30. apríl.
Útförin fer fram frá Reykholtskirkju
laugardaginn 8. maí kl. 14.00.
Jarðsett verður í Hvanneyrarkirkjugarði að athöfn lokinni.
Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu ættingjar
og vinir viðstaddir.
Útförinni verður streymt á kvikborg.is
Gísli Jónsson
Jón Gíslason Áslaug Guðný Jónsdóttir
Áslaug Ella Gísladóttir Arnar Hólmarsson
Kristín Gísladóttir Kristinn Óskar Sigmundsson
Leifur Welding
Guðfinna Gísladóttir Pétur Bj. Guðmundsson
barnabörn og langömmubarn.
Ástkær systir mín
og systurdóttir okkar,
Sherry Inga Halterman
lést 2. mars 2021 á sjúkrahúsi í USA.
Jarðarför fór fram í kyrrþey.
Margrét Kristín Halterman Halldór Gísli Gunnarsson
Valdís Skúladóttir Pétur Andrés Pétursson
Kolbrún Skúladóttir Steinþór Aðalsteinsson
Það er ekki auðvelt að vera með veislur á COVID-tím-um, svo ég held bara upp á afmælið allt árið,“ segir Guð-björg Lind Jónsdóttir mynd-listarkona sem varð sextug í
febrúar. Hún ætlar að opna sýninguna
Brot af heild – á mörkum hugar og nátt-
úru þann 8. maí á Hlöðulofti Korpúlfs-
staða. Sú sýning er upptaktur útgáfu
samnefndrar bókar í ágúst. „Ég hef verið
að safna ýmsu frá ferlinum í þessa bók,
mest eru það myndir af verkum og síðan
segi ég frá, en f lestir textarnir eru eftir
aðra,“ lýsir hún.
Áskorun að stilla upp
Nú er Guðbjörg Lind nýstigin upp úr
nokkurra daga lasleika eftir COVID-
sprautu en kveðst vera svo heppin að
hafa verið komin með myndverkin sín
á Hlöðuloftið á Korpúlfsstöðum áður,
og búin að finna út hvar þau pössuðu
þannig að þau sköpuðu hennar hugar-
heim. „Þetta er spennandi rými en það
er líka mikil áskorun að stilla upp því
víða er plássið undir súð. Sums staðar
er gríðarlega hátt til lofts og þar get ég
nýtt hráa steypuveggina fyrir verk sem
ég vann á Spáni fyrir kirkjuna í Santiago
De Compostela. Við sýndum þar þrjár
saman, Kristín frá Munkaþverá, Guð-
rún Kristjánsdóttir og ég, við erum lítill
gjörningaklúbbur. Ég hef verið líka í sjö
manna listahópi sem hefur ekkert nafn
en var á tímabili kallaður Kvennabragg-
inn og öðru tímabili Lýðveldishópurinn.
Við höfum farið víða og sýnt í óhefð-
bundu rými,“ segir Guðbjörg Lind sem
á fjölda sýninga að baki, bæði hér á landi
og erlendis.
Ólst upp með lykt af litum
Guðbjörg Lind er Ísfirðingur og segir það
hafa verið fjarlægan draum í uppvextin-
um að geta unnið við myndlist. „Á þeim
tíma var lítið um sýningar á Ísafirði en
ég ólst upp með lykt af olíulitum því
pabbi var áhugamálari og því var líka
mikið til af bókum um eldri meistara og
frumkvöðla í myndlist. Það hafði áhrif.
Það var olíukynding hjá okkur, ofnarnir
í stofunni voru sléttir og við syst kinin
undum okkur við að leggja vélrit-
unarpappír upp að ofnunum og teikna
myndir með vaxlitum sem bráðnuðu í
hitanum. Við fengum frekar frjálst og
skapandi uppeldi og hvatningu, enda
hafði ég alltaf gaman af að teikna, eins
og gamlar skólabækur sýna. Sautján ára
var ég komin inn í Myndlista- og hand-
íðaskólann og stefndi á myndmennta-
kennarann. Þegar ég var búin með tvö
ár þar og átti eitt eftir vissi ég að ég yrði
að fara í málaradeild og tók þrjú ár þar.
Þá varð ekki aftur snúið.“
Landslagið á Vestfjörðum veitti Guð-
björgu Lind innblástur, einkum til að
byrja með. „Vestfirska landslagið var
sterkt í verkum sem ég sýndi fyrst, 1988.
Það voru fossaverk með háum fjallshlíð-
um og yfirleitt var bara smá himinræma
efst. Ég pældi ekkert í því þá. Seinna hafa
komið inn eyjar og víðara landslag. Einu
sinni sýndi ég þjóðsagnakennd verk í
Vigur í Ísafjarðardjúpi sem maðurinn
minn, Hjörtur Marteinsson, bjó til texta
við. Ég keypti nokkur borð í Góða hirð-
inum, bjó til úr þeim málaraskúlptúra
og kallaði sýninguna: Lagt á borð fyrir
vætti sjávar.“ gun@frettabladid.is
Sýnir list á hlöðulofti
Brot af heild – á mörkum hugar og náttúru, er bæði titill sýningar sem Guðbjörg Lind
Jónsdóttir opnar á Hlöðulofti Korpúlfsstaða 8. maí og bókar sem kemur út síðar.
Guðbjörg Lind segir það hafa verið fjarlægan draum í uppvextinum að geta unnið við myndlist. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sums staðar er gríðarlega hátt
til lofts og þar get ég nýtt hráa
steypuveggina fyrir verk sem
ég vann á Spáni fyrir kirkjuna í
Santiago De Compostela.
5 . M A Í 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R10 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT