Fréttablaðið - 05.05.2021, Síða 11

Fréttablaðið - 05.05.2021, Síða 11
ALLT K Y N N I NG A R B L A Ð MIÐVIKUDAGUR 5. maí 2021 Aukin orka fyrir þig, ástina og lífið Orkuleysi, framtaksleysi, þreyta, slen, minnkaður áhugi og geta í kynlífi eru allt einkenni sem mjög stór hópur fólks upplifir einhvern tíma á ævinni. Þessi einkenni eiga jafnt við um karla sem konur, geta haft afar óæskileg áhrif á lífsgæði fólks og má alls ekki vanmeta. 2 Inga Kristjánsdóttir og Íris Gunnarsdóttir hjá Mulier Fortis ehf. kynna nýjar og spennandi vörur sem stuðla að aukinni orku og bættri heilsu. MYND/AÐSEND Ásta gaf út plötuna Sykurbað árið 2018 og fékk fyrir hana Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins. Nú kveður við nýjan tón. Nýtt lag eftir Ástu Kristínu Pjet- ursdóttur kemur út á morgun og ber nafnið Kaffi hjá Salóme. Lagið er það fyrsta af komandi plötu tónlistarkonunnar sem verður konseptplata. Lagið samdi Ásta eftir að hafa farið heim til Salóme í kaffi og pönnukökur, en Salóme syngur með Ástu í laginu. Salóme Katrín gaf út plötuna Water í fyrra, sem að mati Ástu er ein besta plata síðasta árs. Kaffi hjá Salóme markar nýtt upphaf hjá Ástu sem tónlistarkonu og manneskju. „Sem listamaður vill maður þróast og ekki festast í sömu sporunum. Kaffi hjá Salóme er rökrétt framhald og setur góðan tón fyrir það sem koma skal,“ segir Ásta. Undirtónn „... Svartur skjögtari, ósamstæð glös framandleg glerstjörnugrös tungusófinn ullar á mig ...“ Að sögn fjallar lagið að mestu um vináttu og að eiga fallegar stundir saman. „Þetta var svo falleg og björt stund. En jú, það er líka einhver dimmur undirtónn í laginu sem ég get kannski ekki alveg útskýrt.“ johannamaria@frettabladid.is Enn dimmur undirtónn

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.