Fréttablaðið - 05.05.2021, Side 20
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654.
„Þegar ég opnaði bloggið fyrst fyrir
akkúrat fjórum árum var aðal-
áherslan hjá mér á að gefa góð ráð
í framkvæmdum og sýna hvernig
hægt væri að flippa húsi án þess að
það kostaði of mikið, var meira í
áttina að lífsstílsbloggi þar sem ég
var líka með uppskrift og annan
fróðleik,“ segir María aðspurð um
tilkomu bloggsins.
Uppskriftirnar fengu fljótt meiri
athygli á blogginu og fann María
sömuleiðis fyrir sterkari áhuga í
matardeildinni þegar fram liðu
stundir og ákvað því að breyta
bloggsíðunni alfarið í heimilis- og
matarblogg.
Bloggið í höfuðið á ömmu
María segir engan vafa leika á því
hvaðan ástríða hennar fyrir mat
komi.
„Það er óhætt að segja að hún
komi frá Spáni, en ég er hálfur
Spánverji. Frænkur mínar og
amma voru alltaf í eldhúsinu að
elda þegar ég var sem barn úti hjá
þeim, ef þær voru ekki að elda þá
voru þær á matvörumarkaðnum
að versla mat eða tala um hvað átti
að vera í matinn daginn eftir og
næstu daga. Ég lærði mest að elda
af þeim, sérstaklega Paz, frænku
minni, og ömmu Paz sem bloggið
mitt er nefnt eftir.“
Fjölbreytni fyrir börnin
María er móðir fjögurra barna;
Gabríelu sem er fædd árið 1999
en hún á jafnframt von á sínu
fyrsta barni svo Maríu bíður
brátt ömmutitillinn og segist hún
hlakka mikið til.
„Svo kemur litla hrúgan eins og
ég kalla hana sem fæddist 2013,
2014 og 2015 en það eru þau Reynir
Leo, Mikael og Viktoría Alba,“ segir
María og viðurkennir að það sé oft
mikið fjör á heimilinu. Aðspurð
hvað hún leggi helst áherslu á í
mataræði barnanna segir hún fjöl-
breytni.
„Hér er allt leyfilegt í hófi. Ég
held að ef maður banni of mikið
eins og nammi sem dæmi þá verða
börn bara enn sólgnari í það. Ég
María útbýr hér ljúffengt pastasalat með bleikju og góðri ólífuolíu frá MUNA. MYND/ALDÍS PÁLSDÓTTIR
Hvað þýðir að uppfæra sjálfan sig?
„Ef við skoðum lífshætti okkar
og umhverfi þá þykir ekkert
nema sjálfsagt að laga það sem
bilar, kaupa nýjustu útgáfurnar
af tölvum, símum, úrum og þess
háttar. Við viljum vera í takt við
tímann og tíðarandann. En erum
við það alltaf sjálf?
Í amstri dagsins eigum við það
mörg hver til og eflaust öll á ein-
hverjum tímapunkti að gleyma því
að taka stöðutékk á sjálfum okkur
og tapa svolítið tengingunni við
sjálfið. Skoða hvort það þurfi að
laga eitthvað, athuga hvort allt sé
í lagi hjá okkur sjálfum, andlega
og líkamlega, og okkar nánustu
sambönd jafnvel og hvar þau
standa. Það að uppfæra sig þýðir
meðal annars það að taka samtalið
við sjálfan sig og skoða sig reglu-
lega, finna þarfir sínar og skoða
hvort þær hafi mögulega breyst
og uppfæra drauma sína. Það fal-
lega er nefnilega að það má breyta
draumum, skipta um skoðanir og
upplifa nýjar þarfir. Það er partur af
andlegum vexti okkar.“
Hvernig byrjar maður að iðka
aukna sjálfsást?
„Með því að staldra aðeins við,
skoða rútínuna sína, umhyggju
til sjálfs sín, næringarinntökuna,
hreyfinguna eða skortinn á henni,
svefninn, samskipti sín við annað
fólk og fleira sem spilar stóran þátt
í daglega lífinu og skoða í hvaða
ástandi þessir þættir eru og hvort
þeir eru að hafa góð áhrif á lífið
eður ei. Spyrja sig spurninga á borð
við: „Hvernig hef ég það? Líður
mér vel af þessum mat? Er þessi
hreyfing góð fyrir minn líkama? Er
ég að hvílast þegar ég er þreytt? Eru
þessi samskipti góð fyrir mig?“ og
svo framvegis. Sjálfsást er nefnilega
beintengd við mörk, og ef maður
setur sér ekki mörk í lífinu eru meiri
líkur á að maður fjarlægist sjálfan
sig og gildin sín og taki rangar
ákvarðanir fyrir sig í alls kyns
formum. Fyrstu skrefin að aukinni
sjálfsást gætu til dæmis verið að
pússa til rútínuna sína, bæta við
dekurbaði fyrir svefninn, vakna
aðeins fyrr en venjulega og undir-
búa sig fyrir daginn í rólegheitum
og skoða mataræðið.“
Hvað gerir þú til þess að iðka
sjálfsást?
„Ég er að æfa mig í að gefa mér
meiri tíma daglega fyrir litlu hlut-
ina sem vega samt svo stórt. Eins og
að vakna snemma, taka öndunar-
æfingu við kertaljós, elda hafra-
graut og stilla mig inn í daginn.
Eins er heilög regla að dekra aðeins
við húðina með góðri hreinsun og
kremum í lok dags sem og að hreyfa
mig smá á hverjum degi. Þarna
þurfti ég til dæmis að uppfæra mig
því ég áttaði mig á því í þessum
hugleiðingum að að það hentaði
mér ekki lengur að hreyfa mig hratt
og með látum. Núna eru göngutúr-
ar til dæmis uppáhaldshreyfingin
mín. Þegar maður byrjar að hlusta
á sjálfan sig og heyra í sér kemur
nefnilega ýmislegt í ljós. Ég gæti
þess svo að umvefja mig góðu og
skemmtilegu fólki sem gerir líf mitt
ánægjulegt og innihaldsríkara.“
MUNA Lúxus hafragrautur
Kolbrúnar
1 dl. MUNA hafrar
1 tsk. MUNA chia-fræ
2 dl vatn
1 tsk. MUNA kókosolía
½ tsk. MUNA kanill
¼ tsk. salt
Toppaður með múslí, bláberjum,
döðlum og hnetusmjöri.
Fylgstu með Kolbrúnu Pálínu á
Instragram@kolbrunpalina
Hvernig hef ég það?
Kolbrún Pálína
mun fjalla um
andlegt og
líkamlegt heil-
brigði á muna.is
ásamt því að
deila upp-
skriftum.
MYND/ALDÍS
PÁLSDÓTTIR
MUNA Lúxus hafragrauturinn
hennar Kolbrúnar lítur mjög vel út.
reyni líka alltaf að hafa grænmeti
með hverri kvöldmáltíð.“
Pítsukvöldin heilög
María mælir með því að leyfa
litlum puttum að taka þátt í því að
undirbúa matinn fyrir fjölskyld-
una. „Ég leyfi þeim þegar hentar
að skera niður grænmeti fyrir
matinn, sem er sniðugt því þá eru
þau líka að stinga því upp í sig í
leiðinni og jafnvel búin að borða
fullt af grænmeti fyrir matinn og
svo meira með matnum,“ segir
María.
Spurð um uppáhaldsmat
barnanna segir hún steiktar grísa-
lundir með sætkartöflufrönskum
og sveppasósu vinsælasta réttinn
um þessar mundir.
„Á föstudögum eigum við
svo fast pítsukvöld eins og svo
margir,“ segir María um hefð sem
orðin er heilög hjá fjölskyldunni.
Stundum bara grjónagrautur
„Ég er alls ekki alltaf í stuði til að
elda, sérstaklega ekki þegar ég
hef verið í eldhúsinu við vinnu
allan daginn að semja og prófa
uppskriftir. Þá hef ég oft bara
f latkökur og skyr, eða jafnvel bara
tilbúinn grjónagraut í dollu og
lifrarpylsu með, enda fá allir hvort
eð er heita máltíð í hádeginu,“
segir hún spurð um vinsælasta
skyndibitann á heimilinu.
„Einnig spila f latkökurnar
stórt hlutverk sem nesti hjá
okkur þegar við förum út að leika
og bralla ásamt speltsnúðum,
hnetum og rúsínum,“ segir María
að lokum.
Muna – Bleikju pastasalat
stútfullt af hollri fitu, prótíni
og trefjum
250 g penne pasta frá Muna
1 box piccolo tómatar
Hnefafylli af ferskri basilíku
1 bleikjuflak
10-14 ferskar litlar mozzarella-
kúlur
1 stórt avókadó eða 2 lítil
Lífræn sítrónuolía frá Muna
Salt og pipar
Byrjið á setja vatn í pott og saltið
það vel, á að vera nánast eins og
sjóvatn á bragðið. Þegar suðan er
komin upp setjið þá pastað ofan í
og sjóðið skv. leiðbeiningum.
Hitið ofn í 200 °C og saltið og
piprið bleikjuna. Setjið hana í
heitan ofninn í 15-20 mínútur.
Skerið næst avókadó í bita og
tómatana og mozzarella kúlurnar í
tvennt. Þegar pastað og bleikjan er
til setjið þá pastað í fallega, grunna
salatskál.
Dreifið næst avókadó, tómötum
og mozzarella-kúlum fallega yfir
pastað. Skerið svo bleikjuna niður
og dreifið inn á milli. Toppið svo
með því að dreifa saxaðri, ferskri
basilíku yfir, hellið vel af sítrónu-
olíu yfir allt og saltið vel með grófu
salti og pipar.
Fylgstu með Maríu Gomez hér:
paz.is og instagram.com/paz.is
Kolbrún Pálína Helgadóttir, fjöl-
miðlakona og markþjálfi, hefur
alltaf lagt mikið upp úr líkam-
legu og andlegu heilbrigði. Hún
fjallaði á dögunum um mikil-
vægi þess að stunda svokallaða
sjálfsást og að uppfæra sjálfan
sig reglulega, rétt eins og hvað
annað.
Fyrstu skrefin að
aukinni sjálfsást
gætu til dæmis verið að
pússa til rútínuna sína.
Frænkur mínar og
amma voru alltaf í
eldhúsinu að elda þegar
ég var sem barn hjá
þeim á Spáni.
2 kynningarblað 5. maí 2021 MIÐVIKUDAGURMUNA