Fréttablaðið - 05.05.2021, Page 30
Falafel er vinsæll skyndibiti
í Miðausturlöndum. Falafel
inniheldur blöndu af kjúklinga-
baunum, ferskum kryddjurtum
og kryddi. Falafel er mótað í
bollur sem settar eru í flatbrauð
eða pítubrauð.
elin@frettabladid.is
Talið er að falafel eigi uppruna
sinn í Egyptalandi en breiddist
síðan hratt út um Miðausturlönd.
Hægt er að kaupa falafel á hverju
götuhorni á þessum slóðum og
gjarnan hjá götusölum. Falafel er
upplagður kvöldmatur ef enginn er
í stuði fyrir kjöt eða fisk.
Hér er uppskrift sem er mjög
bragðmikil og góð. Hún miðast við
fjóra.
500 g niðursoðnar kjúklingabaunir
1 laukur, fínt skorinn
3 stór hvítlauksrif, fínt skorin eða
pressuð
2 msk. kartöflumjöl
2 tsk. cumin
2 msk. kóríanderfræ, ristuð og
möluð í mortéli
½ tsk. chilli-pipar
¼ tsk. kardimommur
½ dl hökkuð steinselja
½ dl ferskt kóríander, smátt skorið
½ tsk. salt
Nýmalaður pipar
Olía til að steikja
Meðlæti:
Flatbrauð
Hummus
Salat
Agúrka
Tómatar
Rauðlaukur
Söxuð blaðsteinselja
Dressing
2 msk. tahini
2 msk. sítrónusafi
2 dl grísk jógúrt
1 hvítlauksrif, pressað
Hellið vökvanum af baununum.
Skolið þær í köldu vatni og þerrið.
Setjið í matvinnsluvél með lauk og
hvítlauk og maukið. Bætið við kart-
öflumjöli (má vera hveiti), cumin,
kóríanderfræjum, chilli og kardi-
mommum. Maukið allt saman í
gott deig og bragðbætið með salti
og pipar.
Mótið deigið í bollur, litlu stærri
en sænskar kjötbollur. Steikið upp
úr olíu.
Hrærið öllu saman sem á að fara
í dressinguna og berið fram með
bollunum ásamt brauðinu, salati,
hummus, gúrkum, tómötum, rauð-
lauk og chilli-pipar.
Gott flatbrauð
Þetta brauð passar einstaklega vel
með falafel og grænmeti. Upp-
skriftin á að duga í sex brauð.
25 g pressuger
3,5 dl volgt vatn
1 msk. sykur
500 g hveiti
½ msk. vatn
2 msk. olía
Látið gerið í volgt vatnið og látið
leysast upp með sykrinum. Setjið
hveiti, salt og olíu í hrærivél og
notið hnoðara. Bætið gerinu og
vatninu saman við og hnoðið.
Látið hefast undir plastfilmu þar
til deigið hefur tvöfaldast.
Deilið deiginu í sex jafnstóra
bolta og látið standa í tíu mínútur
undir rökum klút. Fletjið hvern
og einn út eins og pitsu. Deigið á
að vera ½ til 1 cm á þykkt. Steikið
brauðið á báðum hliðum á þurri
heitri pönnu. Geymið það undir
viskustykki þar til öll eru bökuð.
Best er að bera þau fram glæný.
Falafel í flatbrauði
Falafel í brauði er góður grænmetisréttur sem á ættir að rekja til Miðausturlanda. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Falafel er vinsæll
matur hjá götu-
sölum og í matarvögn-
um í Miðausturlöndum
en rétturinn var fundinn
upp í Egyptalandi.
Tómatsúpa sem bragð er af og hollustan í fyrirrúmi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Tómatsúpa er alltaf góð. Það er
auðvelt að útbúa hana og frábært
að taka með sér afgang í nesti.
Súpan er stútfull af vítamínum og
hollustu. Uppskriftin miðast við
fjóra. Það er hægt að nota smá-
tómata ef fólk vill frekar.
1 laukur
2 stór hvítlauksrif
1-2 msk. tómatpuré
500 g tómatar
1 dós niðursoðnir tómatar í bitum
5 dl kjúklingakraftur
2 tsk. sykur
1 msk. þurrkaðar chilli-flögur
Salt og pipar eftir smekk
Meðlæti:
Sýrður eða þeyttur rjómi
Fersk basilíka
Parmesanostur
Brauðteningar
Skerið lauk og hvítlauk smátt.
Skolið tómatana og skerið til
helminga. Fjarlægið fræin og
stilka. Hakkið tómatana. Hitið
olíu í potti og steikið lauk og hvít-
lauk yfir miðlungshita þar til þeir
mýkjast. Bætið við tómatpuré
og hrærið. Því næst eru ferskir
tómatar og tómatar úr dós settir
út í, kjúklingakraftur, sykur, chilli,
salt og pipar. Þá er smátt skorin
basilíka sett úti. Hrærið og látið
súpuna malla í 20-25 mínútur
með lokið hálfa leið yfir.
Notið töfrasprota til að mauka
súpuna og bragðbætið með salti
og pipar eða sykri eftir því sem
þarf.
Setjið súpuna á diska og stráið
basilíku ofan á ásamt rjóma og
parmesanosti. Steikið dagsgamalt
brauð í ólífuolíu eða bakið í ofni
við 200°C, skerið í bita og hafið
með súpunni.
Klassísk tómatsúpa
Vinsælustu Mandarina Duck
töskurnar komnar aftur!
KÍKTU VIÐ HJÁ OKKUR Á ÓÐINSGÖTU 1, 101 REYKJAVÍK
Sími 8341809 BOEL boelisland
Opið virka daga 12-18 laugardaga 12-16
www.boel.is
Crossover, tau svört
kr. 21.500
Crossover, tau mosagræn
kr. 21.500
Leður crossover svört
kr. 32.000-
Leður crossover indian tan
kr. 32.000-
Leður bumbag svört
kr. 25.900-
Leður bumbag indian tan
kr. 25.900-
Mandarina Duck
er ítalskt töskumerki
þekkt fyrir gæði,
gott skipulag
og alltaf smart.
NÝTT NÝTT
4 kynningarblað A L LT 5. maí 2021 MIÐVIKUDAGUR