Bændablaðið - 28.01.2021, Síða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 20214
Nú hefur atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið birt
niðurstöðu útboðs á toll kvót-
um vegna innflutnings land-
búnaðarvara frá ESB fyrir
tímabilið janúar-apríl 2021.
Hækkaði verð tollkvóta í öllum
tilfellum utan osta frá fyrra útboði.
Frá gildistöku tollasamnings
Íslands við ESB hefur verð á toll-
kvótum hins vegar lækkað um
47% að meðaltali og allt að 65%
í einstaka flokkum.
Í lok síðasta árs ákvað Alþingi
að færa útboð tollkvóta fyrir
landbúnaðarvörur tímabundið aftur
í fyrra horf þar sem úthlutað er til
hæstbjóðanda í stað jafnvægisútboðs,
en síðastliðið sumar var stuðst
við jafnvægisútboð í fyrsta sinn.
Markmiðið með því að taka aftur upp
fyrri útboðsleið var að lágmarka áhrif
kórónuveirufaraldursins á innlenda
framleiðslu landbúnaðarafurða en
við breytinguna í sumar lækkaði t.d.
verð á tollkvótum fyrir nautakjöt um
40% og unnar kjötvörur um 95%
frá fyrra útboði, á sama tíma og
tollkvótar hafa stóraukist í magni
og markaðurinn minnkað vegna
heimsfaraldursins. Á sama tíma hafa
verið miklar verðlækkanir til bænda.
Erfið staða
„Staðan í íslenskum landbúnaði
hefur verið erfið. Afurðaverð til
íslenskra bænda hefur fallið hratt,
samhliða auknum tollkvótum sem
hafa lækkað umtalsvert í verði.
Auk þess hafa verið verðhækkanir
á aðföngum undanfarið ár og því er
klipið af launalið bænda úr báðum
áttum. Það er von okkar að upptaka
fyrri útboðsaðferðar nú sporni gegn
frekari lækkunum á afurðaverði
með tilheyrandi versnandi afkomu
bænda,“ segir Gunnar Þorgeirsson,
formaður Bændasamtaka Íslands.
Verð á tollkvótum hefur
lækkað um 47% frá 2018
Frá ársbyrjun 2018 hefur verð á
tollkvótum fyrir landbúnaðarafurðir
lækkað um 47% að meðaltali,
en á sama tíma hefur vísitala
kjöts hækkað um 6%. Lækkun á
innkaupsverði innfluttra matvæla
skapar verðþrýsting á innlenda
framleiðslu og á tímabilinu hefur
afurðaverð til bænda lækkað
mikið. Ljóst er að lækkun á verði
tollkvóta hefur ekki verið að
skila sér til neytenda og virðist
ávinningurinn renna fyrst og fremst
til innflutningsaðila og verslunar,
ásamt því að lækka afurðaverð til
bænda.
Félag atvinnurekenda og Neyt
enda samtökin hafa haldið því fram að
hækkun á verði tollkvóta muni hafa
hækkandi áhrif á verð til neytenda.
Hins vegar lækkaði ekki verð til
neytenda þegar verð á tollkvótum
lækkaði síðastliðið sumar, þá mest
um 40% fyrir nautakjöt og 95% fyrir
unnar kjötvörur.
„Það gengur auðvitað ekki að
lækkun á verði tollkvóta eins og
við sáum í sumar skili sér einungis í
verðþrýstingi á innlenda framleiðslu
og ágóðinn af lægra innkaupsverði
heildsala og verslunar stoppi þar,
en hækkun á verði lendi alltaf á
neytandanum,“ segir Gunnar enn
fremur.
FRÉTTIR
Umsóknir um beingreiðslur vegna flutnings-
og dreifingarkostnaðar raforku
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
auglýsir beingreiðslur vegna flutnings- og
dreifikostnaðar raforku.
Í framhaldi af endurskoðuðum samningi
garðyrkjubænda við ríkið hefur verið gefin
út ný reglugerð nr. 1273/2020 um stuðning
við garðyrkju þar sem m.a. er fjallað um nýja
tegund beingreiðslna þ.e. beingreiðslur vegna
flutnings- og dreifingarkostnaðar raforku.
Í lV. kafla reglugerðarinnar er fjallað sérstak-
lega um beingreiðslur vegna flutnings- og
dreifingarkostnaðar raforku og þar segir í 17 gr.
Framleiðandi garðyrkjuafurða skal uppfylla
eftirfarandi skilyrði til að fá beingreiðslu:
a. Að orkukaupin séu vegna atvinnu-
starfsemi.
b. Að tilgreind raforka sé sérmæld og fari
einungis til lýsingar plantna í gróðurhúsi
til að örva vöxt þeirra.
c. Að framleiðslan sé ætluð til sölu.
d. Að ársnotkun til lýsingar sé meiri en 100
MWh á ári.
Þeir sem vilja öðlast rétt til beingreiðslna að
uppfylltum öðrum skilyrðum sem tilgreind eru
í reglugerð skulu senda rafræna umsókn inn á
www.afurd.is, undir „beingreiðslur C“ eigi síðar
en 15. febrúar n.k.
Stjórnarráð Íslands
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Umsóknir um beingreiðslur
vegna flutnings- og
dreifingar kostnaðar raforku
Úthlutun á ESB-tollkvótum á landbúnaðarafurðum:
Ekran fær stærstan hluta kjötkvótans
Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið hefur birt niðurstöður
úthlutunar Evrópusambands-
tollkvótum á kjötvörum, osti og
ystingi fyrir tímabilið frá 1. janúar
til 30. apríl 2021. Heildverslunin
Ekran fær langmest úthlutað
af kvótum fyrir kjötvörur, eða
rúmlega þriðjung, eða um 287
þúsund kíló. Varðandi osta og
ysting fær Natan & Olsen mest
úthlutað, 42.550 kíló, eða rúmlega
fimmtung kvótans. Bæði eru
fyrirtækin dótturfyrirtæki 1912
ehf.
Samtals bárust gild tilboð frá 23
fyrirtækjum í tollkvótana.
Tíu tilboðum
í nautgripakjöt tekið
Þrettán tilboð bárust í tollkvóta
vegna innflutnings á nautgripakjöti í
samtals 536.000 kíló, á meðalverðinu
177 krónur á kíló. Hæsta boð var
620 krónur á kíló, en lægsta boð
var 0 krónur. Tilboðum var tekið
frá tíu fyrirtækjum um innflutning á
232.000 kílóum á meðalverðinu 330
krónur á kíló.
Átta tilboð bárust í tollkvóta
vegna innflutnings á svínakjöti,
samtals 651.300 kíló á meðalverðinu
106 krónur á kíló. Hæsta boð var 303
krónur á kíló en lægsta boð var 0
krónur. Tilboðum var tekið frá sjö
fyrirtækjum um innflutning á 233.000
kílóum á meðalverðinu 204 krónur
á kíló.
Tólf tilboð bárust í tollkvóta
vegna innflutnings á alifuglakjöti í
samtals 894.700 kíló á meðalverðinu
217 krónur á kíló. Hæsta boð var
403 krónur á kíló en lægsta boð var
0 krónur. Tilboðum var tekið frá
átta fyrirtækjum um innflutning á
285.000 kílóum á meðalverðinu 357
krónur á kíló.
Fimm tilboð bárust í tollkvóta
vegna innflutnings á alifuglakjöti,
lífrænt ræktað/lausagöngu, samtals
154.000 kíló á meðalverðinu 117
krónur á kíló. Hæsta boð var 271
króna á kíló en lægsta boð var 1
króna á kílóið. Tilboðum var tekið
frá einu fyrirtæki um innflutning
á 67.000 kíló á meðalverðinu 239
krónur á kíló.
Tólf tilboð bárust í tollkvóta
vegna innflutnings á kjöti og ætum
hlutum af dýrum, saltað í saltlegi,
þurrkað eða reykt, samtals 131.000
kíló á meðalverðinu 40 krónur á kíló.
Hæsta boð var 332 krónur á kíló en
lægsta boð var 0 krónur. Tilboðum
var tekið frá átta fyrirtækjum um
innflutning á 33.000 kílóum á
meðalverðinu 147 krónur á kíló.
Pylsur og unnar kjötvörur
Átján tilboð bárust í tollkvóta vegna
innflutnings á pylsum og þess háttar
vörum úr kjöti, vegna samtals
322.400 kílóa á meðalverðinu 64
krónur á kíló. Hæsta boð var 459
krónur á kíló en lægsta boð var 0
krónur. Tilboðum var tekið frá tólf
fyrirtækjum um innflutning á 83.000
kílóum á meðalverðinu 233 krónur
á kíló.
Nítján tilboð bárust í tollkvóta
vegna innflutnings á öðru kjöti,
unnum kjötvörum eða kjöti sem
varið er skemmdum. Samtals bárust
tilboð í 426.100 kíló á meðalverðinu
128 krónur á kíló. Hæsta boð var
561 króna á kíló en lægsta boð var 0
krónur. Tilboðum var tekið frá þrettán
fyrirtækjum um innflutning á 133.000
kílóum á meðalverðinu 329 krónur
á kíló.
Ostar og ystingur
Fimmtán tilboð bárust í tollkvóta
vegna innflutnings á ostum og ystingi
á vörulið 0406, samtals 300.000 kíló á
meðalverðinu 305 krónur á kíló. Hæsta
boð var 788 krónur á kíló en lægsta
boð var 0 krónur. Tilboðum var tekið
frá tólf fyrirtækjum um innflutning á
127.000 kílóum á meðalverðinu 642
krónur á kíló.
Þrettán umsóknir bárust um
tollkvóta vegna innflutnings á ostum
og ystingi úr vörulið ex 0406 sem
er skráður í samræmi við reglugerð
um vernd landfræðilegra merkinga
og uppruna landbúnaðarafurða og
matvæla. Samtals var sótt um kvóta
vegna 404.550 kílóum. Er kvótanum
úthlutað með hlutkesti og er hámark
úthlutunar til hvers fyrirtækis 15
prósent af heildarmagni tollkvótans.
Samtals var úthlutað 77.000 kílóum
til tíu fyrirtækja. /smh
Kjöt af nautgripum
Magn (kg) Tilboðsgjafi
20.000 Aðföng
9.714 Ásbjörn Ólafsson ehf
130.000 Ekran ehf
1.429 Garri ehf
10.000 Innnes ehf
8.000 Kjarnafæði ehf
25.000 Kjötmarkaðurinn ehf
8.000 Krónan ehf
6.000 Samkaup sf
13.857 Sælkeradreifing ehf
Svínakjöt,
nýtt, kælt eða fryst
Magn (kg) Tilboðsgjafi
25.000 Ásbjörn Ólafsson ehf
44.000 Ekran ehf
300 Innnes ehf
20.000 Kjarnafæði ehf
10.000 Kjötmarkaðurinn ehf
5.000 Krónan ehf
128.700 Mata ehf
Kjöt af alifuglum,
nýtt, kælt eða fryst
Magn (kg) Tilboðsgjafi
60.000 Aðföng
131.000 Ekran ehf
30.000 Innnes ehf
27.000 Kjarnafæði ehf
4.000 Kjötmarkaðurinn ehf
5.000 Krónan ehf
20.000 Stjörnugrís ehf
8.000 Sælkeradreifing ehf
Verð á tollkvótum lækkað um helming
frá gildistöku samnings við ESB
Þróun á verði tollkvóta fyrir landbúnaðarvörur frá ESB - í krónum á kg
júl.-des. 2020, jan. 2018 –
jafnvægisútboð jan. 2021
Nautakjöt 797 797 570 331 200 330 -59%
Svínakjöt 378 285 202 188 182 204 -46%
Alifuglakjöt 620 496 356 262 280 357 -42%
Kjöt, saltað þurrt,reykt 312 338 308 200 5 147 -53%
Ostar 765 774 743 719 680 642 -16%
Unnar kjötvörur 467 302 310 167 10 233 -50%
Annað kjöt 1602 938 331 292 239 175 329 -65%
Flokkur jan.-des. 2018 jan.-jún. 2019 júl.-des. 2019 jan.-jún. 2020 jan.-apríl 2021
Gunnar Þorgeirsson.
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300