Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2021 7
LÍF&STARF
Sveinbjörn Beinteinsson frá Drag hálsi, óefað með bestu bragsnillingum sinnar tíðar, gaf út á árinu 1953 „Bragfræði og
háttatal“. Þar tilgreinir höfundur, að ég held,
alla braghætti sem til eru í vísnagerð á Íslandi.
Vitað er þó af einhverjum nýjum bragformum
sem orðið hafa til frá útgáfuári tilvitnaðrar
bókar Sveinbjarnar. Það sem umfram allt
gerir bragfræðirit Sveinbjarnar einstætt, er
að hann yrkir þar sjálfur allar vísur þeirra
450 braghátta sem tilgreindir eru í bókinni.
Hugmyndin er sú, að birta í næstu þáttum
sitthvað af þeim sýnishornum er Sveinbjörn
yrkir til hvers háttar. Ferskeytt er að líkindum
elsti rímnabragurinn. Til glöggvunar eru þau
orð skyggð sem vísa til þess bragháttar sem
ort er undir. Fyrst er kveðið ferhent:
Fjöll í austri fagurblá
freista dalabarnsins.
Ungur fylgir æskuþrá
upp til jökulhjarnsins.
Frumframhent/ hálfhent:
Sveimað heimahögum frá
hef ég vors á degi,
víða stríða þræddi þá
þunga hraunavegi.
Frum-samframhent:
Heiðin breiða hugumkær
hvetur viljann ofar.
Leiðin seiðir, fráum fær,
fögrum sýnum lofar.
Framhent:
Gerð var ferð af glöðum hug.
Geng ég lengi hærra.
Hækkar, stækkar dirfskudug
dáðaráðið stærra.
Víxlframhent:
Fjallið kallað örðugt er,
enn þess kennir maður;
stall af hjalla svifar sér,
senn upp rennur hraður.
Alhent:
Myndi kindum, háum hjá
hæðum, glæðast kraftur;
þekkar brekkur þrá að sjá,
þangað langar aftur.
Síðframhent:
Efstu grösin fríðu fé
fæðugæði veita;
styggar kindur kletts við hlé
kjarnans þarna leita.
Síðsam-framhent:
Heillar fé úr heimasveit
hlíð á blíðum dögum;
Fegrar efstan yndisreit
íðilfríðum högum.
Víxlalhent. (fagrislagur):
Fagnað magnar fríð á hlíð
frjó og gróin jörðin;
gagn og hagnað býður blíð,
bjó þar róleg hjörðin.
Frumbakhent:
Mína hlýt ég herða ferð;
heillar fögur myndin.
Vart í náðum verður gerð
viskuleit á tindinn.
Síðbakhent:
Gangan sækist öruggt enn
urðaróti móti.
Einatt hlutu heiðamenn
höggvinn fót á grjóti.
Bakhent. (Dvergmálsháttur):
Hver, sem ofar á að ná,
einskis metið getur
þótt í fangið fái sá
fjúk og hretið betur.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
266MÆLT AF
MUNNI FRAM
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk, leitar nú til landsmanna eftir aðstoð. Um 70 ungir einstaklingar greinast með krabbamein á hverju ári. Við
viljum vekja athygli á því að krabbamein snertir ekki einungis þann sem greinist með krabbamein heldur fjölmarga í kringum hann, þar á meðal
maka, foreldra, börn, vini, vandamenn og jafnvel vinnufélaga.
Lífið er NÚNA
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk
sem greinst hefur með krabbamein og
aðstandendur, verður með vitundar
vakningu og fjáröflunarherferð dagana
21. janúar til 4. febrúar. Markmið
herferðar innar er að vekja athygli á
hversu marga krabbamein hefur áhrif
á, selja húfur til styrktar félaginu og
starfsemi þess sem og afla styrkja fyrir
félagið.
„Um 70 ungir einstaklingar greinast með
krabbamein á hverju ári. Við viljum vekja
athygli á því að krabbamein snertir ekki
einungis þann sem greinist með krabba-
mein heldur fjölmarga í kringum hann, þar á
meðal maka, foreldra, börn, vini, vandamenn
og jafnvel vinnufélaga. Að meðaltali má
segja að um 7–10 nánir aðstandendur standi
að baki hverjum einstaklingi,“ segir Hulda
Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts.
Til að styðja við starfsemi Krafts getur
fólk gerst mánaðarlegir styrktaraðilar, sent
inn staka styrki eða keypt íslenska „Lífið er
núna“-húfu sem var framleidd fyrir átakið.
„Heiða Nikita hannaði húfuna fyrir okkur
og er hún framleidd af Varma í samstarfi við
Ístex. Okkur fannst ekkert annað koma til
greina en að vera með íslenska hönnun og
framleiðslu á þessum tímum og kemur húfan
einstaklega vel út,“ segir Hulda. Húfan
er til í svörtu og appelsínugulu og fæst í
vefverslun Krafts, verslun og vefverslun
Símans og í verslunum Geysis.
Appelsínugulur ljómi mun ráða ríkjum í
janúar þar sem Ráðhús Reykjavíkur, Háskóli
Íslands, Perlan og Hof á Akureyri verða lýst
appelsínugul til að vekja fólk til umhugsunar
um ungt fólk og krabbamein. Eins verður
Kirkjan á Sauðárkróki lýst appelsínugul þar
sem einn viðmælandinn í herferðinni er þaðan.
„Við hvetjum auk þess fólk til að deila
reynslu sinni á samfélagsmiðlum um það
hvernig krabbamein hefur haft áhrif á það
og sýna þannig samstöðu og hversu marga
krabbamein snertir. Það er til að mynda
hægt að fara inn á vefsíðuna okkar, www.
lifidernuna.is, og fylla þar út form um hvernig
krabbamein hefur haft áhrif á þig hvort sem þú
ert faðir, móðir, vinkona, sonur o.s.frv. Þeim
upplýsingum geturðu svo deilt á Facebook
með sérstakri mynd. Með því að deila sýnir
þú samstöðu og færð sent til baka upplýsingar
um þá þjónustu og stuðning sem gæti gagnast
þér,“ segir Hulda að lokum.
Lokahnykkur átaksins verður þann 4.
febrúar, á alþjóðadegi gegn krabbameinum.
Þá verður settur upp flottur rafrænn viðburður
með frábæru listafólki sem hægt verður að
horfa á í gegnum netstreymi þar sem við
miðlum til áhorfenda hvernig þeir geta styrkt
starfið hjá Krafti. Viðburðurinn er í samstarfi
við Vetrarhátíð Reykjavíkur og verður nánar
sagt frá honum síðar.
Aðstandendur Krafts bjóða landsmönnum að kaupa þessar fallegu húfur og styrkja um leið
starfsemi félagsins.