Bændablaðið - 28.01.2021, Page 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2021 21
Það samsvarar 115 ferkílómetr
um. Til samanburðar er allt land
Reykjavíkurborgar um 273 km2.
Þetta félag er skráð hérlendis, en er
í 100 prósent eigu þýska fyrirtækis
ins STEAG Beteilungsgesellschaft.
Ekki voru lög heldur mikið að
þvælast fyrir erlendum fjárfest
um sem hafa keypt grimmt jarðir
í Mýrdalshreppi á liðnum árum.
Þar má t.d. nefna Svisslendinginn
Rudolf Walter Lamprecht sem
á jarðir hús og veiðiréttindi í
Mýrdalshreppi. Er eignarhald
útlendinga þar um slóðir væntan
lega komið vel á annan tug þús
unda hektara. Lamprecht komst í
fréttir 2013, en þá hafði hann keypt
6 jarðir og eina að hluta til viðbótar
og hafði þá eignast Heiðardalinn
eins og hann lagði sig. Hann sagð
ist þá skilja áhyggjur Íslendinga
yfir jarðakaupum útlendinga,
en sagðist þó ekki hafa trú á að
þeir myndu eignast 30 til 40% af
landinu.
Kaup erlendra fjárfesta á síðum
stórblaða úti í heimi
Hefur ásælni erlendra auðmanna í
jarðir á Íslandi vakið athygli fjöl
miðla á borð við breska blaðið
Daily Mail og afleiðu þess, Mail
on Sunday. Þar birtist t.d. grein
þann 17. janúar síðastliðinn um
landakaup hins 68 ára gamla
breska milljarðamæringsins sir Jim
Ratcliffe á Íslandi. Hann er fimmti
ríkasti maður Bretlands og eru
eigur hans metnar á 12,2 milljarða
punda, en hann á m.a. olíuefnafyr
irtækið Ineos. Er hann sagður hafa
varið 36,2 milljónum punda í kaup
á 39 jörðum á Íslandi síðan 2016
(um 6,4 milljarðar króna á núvirði),
m.a. til að tryggja sér veiðirétt í
íslenskum laxveiðiám. Einnig segir
í fréttinni að vaxandi áhyggjur séu
yfir umsvifum Ratcliffe á Íslandi
sem kunni að leiða til þess að
honum verði bannað að kaupa
meira land.
Auk kaupa á Hofsá, þar sem
Charles Bretaprins stundaði lax
veiðar í um árabil, keypti Ratcliffe
m.a. Selá, þar sem George H. W.
Bush, fyrrum Bandaríkjaforseti,
veiddi í og lýsti sem ótrúlega fal
legri á.
Ratcliffe á einnig veiðirétt í
fjórum öðrum helstu veiðiám á
Norðausturlandi, þ.e. Hafralónsá,
Svalbarðsá, Miðfjarðará og
Vesturdalsá.
Vitnað er í Jóhannes Sigfússon,
bónda á Gunnarsstöðum í
Þistilfirði, sem býr á 7.400 ekra
landi sem liggur að Hafralónsá.
Segist hann ekki þekkja Ratcliffe,
en það geti ekki verið gott þegar
einn maður eignast svo mikið land.
Jóhannes vakti einmitt athygli á
þessum málum á eftirminnilegan
hátt á forsíðu Bændablaðsins 21.
júní 2018. Þar sagði hann að við
yrðum að koma böndum á þetta
því við værum að missa landið úr
höndum okkar.
Í fréttinni í Mail on Sunday
er verkefni Ratcliffes, sem kall
að er „Six Rivers Conservation
Project“, sagt ætlað að tryggja
stöðugleika og sjálfbærni Norður
Atlantshafslaxins í ám á svæð
inu. Er þar vitnað í orð Gísla
Ásgeirssonar, formanns veiðifé
lagsins Strengs, sem segir að það
sé helsta ástæðan fyrir kaupum
Ratcliffe á íslenskum jörðum.
Hundruð jarða líklega
komnar í eigu útlendinga að
öllu leyti eða að hluta
Erfitt er að festa hendur á hversu
mikil jarðakaup útlendinga eru
orðin á Íslandi. Oft eru slík jarða
kaup gerð í gegnum íslenska aðila
eða með sameiginlegu eignarhaldi.
Í Viðskiptablaðinu þann 24. júlí
2018 var reynt að kasta á þetta
tölu. Þar kom fram að samkvæmt
fasteignaskrá væru 7.670 skráðar
jarðir á Íslandi. Þar af eru 384 jarðir
að hluta eða öllu leyti í eigu fólks
með lögheimili erlendis, tæplega
2.400 jarðir eru í eigu félaga eða
fyrirtækja, nánast þriðjungur allra
jarða. Eitthvað af þeim var þá sagt
vera í eigu útlendinga, en ekki lá
þá fyrir hversu margar.
Samkvæmt lögbýlaskrá sem
gefin var út í janúar 2020 eru
skráð lögbýli sögð vera 6.700 og
hefur lögbýlum því fækkað um 970
jarðir sem hafa verið teknar út úr
lögbýlaskráningu af óskilgreindum
ástæðum.
Stofnandi Microsoft kallaður
„Jarðakóngur Ameríku“
Fréttir af landhremmingum auð
manna eru líka umfjöllunarefni
um allan heim. Bandaríski fjöl
miðillinn New York Post fjall
aði um miðjan janúar um söfnun
Bill Gates á bújörðum og segir
að hann geti nú óhikað kallað sig
„Jarðakóng Ameríku“. Er fréttin
unnin upp úr efni af vefsíðu The
Land Report, en þar segir í grein
þann 11. janúar síðastliðinn að Bill
Gates og eiginkona hans, Melinda
Gates, séu nú stærstu jarðaeigendur
í Bandaríkjunum með um 242.000
ekrur af ræktarlandi sem samsvara
97.934 hekturum, eða rúmlega 979
ferkílómetrum (km2). Einnig eiga
þau 47.927 ekrur af öðru landi,
eða 19.395 hektara sem samsvara
tæpum 194 km2. Samanlagt eru
hjónin Bill og Melinda Gates því
sögð eiga 117.329 hektara eða
rúma 1.173 km2.
Bandaríkjamenn áttu
8,4 milljón hektara í öðrum
löndum árið 2016
Líklega er vafasamt að kalla Bill
Gates jarðakóng Ameríku því
enginn veit í raun með vissu hvað
auðkýfingar hafa verið að sölsa
undir sig af jörðum á liðnum árum í
Bandaríkjunum. Líkt og hér á landi
eru slík kaup oft gerði í nafni fyrir
tækja. Þá eiga bandarískir þegnar
gríðarlega mikið jarðnæði í öðrum
löndum, eða sem nemur ríflega 8,4
milljónum hektara, eða um 84.168
km2 sem nemur um 82% af flatar
máli Íslands.
Samkvæmt vefsíðu Statista
áttu Bandaríkjamenn á árinu 2016
t.d. rúmlega 2,2 milljónir hektara
í Lýðveldinu Kongó, rúmlega 2
milljónir hektara í Papúa Nýju
Gíneu, um 1,4 milljónir hektara
í SuðurSúdan, 559 þúsund hekt
ara í Mósambik og tæplega 462
þúsund hektara í Úkraínu. Þá áttu
þeir 1.604.797 hektara í minnst 26
löndum til viðbótar, eða samtals
8.416.784 hektara og eru jarðir í
eigu Bandaríkjamanna á Íslandi
þá ekki meðtaldar.
Evrópskir auðjöfrar hafa líka
verið iðnir við kolann við jarða
kaup bæði innan og utan Evrópu.
Þar má t.d. nefna jarðakaup í
Úkraínu og í ríkjum Afríku.
Kínverjar eru engir aukvisar
Haldi menn að Bandaríkjamenn
séu stórtækir, þá má spyrja hvað
menn kalli jarðakaup Kínverja úti
um allan heim og þá sérstaklega í
Afríku. Um þetta var m.a. fjallað
í blaðinu The Japan Times í apríl á
síðasta ári. Eru jarðakaup þeirra í
Afríku sögð „miklu meira en land
hremmingar (landgrabbing)“. Þar
segir m.a. að Kínverjar hafi komið
inn í lönd sunnan Sahara með ým
iss konar aðstoð og lánveitingar
um tugi milljarða dollara gegn því
að fá í staðinn aðgengi að námum,
olíu, vatnsorku og ræktarlandi.
Kínverjar hafa líka verið iðnir
við að tryggja sér land í Suður
Ameríku. Þar hafa þeir lengi
stefnt að því að ná yfirráðum yfir
ræktarlandi líkt og í Afríku til að
tryggja sitt eigið fæðuöryggi. Eru
þeir þannig orðnir langstærstu
framleiðendur heimsins á ýmsum
fæðutegundum.
Evrópsk fyrirtæki
eru líka stórtæk í Asíu
Útlendingar hafa þó líka ásælst
jarðnæði innan landamæra Kína.
Þar má t.d. nefna iðnaðarræktun á
trjám (Industrial tree plantations
ITP) í Guangxihéraði þar sem
finnska fyrirtækið Stora Enso og
APP í Indónesíu hafa verið mjög
stórtæk. Lögðu þessi fyrirtæki
undir sig gríðarstórt landsvæði
undir trjárækt sem hafði víðtæk
áhrif á íbúa og vakti mikla óá
nægju heimamanna, enda komið
með yfir 20 verksmiðjur og
300.000 hektara undir skóglendi
í Kína. Var finnska fyrirtækið
komið með stjórn á 99,94% af öllu
skóglendi á svæðinu sem samt var
að 62% hluta í eigu kínverska rík
isins. Finnska pappírsframleiðslu
fyrir tækið leigði stærstan hluta
landsins til 50 ára og náði þar afar
hagstæðum samn ingum á sínum
tíma. Hafa þeir samningar m.a.
vakið mikla gremju heimamanna.
Stora Enso var þegar árið
2017 komið með sögunarmyllur
og pappírsverksmiðjur víða um
heim, ýmist í eigin eigu eða í
samstarfi við aðra. Þar má nefna
lönd eins og Brasilíu, Úrúgvæ,
Bandaríkin, ýmis Evrópulönd.
Rússland, Kína og Pakistan. Þá
átti Stora Enso 4 milljónir hektara
skóglendi í Svíþjóð, Finnlandi,
Úrúgvæ Brasilíu. Eistlandi,
Rúmeníu, Lettlandi, Rússlandi,
Kína og í Laos. Það var líka með
níu verksmiðjur og 2,6 milljón
ir hektara undir trjáplantekrur í
Indónesíu.
Hjónin Bill Gates og eiginkona hans, Melinda Gates, eru nú sögð stærstu
jarðaeigendur Bandaríkjunum. Mynd / The Land Report,
Finnska fyrirtækið Stora Enso hefur verið stórtækt í ræktun trjáa til papp-
írsframleiðslu í Guangxi-héraði í Kína. Hafa smábændur þurft að hrökklast
undan vegna ágangs í þeirra gamla ræktarland. Kom til harðra deilna við
bændur í héraðinu á árinu 2015 vegna þessa og á myndinni má sjá lögreglu-
menn skerast í leikinn.
Landhremmingar, eða „Land Grabbing“, hefur líka verið nefnt nýlendustefna
peningahyggjunnar eða efnahagsnýlendustefna.