Bændablaðið - 28.01.2021, Side 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2021 23
Valtra
Lely Center Ísland
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 // Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 – lci.is
VARAHLUTIR Í DRÁTTARVÉLAR
John Deere
New Holland
Steyr
Case IH
Fiat
Deutz Fahr
Zetor
Kubota
Massey Ferguson
Claas
Fendt
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Þann 1. febrúar n.k. opnar Matvælastofnun fyrir umsóknir um styrki vegna vatnsveitna á
lögbýlum í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna
á lögbýlum, nr. 180/2016.
Umsókn um styrk til vatnsveituframkvæmda (nr. 10.06) er í þjónustugátt MAST sem er
aðgengileg á vef Matvælastofnunar. Umsækjandi skráir sig inn með Íslykli eða rafrænum
skilríkjum. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar n.k. Umsóknarfrestur verður ekki
framlengdur.
Eftirfarandi fylgigögn skulu fylgja með umsókninni:
Mat úttektaraðila á þörf býlis fyrir framkvæmd
Staðfest kostnaðar- og framkvæmdaráætlun
Teikningar sé um byggingar að ræða
Umsögn viðkomandi sveitastjórnar um að skilyrði 1. mgr. 1. gr. ofangreindrar
reglugerðar séu uppfyllt, þ.e. að hagkvæmara sé að mati sveitastjórnar að leggja
vatnsveitu að einstökum bæjum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur sveitafélaga,
nr. 32/2004
Stuðningur fyrir hverja framkvæmd getur að hámarki numið 44% af stofnkostnaði við
vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa.
Vakin er athygli á því að þeir umsækjendur sem áttu samþykkta umsókn á sl. ári en luku
ekki framkvæmdum þurfa að sækja um aftur.
www.mast.is
Vatnsveitustyrkir fyrir bændur
Gerður var samningur um miðjan
janúar við framleiðsludeild
Thyssenkrupp Uhde Chlorine
Engineers á vistvænu vetni (Green
Hydrogen product division) í því
skyni að byggja 88 megavatta (MW)
vatnsrafgreiningarverksmiðju í
Kanada. Samningurinn er með
fyrirvara um áreiðanleikakönnun.
Verkefnið snýst um að setja
upp rafgreiningarverksmiðju til
að framleiða vetni fyrir kanadíska
ríkisorkufyrirtækið Hydro-Québec
sem er einn stærsti vatnsaflsorku-
framleiðandi í Norður-Ameríku.
Vatnsgreininga r verksmiðjan verður
byggð í Varennes í Quebec og á að
framleiða 11.100 tonn af grænu vetni
árlega.
Bæði vetnið og súrefnið sem er
aukaafurð rafgreiningarferlisins,
verður notað í lífeldsneytisverksmiðju
til að framleiða lífeldsneyti úr sorpi
fyrir flutningageirann.
Afl rafgreiningarverksmiðjunnar
verður 88 megawött (MW) og verður
þetta ein stærsta framleiðslueining
fyrir grænt vetni í heiminum.
Gangsetning er áætluð síðla árs
2023.
„Þetta verkefni er frábær lýsing
á því hversu mikilvægt samspil
öruggs aðgangs að samkeppnis-
hæfri endurnýjanlegri orku og
notkun skalaðrar tækni til vetnis-
framleiðslu er,“ segir Sami Pelkonen,
framkvæmdastjóri Chemical &
Process Technologies rekstrar-
einingar Thyssenkrupp.
Denis Krude, forstjóri Uhde,
klór verkfræðideildar Thyssenkrupp,
bætir við:
„Quebec sem svæði og Hydro-
Québec sem viðskiptavinur bjóða
upp á kjöraðstæður til að setja
vatnsrafgreiningartækni okkar í
margra megavatta kvarða í fyrsta
skipti.“
Vetnisframleiðsla með raf-
grein ingu á vatni er vart talin
samkeppnishæf sem orkumiðill
nema það sé framleitt í stórum skala.
Rafgreining vatns frá Thyssenkrupp
upp á nokkur hundruð megavött er
talin ná þeirri stærðarhagkvæmni
sem sóst er eftir. /HKr.
Hydro-Québec í Kanada semur við Thyssenkrupp AG í Þýskalandi:
Hyggjast reisa 88 megavatta rafgreiningarstöð
til að framleiða vetni í stórum stíl
UTAN ÚR HEIMI
Vetnisvæðingarkapphlaup
hafið á meðal þjóða heims
Þrátt fyrir efasemdarraddir á
liðnum árum um ágæti vetnis sem
orkumiðils í samgöngum þá hafa
stórþjóðir og ríkjasamsteypur
þegar hafið kapphlaup um
gríðarlega vetnisinnleiðingu á
næstu árum.
Framleiðsla á rafgreiningar-
búnaði til vetnisframleiðslu
(electro lyzers) hefur margfaldast
á einu ári samkvæmt gögnum
greiningar deildar Wood Mackenzie
í orkumálum. Í fyrstu skýrslu sinni,
sem bar yfirskriftina „Græn vetnis-
framleiðsla: Landslag, verk efni og
kostnaður“, var talið að fyrirhuguð
væru verkefni í framleiðslu á vetni
upp á 3,2 gígavött. Í mars 2020
var ljóst að fyrirhuguð verkefni á
þessu sviði kölluðu á 8,2 gígavött
í uppsettu afli, sem var 31 sinnum
meira en allt afl í vetnisframleiðslu
var þá á heimsvísu.
Þá voru 17 verkefni vetnis-
framleiðsluverkefni komin í vinnslu
sem hvert um sig kallaði á meira en
100 megavött. Þetta voru verkefni
í Ástralíu, Frakklandi, Þýskalandi,
Hollandi, Paragvæ, Portúgal,
Bretlandi og í Bandaríkjunum.
„Við erum að sjá stærri og stærri
verkefni tilkynnt með stuðningi
frá Fortune 500 fyrirtækjum,“
sagði Ben Gallagher, sérfræðingur
í málefnum kolefnis og nýrrar
tækni fyrir orkuskipti hjá Wood
Mackenzie.
Metnaðarfyllsta áætlunin er
Asíska miðstöðin fyrir endur-
nýjanlega orku í Pilbara-héraði
í Ástralíu. Hefur það verið „eitt
mest spennandi orkuverkefni í
heimi“. Þar er áætlað að setja upp
allt að 15 gígavatta virkjanir af
vind- og sólarorkuframleiðslu. Af
þeirri orku á að nota 12 gígavött til
framleiðslu á grænu vetni. Wood
Mackenzie áætlar að miðstöðin
verði komin með eins gígavatts
rafgreiningargetu árið 2027. Annað
stórkostlegt verkefni sem ætlað er
að ljúka fyrir árið 2027 er HyGreen
Provence-verksmiðjan sem er
byggð af Engie og Air Liquide í
Frakklandi. Wood Mackenzie segir
rafgreiningargetu þess verkefnis
vera 760 megavött.
Kínverjar komnir á fullt og ESB
hyggst fylgja þeim fast eftir
Kínverjar og fleiri Asíuþjóðir hafa
þegar mótað stefnu og hafið miklar
fjárfestingar í vetnisframleiðslu
og uppbyggingu innviða vegna
stóraukinnar vetnisnotkunar.
Evrópu sambandið ætlar sér greini-
lega ekki að sitja eftir og í júlí
2020 setti ESB fram það markmið
að byggja upp verksmiðjur innan
sinna landamæra til rafgreiningar
á vetni í stórum stíl.
Samkvæmt yfirlýstum mark-
miðum ESB á að taka í notkun
rafgreiningarverksmiðjur fyrir
árið 2024 sem framleiða vetni
með 6 gígavöttum af raforku.
Það er risastökk frá þeim 250
megavöttum sem notuð eru til
slíkrar framleiðslu í heiminum nú
þegar, samkvæmt skýrslu Wood
Mackenzie. Þá er stefna ESB að
búið verði að gangsetja fyrir árið
2030 vetnisframleiðslustöðvar
innan landamæra ESB-ríkja sem
nota 40 gígavött af rafmagni.
Einnig á þá að vera búið að taka í
notkun rafgreiningarverksmiðjur í
nágrannaríkjum ESB-landanna fyrir
önnur 40 gígavött til viðbótar. /HKr.